Réttur


Réttur - 01.11.1967, Side 35

Réttur - 01.11.1967, Side 35
NEISTAR Fjallræðan „Annaðhvort getur Fjallræðan stjórnað þessum heimi eða hún get- ur það ekki. Djöfullinn hefur rétt lil þess að stjórna, ef við látum hann gera það, en liann hefur eng- an rétt til að kalla stjórn sína kristna menningu." John Boyle O'Reilly (írsk frelsishetja). Auðmagnið „Auðmagnið er mjög djarft, ef það fær viðeigandi gróða. Ef það er öruggt um 10%, mun það hvarvetna beita sér; ef 20% eru örugg, verður auðmagnið ákaft; með 50% verður það fífldjarft; ef 100% eru í boði traðkar það öll mannleg lögmál undir fótum; og — ef 300% gróði er framundan, þá er ekki til sá glæpur, sem það myndi hika við né sú áhætta, sem það ekki tæki, jafn- vel þó hætta væri á að eigandi auð- magnsins yrði hengdur. P. J. Dunning, brezkur verklýðs- félagaleiðtogi, fulltrúi fyrir borg- aralega verkamannapólitík. — Tilvitnun hjá Karli Marx í „AuSmagninu". Málstaður „Er sósíalisminn draumur? Hann er ekki draumur, heldur málstaður; menn og konur hafa dáið fyrir hann, ekki fyrr á öldum, heldur á okkar tímum; þau eru í fangelsum fyrir hann, þræla í nám- um, eru í útlegð, verða öreiga vegna hans; trúðu mér, þegar menn þola slíkt vegna drauma, þá rætast þeir að síðustu.“ William Morris. Ranglæti „Ég stend aldrei upp til að á- varpa fund þeldökkra manna án þess að skammast mín fyrir minn eigin litarhátt, skammast mín fyrir að vera af mannflokki, sem hefur framið svo mikið ranglæti." William Lloyd Garrison, bandariskur brautryðjandi fyrir afnómi þrælahaldsins. Markalínur „Að því leyti, sem það vaxðar oss, held ég að það sé slæmt ef ein- hver maður, stjórnmálaflokkur, her eða stefna verður ekki fyrir árásum óvinanna, því að það mundi vera til marks um það, að vér hefðum að fullu og öllu hrapað niður á stig óvinanna. Það er gott, ef óvinirnir ráðast á oss, því að það sannar að vér höfum dregið skýrar línur milli vor og þeirra. Það er enn betra, ef óvinirnir ráðast að oss með ofsa og lýsa oss sem svörtum sauðum, sem ekkert gott verður um sagt. Það sýnir að vér höfum eigi aðeins dreg- ið skýrar markalínur milli vor og þeirra, heldur og að vér höfum náð talsverðum árangri í verki.“ Mao-Tse-Tung Frelsi „12. ágúst spurði ég háttsettan starfsmann í utanrfkisráðuneytinu (U.S.A.) hvort ríkisstjórn Banda- ríkjanna myndi sætta sig við árang- ur frjálsra kosninga, ef kommún- istar ynnu þær. Svarið var þetta orðrétt: „Spurning yðar er ekki raunhæf (,,realistic“). Ef kosningar eru raunverulega frjálsar, þá getur sigurinn ekki fallið kommúnistum í skaut, því raunverulega frjálsir ein- staklingar geta ekki greitt kommún- islum atkvæði. Ef sigurinn fellur kommúnistum í skaut, þá er það af því kosningamar eru ekki raun- verulega frjálsar, og þá getum við vart sætt okkur við árangurinn.“ Philippe Devillers, franskur sagnfræðingur í Viet Report í janúar 1966. r Utrýming „Sannir byltingarmenn hóta aldrei heilli þjóð með útrýmingu ... Við höfum skýrt og ótvírætt tekið af- stöðu gegn stefnu Ísraelsríkis, en við neitum ekki tilverurétti þess.“ Fidel Castro. Meðan miklir byltingarmenn eru á lífi, hafa yfirstéttirnar ætíð ofsótt þá vægðarlaust og mætt kenningum þeirra með algerum fjaldskap, æðis- gcngnu hatri og ósvífnustu rógburð- arherferðum. Að þeim látnum er hinsvegar venjulega reynt að gera þá að saklausum dýrlingum, — taka ]iá eiginlega í helgra manna tölu, — og vefa dýrðarljóma um nafn þeirra eins og til sátta við kúguðu stéttim- ar og til þess að blekkja þær, en reyna svo um leið að draga allan þrótt og reisn úr byltingarkenning- um þeirra og slæva byltingareggina. Lenín. 215

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.