Réttur - 01.04.1983, Blaðsíða 32
skuld, sem Akureyri standi í við Hallgrím
fyrir að gera „tímabil í ævi bæjarins ógleym-
anlegt með töku fjölda frábærra ljósm-
ynda“.
E.O.
SKÝRINGAR:
1 Sjá frásögn Ólafs Einarssonar í „Upphaf ís-
lcnskrar verkalýðshreyfingar, bls. 74.
2 „Saga Akureyrar" greinir m.a. frá eftirfarandi:
Þeir eru Sigtrygf>iir Jónsson, „snikkari11 frá
Espihóli, Snorri Jónsson, er mikið kom við bygg-
ingar og síðar varð kaupmaður, og tveir ungir
trésmiðir: Jónas Gunnarsson frá I Iraukbæ og
Sigtryggur Jóhannesson, báðir síðar nefndir trésm-
íðameistarar, bróðir Jónatans spítalaráðs-manns,
en vísað er til „Stefnis" 1902, 29.-31. tbl. um
upplýsingar. — Af öðrunt „timburmeistur-um" og
„snikkurum", sem Saga Akureyrar getur má nefna
Anton Jónsson, „timburmeistara" og skipasmið,
Jón Guðmundsson snikkara og Sigurð
Bjarnason snikkara, báðir síðar nefndir „timbur-
meistarar", Davíð Sigurðsson trésmíðameistari,
Frímann Jakobsson timburmeistari, faðir þeirra
Jakobs, kaupfélagsstjora KEA, og Svanbjarnar
bankastjóra, Guðjón Jónsson snikkari, en hann
dó 1867, svo hann mun ekki hafa komið við sögu
þeirra húsa, sem hér hafa verið rædd og svo er
um fleiri, sem eigi verður getið hér. Ennfremur
eru þar taldir eftirfarandi: Jón Chr. Stephensson
timburmeistari, Jónas snikkari Jónasson, Sigfús
snikkari Jónsson, er síðar tók að reka verslun
og var þá stundum kallaður „borgari" (dáinn
1901), Páll Magnússon „timburkaupmaður", fór
til Vesturheims um aldamótin. Bjarni Einarsson
skipasmiður mun aðallega hafa fengist við þá hlið
smíða. — Iðnaðarmannafélag var stolnað 1904
og séu bækur þess til má máske finna nöfn þeirra
manna, eigi aðeins „timburmeistara", heldur og
almcnnra trésmiða, er byggðu þau hús, er settu
sinn sérstaka tígulega svip á Akureyri um og eftir
aldamótin síðustu.
Oddeyri ca. 1895.
96