Réttur


Réttur - 01.11.1967, Qupperneq 9

Réttur - 01.11.1967, Qupperneq 9
ÍSRAEL ARABAR Mótsetningarnar milli Ísraelsríkis og Araba eru nú einhverjar djúptækustu í veröldinni, einkum eftir sex daga stríðiS í júní 1967. Að lítt athuguðu máli hafa menn tilhneig- ingu til að taka afstöðu með ísrael, þótt það sé viðurkennt sem árásaraðili. Er þar þyngst á metunum samúðin með Gyðingum, eftir þá ægilegu útrýmingarherferð, sem sá hrausti og merki þjóðflokkur þoldi af hálfu nasista. En það verður að brjóta þetta mál til mergjar út frá því sjónarmiði, hvernig tryggja megi til frambúðar: tilveru Ísraelsríkis, frið og vaxandi samstarf með Gyðingum og Aröbum og sjálf- stæði Arabaþjóða. Stofnun Ísraelsríkis Ísraelsríki var stofnað með ákvörðun Sam- einuðu þjóðanna í nóvember 1947. Samkvæmt þeirri ákvörðun skyldi skifta Palestínu í tvö ríki, efnahagssamband væri á milli þeirra í þeim tilgangi að sameina þau síðan í eitt ríki. Síðan var Ísraelsríki stofnað 14. maí 1948. Stríð hófst við Araba, sem ekki viðurkenndu ríkið. ísrael sigraði og lagði undir sig lönd langt út fyrir það, sem Sameinuðu þjóðimar höfðu úthlutað. Hundruð þúsunda Araba urðu að flýja lönd sín. Það flóttamannavandamál er þá varð til, veldur enn ægilegum erfið- leikum. Árlega hafa Sameinuðu þjóðirnar sam- þykkt áskorun á ísrael að leyfa þeim Aröbum, er þess óska, að hverfa til heimkynna sinna, en greiða þeim skaðabætur, sem ekki óska þess. En stjóm ísraels lætur þau tilmæli sem vind um eyru þjóta. Eftir árásarstríðið og land- vinninga ísraels í júní 1967 hefur svo allur þessi vandi aukist og margfaldast. ArSrániS á Aröbum Lítum svo til Arabalanda. Þar er um tvenns- konar lönd að ræða hvað stjórnarfar snertir: Einveldi miðaldakonunga og ríkisstjórnir fram- farasinnaðra þjóðbyltingarmanna. En öll eru þessi lönd byggð fátæku fólki, mest bændum, rík að auðlindum, einkum olfu, en arðrænd af alþjóðlegu olíuhringunum, sem múta hinsvegar einvaldsherrum vel. Samkvæmt bandarískum skýrslum voru tekj- ur bandarískra olíuhringa af fjárfestingu er- lendis 1789 milljónir dollara (rúmar 100.000 milljónir króna). Þaraf er tæpur helmingur frá Arabalöndunum. Það er gegn öllu slíku arðráni auðhringa, 189

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.