Réttur


Réttur - 01.04.1984, Page 27

Réttur - 01.04.1984, Page 27
Vér höfum heyrt varnaðarorðin og hvað við liggur. Bandaríska auðvaldið og þý þess hér treysta því máske að hér sé nú orðin þjóð með hugann forheimskvaðann og hjartað kalið. f>ví séu þessvegna allir vegir færir. En minnumst þess, íslendingar, að hér á landi lifðu aðeins 38 þúsund manns fyrir tveim öldum. Vér hófum oss úr niðurlægingu og eymd þess tíma upp til þess hátindar aldarþriðjungsins 1930-60, er ljóma sló á heiminn af rauðum bókmenntum fslands, að aldagömul forinja fátæktarinnar var btotin á bak aftur af alþýðu lands vors, að lýðveldi var endurreist á Þingvöllum og landhelgin unnin úr hergreipum stór- velda. Vér getum unnið slík afrek á ný. Vér höfum að vísu ekki eins langan tíma og forðum. En nokkra áratugi máske, því þótt hátt láti i hervaldinu bandaríska, þá er það hrætt við að tendra heimsbálið, hrætt við mátt sósíalísku ríkjanna, hrætt við uppreisn skuldaþjóðanna, hrætt um sjálfan kapítalismann. Ef álíka fjöldi íslendinga og hér var fyrir tveim öldum, æskan og fullorðið fólk, sem veit hvað það vill, vinnur að því sleitulaust með heiðan hug og hjartað heitt að losa andlegu fjötrana af þjóðinni, uppræta spillinguna, þá á ísland enn von — og þá kemur sú tíð að fólkið þorir fjötrana að brjóta og frelsis að njóta á ný á farsældar fróni. SKÝRINGAR: * Orð þetta er fengið að láni frá Stephuni G. úr kvæði hans „Mammon" og er það kvæði birt hér á eftir, því einkum síðasti kafli þess á erindi til fslendinga nú, þó ort sé fyrir 70 árum (1914). Hluti af mótmælafundi Sósílaistaflokksins 16. maí 1951 gegn hernámi Bandaríkjahers

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.