Réttur


Réttur - 01.11.1967, Side 22

Réttur - 01.11.1967, Side 22
inga á samkomulaginu, jafnvel að taka upp aftur 10% innflutningstoll. Þá áskildu Bretar sér ennfremur —, að ef samkeppnisaðstaða þjóðanna í framleiðslu á þessum frystu fiskflökum breyttist, þá myndu þeir endurskoða afstöðu sína. í þessu lá hótun frá Breta hálfu um að ef samkeppnisaðstaða Norðmanna breyttist, t. d. með útvíkkun landhelginnar, þá gætu þeir — Bretarnir — sagt upp gerðu samkomulagi! Stokkhólmssamningurinn er í 44 greinum og fjallar um margvíslega hluti, sem hér verða ekki raktir. En sérstök athygli skal þó vakin á 16. grein sáttmálans. Þessi grein fjallar um rétt þegna og fyrirtækja í einhverju EFTA- landi til atvinnureksturs í öðru EFTA-landi. Er greinin öll óljóst orðuð og teygjanleg og gæti því orðið mjög varhugaverð fyrir okkur íslendinga. Ýmisleg önnur atriði í sáttmálanum eru þess eðlis að brýn nauðsyn er á að fá á þeim nán- ari skýringar. Þetta er ríkisstjórninni Ijóst og hefur hún því skipað fjögurra manna nefnd, samkvæmt tilnefningu stjórnmálaflokkanna, og er verkefni hennar að kanna niður í kjöl- inn hverjar skuldhindingar við íslendingar göngumst undir með þátttöku okkar í EFTA og svo hinsvegar hver hagnaður okkar yrði. Nú þegar er þó hægt að benda á ýmislegt, sem leiðir af aðild okkar að EFTA. Sem kunnugt er er hlutur íslenzks iðnaðar í dag mjög bágborinn. Mikill fjöldi iðnaðar- fyrirtækja hafa ýmist dregið saman segl sín eða stöðvað rekstur sinn með öllu. Með þessu hefur skapast verulegt atvinnuleysi í stétt iðn- aðarmanna og er slíkt óheyrilegt. Ef ísland gengi inn í EFTA myndi nær því allur íslenzk- ur iðnaður veslast upp. Myndi þá skapast ó- hærilegt ástand því þáttur iðnaðar í atvinnu- lífi okkar íslendinga hefur um skeið verið geysimikill. Ef við gerðumst aðilar að EETA þá yrðum við að nema úr gildi alla verndartolla á margs- konar varningi. Þessir tollar hafa um mjög langt skeið myndað einn af meginstofnum ríkissjóðs. Þegar þessi tekjustofn væri úr sög- 202 unni yrði ríkissjóður að sjálfsögðu að afla sér tekna á annan hátt. Það er hætt við að sú leið til tekjuöflunar, sem valin yrði, yrði sölu- skaltur, einhver ranglátasti skattur sem fyrir- finnst. Því þar er hvert nef skattað algjörlega án tillits til efnahags. Gerðumst við meðlimir í EFTA værum við að mismuna þeim ríkjum, sem við höfum við- skipti við. Við höfum nú góða markaði bæði í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum og öðrum sósíalistískum ríkjum. Sem EFTA-aðilar vær- um við að beita þessi ríki diskrimineringu. Frá EFTA-löndunum myndum við flytja margskonar varning án þess að leggja á hann tolla, en samskonar vörur frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum yrðu tollaðar hér á landi. Síðast en ekki sízt er rétt að benda á að framtíð EFTA er allsendis óljós. Bretar og Danir sækja nú af kappi að því að komast inn í EBE og lýsa jafnframt yfir, að um leið og þeir hafa náð því marki muni EFTA verða lagt niður. Ef við gerðumst aðilar að EFTA gæti svo farið, að við værum að tjalda til einnar nætur og ánetjuðumst EBE þegar aðrar EFTA-þjóðir gengju í það bandalag. f ræðu og riti er oft talað um Finnland sem aukaaðila að EFTA. Það er ekki rétt. Árið 1961 mynduðu Finnland og EFTA-Iöndin sjö hinsvegar með sér sérstakt Fríverzlunarbanda- lag, s. k. EINN-EFTA. I stofnsamningi þessa nýja bandalags er gert ráð fyrir, að Finnar afneini bæði inn- flutningstolla og aðrar hömlur á ákveðnu að- lögunartímabili. Nokkrar þýðingarmiklar vörutegundir eru undanþegnar þessu ákvæði, t. d. olíu, benzín, kol og áburður. Finnar sömdu um þessa undanþágu í því skyni að vernda viðskipti sín við Sovétríkin. Þá voru í samningnum sérákvæði varðandi ýmsar iðnaðarvörur, sem Finnar framleiða sjálfir. Loks var Finnum heimilað að hafa í gildi

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.