Réttur - 01.10.1981, Page 2
einnar alræmdrar skriffinnsku-stofnunar, fjárhagsráös. Þeim tókst aö
fækka árlega nýbyggðum íbúðum í Reykjavík úr 634 áriö 1946 niður í 284 árið
1951 og koma á því atvinnuleysi sem þeir óskuðu sér.
Eru þeir búnir að gleyma þessum ágætu áhrifum „leiftursóknar”?
Eða er þeim máske illa við að minnt sé á þau?
Finnst þeim betra að fá að stunda lýðskrumið í friði og ró — og Ijótt að
minnast á feril þeirra fornanl?
Og þó ferst þeim meira að segja óhöndullega að reka þetta lýðskrum, að
lofa öllum öllu — að nasista sið. Er það sundrungin innbyrðis, sem veldur
þeim vesaldómi? Eða er það hitt að þá vanti nú gersamlega foringjaefni,
sem hægt sé að ætlast til að fólk taki alvarlega og treysti?
Er manndómurinn ekki orðinn meiri en þetta hjá auðugustu mönnum
landsins með voldugustu áróðurstæki þjóðarinnar í höndum sér?
* * *
Ef til vill er þessum herrum líka oróió sama um hvernig kosningar fara.
Þeir treysta máske á að Bandaríkjavaldið muni koma þeim í stjórnarstólana
á íslandi með því að beita hér venjulegum brögðum sínum: hóta sumum
borgaralegu flokksforingjunum að þeir munu taka sér með hervaldi þá að-
stöðu, sem þeir vilja, ef hún verði ekki látin í té með „samningum”, — kaupa
aðra, — blekkja flesta — og fá þannig sitt fram: ísland i miðdepil kjarnorku-
vopnaflutninganna — og þæga stjórn.
Þetta er Ijóti leikurinn, sem hervald Bandaríkjanna hefur oftast leikið hér.
Og afleiðingar hans nú eru hættulegri en nokkrar hernámsaðgerðir þeirra
fyrr.
Því nú stefnir Reagan-stjórnin beint aö atómstriði í Evrópu — ef hún fær
því ráóið fyrir fólkinu, sem á að fórna. Og auóséð er á afstöðu
ofstækisfyllstu erindreka Nató á íslandi, sem um leið eru erindrekar íhalds-
ins, að beinlinis er stefnt að því að gera helst allt ísland að vigi Nató, svo
engin von sé að bjarga neinu af þjóðinni, þegar brjálæðingar árásarstefn-
unnar í Bandarikjunum láta til skarar skríða.
Það eru brátt síðustu forvöð fyrir íslendinga að átta sig á hvernig verið er
að leika þjóð vora — og forða lifi hennar meðan enn er tími til.
Janúar 1982.
178