Réttur - 01.05.1967, Side 63
Bólivíu í sl. maímánuSi, varð Jean Daniel,
aðalritstjóra franska vikublaðsins Le !\ouvel
Observateur, tilefni til þeirra hugleiðinga sem
l'ér fara á eftir. Samkvæml fréttinni var Dé-
l)ray þá talinn af, en síðan hefur vitnazt að
hann situr í fangelsi. Hann fór til Rólivíu sem
l'laðamaður fyrir mexikanskt tímarit, í fylgd
nieð tveim slarfshræðrum, brezkum og argen-
hskum. Þegar hann var handtekinn var hann
horgaraklæddur og óvopnaður (mun enda
aldrei hafa meðhöndlað riffil á ævi sinni!),
en Ovando hershöfðingi, sem stýrir gagnbylt-
lngarherjunum í Camirihéraði, hyggst stefna
honum fyrir herrétt og fá hann dæmdan ann-
aðhvort af lífi eða í þunga fangelsisvist á þeim
htrsendum að hann hafi verið pólitískur ráð-
Sjaf'i skæruliðanna. Þurfi ekki frekar vitnanna
v>ð, þar sem hann hafi komið frá Kúbu og auk
l)ess skrifað einskonar handbók í byltingar-
fræðum sem er sérstaklega miðuð við suður-
an>erískar aðstæður! Með réttarhöldunum
Segn hinum unga franska heimspekingi hyggst
hershöfðingjaklíkan í Bólivíu renna frekari
stoðum undir þá kenningu að Kúha og Castro
séu „útflytjendur byltingai'innar“ til megin-
landsins, og því beri ríkjum jiess að samein-
ast, ásamt Bandaríkjunum, um að vega að
íótutn meinsins.
AÐ BREYTA
MANNINUM
Skyndilegt hvarf rússneska geimfarans
Vladimir Komarov, 37. mannsins sent freist-
ar að sigrast á víðáttum rúmsins, dauði sem
viðheldur goðsögninnli um Prómoþeus og
skoða má sem refsingu guðanna fyrir metorða-
girnd manna sem hættir til að gleyma sinni
eigin reikistjörnu; stjórnlagarof í Grikklandi
í afrískum stíl sem er einskonar áminning um
að vanþróuð Miðjarðarlönd gela hvenær sem
er orðið valdagírugum hershöfðingjum að
119