Réttur


Réttur - 01.11.1967, Page 37

Réttur - 01.11.1967, Page 37
Ejvind Riisgaard, danskur vinstri sósíalisti, sem skrifað hefur bók um deiluna í S. F. („Konflikten i S. F.“), sem kom út í nóvember 1967, spáir svo fyrir afleiðingunum af klofn- ingi S. F.: 1. Verklýðsmeirihlutinn tapast, S. F. missir fyrri ávinning hvað þingsæti snertir, en sósíal- demókratar vinna ekki á. 2. Sósíaldemókratar taka aftur upp horg- aralegri stefnu. 3. Dönsk verklýðshreyfing „fagleg“, verður af einstöku tækifæri til meiri pólitísks þroska. 4. Lýðræðið í Danmörku glatar tækifæri til endurnýjunar og aukins vilja til að verja þjóð- arheildina. 5. Dönsk verklýðshreyfing mun tapa mögu- leikum sínum á þessari öld til að setja sósíal- ismann á dagskrá. Fyrri hlutinn af „spádómi“ hans hefur þeg- ar rætzt. Látum oss vona að dönsk sósíalistísk verklýðshreyfing læri það fljótt af hvernig fór, að meira rætist ekki. En íslenzk verklýðshreyfing má einnig af því læra: hve sterkur vinstri armur er henni nauðsynlegur, — hve róttæk stjórnarstefna er óhjákvæmileg, ef verkalýður og starfsfólk fær- ir flokkum sínum völd, — hve klofning er hættuleg, — og hver ógæfa of sterk embættis- mannaklíka sósíaldemókrata getur verið. SPÁNSKIR STÚDENTAR í desemberbyrjun 1967 héldu 5000 stúdent- ar fund í háskólanum í Madrid. Þeir kröfðust m. a. þess að: 1. Prófessorar, sem útilokaðir hafa verið frá háskólanum ævilangt,taki á ný uppkennslu. 2. Fangelsaðir stúdentar séu látnir lausir og málaferli gegn öllum stúdentum, sem kærð- ir eru fyrir myndun samtaka, séu látin nið- ur falla. 3. Lýðræðissamtök þeirra séu viðurkennd. Lögregla fasista fangelsar æ fleiri stúdenta, en hreyfingin breiðist út að sama skapi til annarra háskóla. Stúdentar í Barcelona, Sala- manca, Valencia, Zaragoza, Valladolid, Na- varra og víðar hafa látið samúð sína í ljósi. Fjöldi prófessora hefur tekið eindregna af- stöðu með stúdentunum. Frelsishreyfingin gegn fasistastj órn Francos vex í sífellu. KOMMÚNISTAR A SPÁNI Spánski Kommúnistaflokkurinn er sterkasta aflið á Spáni í baráttunni við Franco. Flokkur- inn vill umfram allt að komið verði á lýðræð- isstjórn á Spáni. í blaði flokksins „Mundo Obero“ er 20. des. 1967 birt mikil ályktun frá framkvæmdanefnd flokksins. Þar lýsir hann ástandinu og hinni brýnu þörf og miklu möguleikum á því að láta fasistastjórnina fara frá, og hvetur til einingar lýðræðisaflanna um að koma á aftur lýðræði á Spáni. Um leið og flokkurinn undirstrikar hina miklu nauðsyn á félagslegum endurbótum á slæmum kjörum spánskrar alþýðu, lýsir hann yfir því, að hann muni þó ekki gera þær umbætur að úr- slitaskilyrði fyrir samstarfi, heldur setur að- eins eftirfarandi skilyrði til algers samstarfs: 1. Komið sé á stjórnmálafrelsi fyrir alla án undantekningar. 2. Almenn sakaruppgjöf fyrir pólitíska fanga og útlaga. 3. Kosning stjórnlagaþings til að ákveða um framtíðarstjórnarfar á Spáni. Flokkurinn kveðst andvígur konungsstjórn og fylgjandi lýðveldi, en það yrði þjóðin sjálf að útkljá í frjálsum kosningum. Konungssinn- ar og lýðveldissinnar gætu þar keppt á jafn- réttisgrundvelli og hver, sem tapaði, yrði að hlíta vilja þjóðarmeirihlulans. En allir and- stæðingar núverandi fasistastjórnar yrðu að koma saman, hve ólíkar skoðanir, sem þeir svo hefðu á framtíðarstjórnarfari Spánar, og 217

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.