Réttur


Réttur - 01.04.1983, Qupperneq 38

Réttur - 01.04.1983, Qupperneq 38
aö þaö vekti áhuga þeirra. Síðustu árin leiðbeindi Ólafur svo um sögu verkalýðs- hreyfingarinnar í Háskóla íslands. Hér hefur nokkuð verið tínt til en þó ekki nema brot. Eins og ég gat um fyrr urðu árin sem hann hafði til fræðistarfa ekki mörg, en það sem hann afkastaði var bæði mikið að vöxtum og þar kom margt nýtt fram úr sögu verkalýðshreyfingarinn- ar sem skiptir sköpum um viðhorf manna til veigamestu kaflaskipta í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Þessi rit og greinar vil ég nefna hér, en listinn er alls ekki tæmandi: — Upphaf íslenskrar verkalýðshreyf- ingar 1887-1901. Pessi bók er meginrit Ólafs, gefin úr af Menningar- og frœðslu- sambandi alþýðu í Reykjavík 1970. — Bernska reykvískrar verkalýðshreyf- ingar frá 1887-1916. Páttur í Reykjavík í 1100 ár, útgéfandi Sögufélagið og Reykja- víkurborg 1974. — Agrip af sögu Félags járniðnaðar- manna, afmœlisrit 1970. — Frá landnámi til lúterstrúar, þættir úr Islandssögu fram til 1550, útgefandi Heimskringla Reykjavík 1975. — Gúttóslagurinn 9. nóvember 1932, ásamt Einari Karli Haraldssyni, gefið út í Reykjavík 1977. — Sendiförin og viðrœðurnar 1918. Sendiför Ólafs Friðrikssonar til Kaup- mannahafnar og þáttur jafnaðarmanna í fullveldisviðræðunum. í Sögu, tímariti Sögufélagsins XVI Reykjavík 1978. — Fjárhagsaðstoð og stjórnmálaágrein- ingur. Áhrif erlendrar fjárhagsaðstoðar á stjórnmálaágreining innan Alþýðuflokks- ins 1919-1930. í Sögu X'VII Reykjavík 1979. — Draumsýn Ólafs Friðrikssonar árið 1914. í Söguslóðir, afmælisriti Ólafs Hans- sonar. Útg. Sögufélagið Reykjavík 1979. — Pættir úr baráttusögu Sóknar, afmælis- rit árið 1975. — íslands arbejderbevægelses historie 1887-1971 í Meddelelser om Forskniong í Arbejderbevœgelsens Historie Nr. 12 1978, Kaupmannahöfn 1979. Hér hefur aðeins það helsta verið talið og þó áreiðaniega eitthvað sem vantar, því ekki hefur verið unnt að fara sem skyldi yfir þau rit sem Ólafur skrifaði helst í. í þessari upptalningu er þó sleppt öllum greinum í Rétti og Pjóðviljanum. Ekki hef ég neina möguleika á því að meta fræðistörf Ólafs í einstökum atrið- um. Þó er ljóst að ýmsir þættir þeirra setja mark sitt á viðhorf þeirra sem skoða sögu íslenskra sósíalista frá liðnum áratugum. Árið 1978 var Ólafur í húsi Jóns Sigurðs- sonar í Kaupmannahöfn. Þar fór hann yfir mikilvæg gögn úr samskiptum íslenskra Alþýðuflokksmanna við sósíaldemókrata á Norðurlöndunum, einkum í Danmörku. í grein seni Ólafur skrifaði um þetta skeið kemur fram að Alþýðuflokkurinn fékk mjög verulega fjárhagsaðstoð frá dönsk- um sósíaldemókrötum 1928. Augljóst er af bréfaskriftunum að þessi fjárhagsað- stoð var ein ástæða þess að kommmúnistar voru reknirúr Alþýðutlokknum árið 1930. Þannig urðu útlend áhrif til þess — ekki í síðasta sinn — að tvístra íslenskum sósíalistum. Þetta sýndi Ólafur fram á með skrifum sínum, og þar með var hrundið villandi kenningum um það að kommúnistar hefðu í rauninni tekið sig út úr Alþýðuflokknum af þjónkun við kröfur Kominterns. Þessi niðurstaða Ólafs mark- ar því veruleg þáttaskil í rannsóknum á sögu íslensku verkalýðshreyfingarinnar. Ólafur starfaði mikið að útgáfu Réttar ásamt Einari föður sínum. Hann hafði 102
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.