Réttur


Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 66

Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 66
hætti einvaldskonunga. Undir hið sameinaða verkfall ýtti einnig óánægja almennings í garð efnahagsstefnu de Gaulle og ráðherra hans Debré. Jean Daniel, ritstjóri Le Nouvel Obser- vateur, metur pólitíska þýðingu verkfallsins þannig: „Nýmælið með verkfallinu — og undarlegasta fyrirbærið í augum útlendinga sem höfðu smám saman vanizt pólitísku afsali okkar — er að Frakkar hafa uppgötvað að nýju að þeir eru ábyrgir og fullveðja menn og hafa tök á að ráða örlögum sínum sjálfir.“ HLAUT 48% Síðan i vor hefur japanska ríkisstjórnin þungar áhyggjur af 63 ára gömlum hagfræði- prófessor, Micobe að nafni, sem er fjörlegur í fasi og frábær ræðumaður. Því Micobe er marxisti og — það sem meira er — hlaut 48% atkvæða við 'bæjarstjórnarkosningarnar í stærstu borg heimsins, Tokyo, sem hann stjórnar nú sem foringi bandalags sósíalista og kommúnista. Sigur sinn á hann því að þakka öðru fremur að hann hafði upp á stefnuskrá að bjóða, á sama tíma og andstæðingar hans, frjálslyndir (sem atvinnurekendur styrkja) og bandamenn þeirra, sósíaldemókratar, hömpuðu aðeins einu slagorði: „Rauði fáninn skal aldrei blakta yfir tignarlegasta ráðhúsi Asíu! Aldrei!“ Bak við þessi slagorð lá raunar neikvæð stefnu- skrá: áframhaldandi fylgispekt við Bandarík- in (samningurinn við þau rennur út 1970), fjandskapur við kínversku menningarbylting- una (sem japanskir sósíalistar leyna ekki sam- úð sinni með) og status quo fyrir ibúana, þ. e. áframhaldandi spilling í stjórnkerfinu. Micobe lét hugmyndafræðileg deilumál liggja í láginni („mér er fjandans sama um rauða fánann!“ er haft eftir honum), en beindi kastljósinu að smærri vandamálum sem Tokyóbúar eiga daglega við að stríða: verð- hækkunum, milliliðabraski, húsnæðisskorti, ófullnægjandi almannaþjónustu á sviði sam- gangna og hreinlætis, umferðaöngþveiti o. s. frav. Á eftir kæmu hin hugmyndafræðilegu vandamál. Avöxtur þessarar stefnu: 14% atkvæða- aukning, samanborið við fyrri atkvæðatölur sósialista- og kommúnistaflokksins sem gengu nú í fyrsta sinni sameinaðir til kosninga. VIETNAM AFRÍKU Þegar leiðtogi þjóðfrelsisfylkingar Mozam- bique var á ferð um Norðurlönd í fyrra, kall- aði hann land sitt „Vietnam Afríku.“ Þjóð- frelsisbarátta íbúanna í Mozambique hefur nú leitt til blóðugra hernaðarátaka, þar sem ekki verður snúið til baka. Nauðsynlegt er að kynna betur hér á landi framferði Portúgala í Afríku, ekki hvað sízt vegna þess að þeir eru bandamenn okkar í Atlantshafsbandalag- inu. I Afríku kúga Portúgalar enn 10 milljónir Afríkubúa, þ. e. í Angola, Mozambique og Guineu. í ár eru tíu ár liðin síðan uppreisnin hófst í Angóla, en hún hefur síðan breiðzt lit til annarra nýlendna Portúgala. Helmingur fjárveitingar Portúgals fer í að standa straum af herkostnaði í nýlendunum og fjárhagsað- stoð annarra Atlantshafsbandalagsríkja gerir þeim kleift að halda stríðinu áfram. Tilkoma hinna frjálsu ríkja í Afríku á þessum áratug hefur auðveldað mjög frelsisbaráttuna í ný- lendunum. 1 nýfrjálsu ríkjunum hafa þeir komið upp æfingabúðum og skólum til að þjálfa skæruliða. Sameinuðu þjóðirnar hafa margsinnis sam- þykkt ályktanir þess efnis, að stefna Portúgala er fordæmd og hvatt er til verzlunarbanns á Portúgal, og þá einkum banns við vopnasölu. 122
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.