Réttur - 01.05.1967, Side 32
Sovétríkin eru nú stórveldi á efnahagssviSinu,
mesta iðnaðarveldi Evrópu og annað mesta
iðnaðarveldi heims. A tímahilinu eftir bylt-
inguna hefur geysimikil uppbygging átt sér
stað. Árin 1918—1965 hafa verið reistar og
teknar í notkun u. þ. 1). 40 þúsund verksmiðj-
ur auk ólölulegs fjöida minni fyrirtækja. Nú
framleiða líka Sovétríkin um það ])il fimmtung
allrar iðnaðarframleiðslu heimsins.
Enda þótt Sovélríkin hafi orðið að eyða 18
árum 50 ára langrar ævi sinnar í að heyja
varnarstríð og í endurreisn eftir eyðilegging-
ar styrjaldanna, hafði iðnaðaframleiðsla
landsins sextugfaldast árið 1965 ef árið 1913
er tekið til viðmiðunar.
Sovétrikin tóku að erfðum frá llússlandi
keisarans iðnað sem var einstaklega misskipt
eftir landshlutum og óhaglega fyrir komið í
flestum greinum. Meginhluta framleiðslunnar
var þjappað saman í 3—4 borgum í hinum
evrópska hluta Rússlands. Eitt fremsta ein-
kenni efnahagsþróunarinnar eftir byllinguna
er aukin hlutdeild sambandslýðveldanna í iðn-
aðarframleiðslunni en stjórnarvöldin hafa
mjög beitt sér fyrir alhliða uppbyggingu í
austurhéruðum landsins. 1 öllum sambands-
lýðveldunum hefur verið komið upp iðnaði í
stórum stíl og hefur þróun hans verið mjög
ör. Sem dæmi má nefna, að iðnaðarframleiðsl-
an í lýðveldinu Kasakstan hefur nítugfaldast
síðan 1913 en í Kirgisíu og Armeníu hefur
hún meir en hundraðfaldast, ef miðað er við
sama ár.
Iðnvæðingin og hin öra efnahagsþróun í
landinu iögðu grundvöllinn að árangursríkri
samkeppni Sovétríkjanna við hin háþróuðu
auðvaldsríki á efnahagssviðinu. Þjóðartekj-
ur og iðnaðarframleiðsla vaxa mun örar í
Sovétríkjunum en í höfuðlandi auðvaldsheims-
ins, Bandaríkjunum. Þetta hefur að sjálfsögðu
í för með sér að iðnaðarframleiðsla Sovét-
ríkjanna nálgast æ meir framleiðslu Banda-
rikjanna að magni til.
Á næstliðnu ári hófst í Sovétríkjunum
framkvæmd nýrrar 5 ára áætlunar um upp-
byggingu atvinnulífsins en hún er mikilvægur
áfangi í sköpun efnahagslegra og tæknilegra
forsenda fyrir þjóðfélag kommúnismans.
Samkvæmt yfirstandandi 5 ára áætlun munu
þjóðartekjurnar aukast um 38—41%, iðnað-
arframleiðslan um 50%, en aukning landhún-
aðarframleiðslunnar mun að meðaltali nema
25%>. Rauntekjur á hvern íhúa munu á þessu
5 áia tímabili hækka um 30%.
Þegar á fyrsla ári áætlunarinnar, árinu
1966, hafa framleiðslustéttir Sovétrikjanna
náð veigamiklum árangri á öllum sviðurn at-
vinnulifsins og hætt lífskjör sin verulega. Sé
borið saman við árið 1965 hefur þjóðarfram-
leiðslan aukizt um 8%, þjóðartekjurnar um
7.5%, iðnaðarframleiðslan um 8.6% og fram-
leiðsla landhúnaðarafurða um 10%. Raun-
tekjur á íbúa hafa aukist um meira en 6%>.
(Þýtt úr „Prohleme des Friedens und des Sozialismus)
S. R.
Tafla, sem sýnir iðnaðarframleiðslu Sovét-
ríkjanna í samanhurði við framleiðslu Banda-
ríkjanna:
1913 1950 1957 1965
88