Réttur - 01.04.1984, Page 35
Mótmælafundur við komu George Bush sumarið 1983
krakkar sem láta ekki deigan síga, halda
uppi merki ÆFAB. Svo vonandi verður
ÆFAB sterkt afl vinstrimanna sem kílir
niður frjálshyggjupostulana sem núna
v*lja eiga heiminn.
Á þessum stutta tíma er ÆFAB hefur
starfað hefur þó margt gerst. Haldnir
hafa verið kappræðufundir við Samband
ungra sjálfstæðismanna, ÆFAB hefur
tekið þátt í útifundum og öðrum fundum
nieð herstöðvarandstæðingum, E1 Salva-
dor-nefnd og fl. til að mótmæla hernámi
°g hernaðarbandalögum. í flokksmiðstöð
AB hafa ýmsir fræðslu og umræðufundir
verið, félagsmálanámskeið og fl. ÆFAB
er núna að undirbúa fræðsluefni um sós-
'ulisma og nokkur einstök málefni úr ís-
lenska þjóðfélaginu. Útgáfustarfsemi er
,T>jög blómleg, fjöldi kynningarbæklinga
°g dreifirita hafa komið út en hæst ber
þó blaðið Birtir, almennt tíðindablað
vinstrimanna, sem kom fyrst út snemma
á þessu ári og var dreift ókeypis í skóla og
á fleiri staði við gífurlegan fögnuð viðtak-
enda.
Ekki er bara beinhörð pólitík hjá
ÆFAB, brosið og léttleikinn er ekki langt
undan til að krydda pólitíkina. Núna eru
farnar árvissar hvítasunnu- og sumarferð-
ir út í náttúruna. Ýmsar skemmtarnir eru
líka naidnar t.d. skírnarhátíð á skírdag
sem er hátíðardagur ÆFAB en þar er
minnst skírnar félagsins.
ÆFAB á ábyggilega eftir að skila góðu
innleggi í baráttu íslenskra sósíalista.
ÆFAB eru alls ekki deyjandi samtök,
heldur stækkandi félag ungra vinstrisinna
sem vilja berjast fyrir friði, jafnrétti og
bræðralagi öllum til handa.
99