Réttur - 01.11.1967, Síða 11
Vilner, ritari Kommúnistaílokks ísraels og þing-
maður í Knesseth, þióðþingi ísrael. Hann og
flokkur hans greiddu einir atkvæði gegn árás-
arstríði ísraels.
Tillögur þær, sem Kommúnistaflokkur hans
lagði fram til lausnar deilunni, voru í aðalat-
riðum þessar:
— ísrael flytji her sinn til fyrri landamæra.
—- Samningur sé gerður milli ísrael og
Araba, er tryggi tilveru Ísraelsríkis og
lögmæt þjóðernisleg réttindi ísraelsþjóð-
ar og Palestínu Araba, þar með rétt ara-
biskra flóttamanna til að velja á milli rétt-
arins til að snúa heim eða fá skaðabætur.
— Tryggð sé lýðréttindi í landinu og afnum-
ið misrétti það, sem Arabar í ísrael hafa
orðið að sæta.
Þá er enn fremur lagt til að breytt sé utan-
ríkismálastefnu Israel, þannig að grundvöllur
skapist fyrir samstöðu og samstarf þeirra og
Araba gegn heimsvaldastefnu auðvaldsins.
Það á vafalaust langt í land að sættir og
vinátta skapist milli þessara andvígu þjóð-
flokka. En gott er að góðir sósíalistar í báðum
herbúðum byrji að brjóta brautina fram til
þeirrar vináttu, sem koma þarf, ef eigi á illa
að fara. Slíkir menn sýna þar með sanna al-
þjóðahyggju og friðarvilja, en eru um leið að
gera, það sem þjóð hvers þeirra þarfnast mest,
er til lengdar lætur, ef tryggja skal tilveru henn-
ar, frelsi og frið.
MEIK VILNER
aðalritari Kommúnistaflokks Isra-
els og þingmaður í Knesselh, þingi
Israelsríkis. — Kommúnistaflokkur
ísraels klofnaði fyrir nokkru og er
Vilner fyrir þeim flokknum, sem
afslöðu tók gegn stríðinu, en fyrir
liinum flokknum er Mikunis. Of-
stœkismenn í ísrael sýndu Vilner
banatilrœði í fyrra. Hlaut iiann all-
mikið sár.
191