Réttur - 01.04.1984, Blaðsíða 16
ÞÓRDÍS JÓNASDÓTTIR:
A ð hálfnuðu verki
[,,Réttur“ ryfjar hér upp eitt af hinum
gömlu baráttukvæðum, sem ort voru fyrir
hálfri öld til hvatningar í viðureigninni
við forinju fátæktarinnar. Það er ekki
vanþörf á slíku eins og hin forríka yfir-
stétt íslands hagar sér nú.
Þórdís Jónasdóttir var fædd 3. júní
1902 að Miklabæ í Blönduhlíð. Foreldrar
hennar voru Anna Jónsdóttir og Jónas
Jónasson, kunnur fræðimaður og skáld,
kenndur við Hofdali. Þórdís stundaði
nám á Kvennaskólanum á Blönduósi
1920-21 og var við hússtjórnarnám í
Reykjavík veturinn eftir. Hún giftist 1929
Páli Þorkelssyni frá Ingveldarstöðum og
eignuðust þau einn son, Jónas Þór mál-
arameistara. Þórdís reit allmikið, bæði í
bundnu og óbundnu máli, og birtist margt
af því í tímaritum. En þetta kvæði er úr
„Kotungi“, fjölrituðu blaði kommúnist-
anna á Sauðárkróki og birtist í 5. árgangi
þess 1. tbl. 7. nóv. 1937.
ÞÓRDÍS JÓNASDÓTTIR:
Að hálfnuðu verki
Nú þagna hin þungu hamarshögg í grjóti
það kvöldar bak við skóginn eftir dagsins önn og þys.
Og máninn kveikir á hálfrönd yfir heiðum fjallabláma,
hátt til vesturs gnœfir múrsins jökulgljáa ris.
Þórdís Jónasdóttir
Þórdís andaðist 12. des. 1942, aðeins
fertug að aldri, en sjúkdómsins, berkl-
anna, er leiddi hana til bana, hafði hún
kennt allt frá 1930 og háð sína baráttu við
þann vágest.j
80