Réttur - 01.11.1967, Síða 34
ANDRE
YANDA
ALÞÝÐU-
BYLTING
í
BURUNDI
Burundi er smáríki í Mið-Afriku, nágranni
Tanzaníu. Það er 27 þús. ferkílómetrar að
stærð, íbúar 3 milljónir.
214
Alþýðan í Burundi gerði byllingu í landinu
28. nóvember 1966 og kom á lýðveldi. Það
var Þjóðlegi einingar- og framfaraflokkurinn
(National Unity and Progress Party =
NUPP), sem fyrir byltingunni stóð. Og ólíkt
ýmsum þeim umbreytingum, sem nýlega hafa
orðið í Afríku, þegar afturhaldssöm öfl hafa
bylt framfarastjórnum, þá var í þetta skifti
erindrekum nýlenduveldanna steypt af stóli,
en fulltrúar alþýðu komust til valda.
Burundi var áður belgísk nýlenda.
NUPP var stofnað 1959. Stofnandinn var
höfðingi að nafni Louis Rvvagasore, mikill
ættjarðarvinur og góður leiðtogi, hvað eftir
annað fangelsaður af belgísku yfirvöldunum.
Ilugsjón NUPP var sjálfstæði og stefna til
sósíalisma.
Það var NUPP, sem knúði fram kosning-
ar undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Þær
fóru fram 18. september 1961. NUPP vann
stórsigur. Rwagasore varð forsætisráðherra.
En 13. október var hann myrtur að undirlagi
afturhaldsins og nýlenduherranna. En flokkur-
inn hélt baráttunni áfram og 1. júlí 1962 öðl-
aðist Burundi sjálfstæði. (Áður hét landið oft
Urundi og voru þá tvö ríki tengd saman:
Ruanda-Urundi). 18. september 1962 var Bur-
undi tekið í Sameinuðu þjóðirnar sem sjálf-
stætt ríki.
Afturhaldinu tókst síðan með allskonar véla-
brögðum og klofningi á NUPP að ná völdum.
En þeir, er til valda komust, voru spilltir menn
og eigingjarnir, er hugsuðu aðeins um að
auðgast á þjóðinni.
NUPP starfaði nú af miklum þrótti á laun,
afhjúpaði ríkisstjórnina og undirbjó byltingu.
Náði flokkurinn miklum áhrifum í hernum og
hjá æskunni. Þess vegna tókst byltingin 1966
og þjóðbyltingarráð var sett á stofn undir
forystu Michel Micombero.
Nú hafa verklýðsfélög, kvenfélög og æsku-
Iýðsfélög tekið til starfa af miklum þrótti.
Byrjað hefur verið á að skipuleggja sam-
yrkjubú. Vinnur flokkurinn og ríkisstjórnin
nú að því að koma á almennum félagslegum
framförum í landinu.