Réttur


Réttur - 01.08.1986, Side 18

Réttur - 01.08.1986, Side 18
VIII Þetta verður látið nægja um Baldurs- heimsheimilið en fleiri móta mannfólkið en foreldrarnir einir. Á Litluströnd, sem er næsti bær, bjó Jón Stefánsson, þekkt- ari undir nafninu Þorgils gjallandi. Það var einmitt á þessum árum sem hann hóf að birta sögur sínar undir því nafni, og beitti sér þar hart gegn ýmsum ríkjandi hefðum og kreddum ekki síst innan kirkj- unnar. Mikill samgangur var á milli bæj- anna, enda Jakobína kona Jóns og Sol- veig í Baldursheimi systur. Mun Þórólfur snemma hafa orðið handgenginn Jóni og góður vinur hans allt til dauðadags 1915. Hefur skáldið á Litluströnd vafalítið haft á hann drjúg áhrif ekki síst í trúmálum, enda gerðist þess skammt að bíða að hinn ungi maður lenti í ritdeilum um þau í sveitarblöðum. Til marks um tíðarand- ann má geta þess hér að saga Þorgils gjall- anda: „Upp við fossa“ var bannfærð á velflestum heimilum fyrir óguðlegt inni- hald sitt. Þórólfur minntist hans síðar í grein í Skírni eftir lát hans. Loks verður svo að geta fræðslumeist- ara Þingeyinga, Benedikts frá Auðnum, en í sýslubókasafnið sóttu margir sér and- lega næringu og var Þórólfur einn af þeim. Til eru nokkur bréf sem þeim hafa farið í milli. Hið elsta þeirra er frá 14. maí 1911, en þá er Benedikt fyrir nokkru fluttur til Húsavíkur. Af þessu bréfi Ben- edikts má ráða að Þórólfur hefur beðið hann að senda sér bækur og nefnt ákveðn- ar til. Því svarar Benedikt svo: „Bækurnar vil ég útvega fyrir þig og get það efalaust en geri ekki bráðlega pöntun ; bækur. Bréf Ibsens eru til hér í safninu, og hæpið að taka þau fram yfir aðrar fjölhæfari bækur handa sveitabókasafni. Ég vildi heldur útvega gott tímarit eða nýja Socialökonomi, eða annað al- mennt menntandi. Þessi sérstúdíum eru fremur óholl ungu fólki, en almenna yfirlitsþekkingin og skilningur á táknum tímanna og rás viðburðanna er of sjaldgæft og of lítið ástundað. Þess vegna verða umbótatilraunirnar hjá okkur, og Iöggjaf- arstarfið að sínu leyti, eins og Parísarmóðurinn sem kvenfólk eltir. Hann er 2-3 ára þegar hann kemst hingað, og tveir eða þrír nýrri liggja á milli. Á líkan hátt erum við að bysast við að koma á hjá okkur pólitískum umbótum eða ástandi, sem aðrar þjóðir nú eru að losa sig við, eða vildu fegnar vera lausar við ef þær gætu það nema á löngum tíma. Af sömu ástæðu lærum við ekkert af nýrri reynslu annara þjóða, en erum að snúast í 100 ára gömlum hugmyndum og bysast með dauð og rotin hræ gamalla hugsjóna og út- lifaðra, sem við þó ekki trúum á.“ Um haustið þetta sama ár skrifar Þór- ólfur Benedikt um leið og hann skilar bókum og biður um „einkum nýrri rit um samvinnu- og kaupfélagsskap, auk þess að nefna eitthvað eftir Hamsun og Jakob Knudsen. Undir lok bréfsins segir hann síðan frá því að Benedikt Björnsson [á Húsavík] hafi þá fyrir skömmu flutt tvo fyrirlestra í Mývatnssveit og segir: „Hræddur er ég um að þeir skelli utan á æði mörgum, því undarlega er almenningur Iokaður og tornæmur á samvinnuhugsjónir og jafnaðar- stefnur, tel ég það einkennilegt þar sem starfað hefir elzta kaupfélag landsins og hugsjónamenn. Hver er orsökin?“ IX Og innan tíðar var merkið hafið til að „kynna þjóðinni skoðanir þeirra manna, sem mestu þykir um vert, og frekast valda straumhvörfum í félagslífi þjóðanna. Og í öðru lagi á þann hátt að benda hreinlega og hispurslaust á það sem aflaga fer í fé- lagslífi íslendinga og óréttlátt virðist; og leitast við að samrýma það bezta úr reynslu annarra þjóða í samvinnu- og skipulags- málum, innlendum staðháttum,“ svo að vitnað sé í upphafsgrein tímaritsins RÉTTAR, sem Þórólfur hóf að gefa út veturinn 1915-16, þar sem hann ræðir um hlutverk ritsins. Þar er greinilega ekki 130

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.