Réttur - 01.08.1986, Síða 19
Baldursheimur um 1940.
ætlunin að „snúast í 100 ára gömlum hug-
myndum“ eins og Benedikt frá Auðnum
hafði áður fundið að í bréfinu sem vitnað
var til hér að framan. Og hér skyldi einnig
gera almenning opnari og næmari fyrir
samvinnuhugsjónum og jafnaðarstefnum,
og freista þess að þar með fækki þeim
sem slík fræðsla „skelli utan á.“
Svo vill til að varðveist hefur bréf frá
Þórólfi til Benedikts, skrifað í Reykja-
vík 28. febrúar 1915, en þann vetur
dvaldist hann fyrir sunnan. Þar segir hann
m.a.:
„... sendi þér línur þessar aðeins til að skjóta
að þér einni hugmynd, sem eg er að berjast með.
Hún hefir mest magnast nú í ferðinni, af því eg
hefi fundið svo átakanlega til þess, hve þjóðin er
gersneidd því að vita nokkuð um þá erlendu
strauma og skoðanir, sem þekktastar eru í Ping-
eyjarsýslu. Eg á við „Georgisma" og samvinnu-
hugsjónir."
Síðan fer hann nokkrum orðum um
óstand „verslunaragenta“ og óheilindi í
pólitík og segir að svo búnu:
„Hugmyndin sem eg vildi hreyfa við þig er sú
að nokkrir góðir og vel hugsandi menn úr ýms-
um landshlutum myndi félag með sér til þess að
gefa út rit næsta sumar með 4-5 fræðandi og
hvetjandi ritgerðum um „Georgisma“ og bænda-
og verkamannafélög erlendis og nauðsyn þeirra
hér.
Fyrst hreyfði eg þessu við kennarana á Hvann-
eyri þá Pálana [Jónsson og Zophoniasson]. Páll
Jónsson er eindreginn og heitur „Georgisti“, fús
til að rita í þá átt. — Ennfremur hafa þeir tekið
hér ágætlega í það Jónas í Hriflu, Guðbrandur
131