Réttur - 01.11.1967, Page 17
ALDARMINNING
JAMES CONNOLLY
ÞJÓÐHETJA ÍRA
Connolly var verkamaður og hreifst með í
sókn verklýðsheyfingarinnar kringum 1889.
Hann kynntist ritum Karls Marx og hreifst með
af þjóðfrelsisbaróttu íra. Honum tókst að sam-
eina sósíalismann og írsku þjóðfrelsishreyfing-
una með ógætum. Hann varð ritarl Scottish
Socialist Federation (sósíalistabandalagi Skota)
og heimili hans var miðstöð sósíalistiskrar
starfsemi í Edinborg.
Connolly var boðið til írlands, er hann varð
James Coimolly var fæddur 1868 í Edinborg í
Skotlandi. Hann var leiðtogi í páskauppreisn-
inni 1916, hinum hetjulega og fórníreka þætti í
langri frelsisbaráttu íra gegn Englendingum.
Hann stjórnaði uppreisnarliðinu í Dublin og
var einn þeirra, er undirritaði lýðveldisyfirlýs-
inguna. Hann særðist alvarlega í bardaganum.
Englendingar skutu hann bundinn á börwn,
þann 12. maí 1916.
atvinnulaus í Skotlandi 1896. Þá var vöxtur
mikill í þjóðfrelsis- og verklýðshreyfingu íra.
Stofnaði Connolly þá Irish Socialist Republican
Party (írska sósíalistiska lýðveldisflokkinn).
Næstu sjö ár bjó hann í Dublin með fjölskyldu
sinni. Kona hans hét Lillie Reynolds.
Á árinu 1898 byrjaði hann að gefa út blaðið
„The Workers Republic" (Verkamanna-lýðveld-
ið).
Það var erfið barátta, sem Connolly háði á
197