Réttur - 01.08.1986, Side 27
lendur og Morið giftust 1939 og var
hjónaband þeirra gæfusamt. Morið stóð
við hlið Erlendar í öllu hans stríði, var
honum stoð og stytta í harðri baráttu lífs
hans allt til dauðadags.
Með Erlendi er kvaddur einn af bestu
sósíalistum og þjóðfrelsisleiðtogum
Norðurlanda.
Við þökkum honum alla hans hetju-
•egu baráttu fyrir rétti smáþjóðanna,
sinnar eigin og annarra. Við þökkum
honum óþrjótandi elju hans í baráttunni
fyrir heill og réttindum vinnandi stétta.
Og síðast en ekki síst skal honum þökkuð
vinátta og persónulegt samstarf að sömu
hugsjónum — og færeysku þjóðinni ósk-
að þess að hetjuskapur hans, hugsjónaást
og stefnufesta megi lifa með henni og
hjálpa til þess að leiða hana til endanlegs
sigurs.
Einar Olgeirsson.
RITVERK ERLENDAR:
I blaðinu „14. september" og „Búgvin“, gefið út
1 Höfn, er fjöldi greina eftir hann. í „Sjón og
Seiggu'1, afmælisriti, er gefið var út á 70 ára afmæli
hans er úrval úr greinum hans, sérstaklega úr 14.
september.
„Fólksflytingin úr Föroyum““ 1943.
„Föroysk búreising" 1945.
„Föroysk stjórmál" 1945.
„Samfélagsrit“ er tímarit, sem kom út 1945 til
1952 og var Erlendur ritstjóri þess og reit mikið í
það.
Fiskveiði — Fiskimenn. 2 bindi um útvegssögu
Færeyinga frá upphafi til 1940. (1961).
t.Fiskivinna og Fiskivinnumál“, 3 bindi er fjalla
um tímabilið 1940-1970. Komu út á árunum 1979 til
1981. Eru öll þessi fimm rit hin stærstu, er hann reit.
Foroya soga. Stjórnarviðurskipti frá landsnámstíð
91 1298. — Kom út 1964.
Foroya soga. Úr einaveldi í amtsveldi. Stjórnar-
viðurskipti 1834-54. — Kom út 1965.
Quo vadis — Foroyar. (Hvert stefna Færeyjar).
Grein sem er 11 síður, sérprentuð úr tímaritinu
„Syn og Segn“ 1971.
„Hin vonda samviska Norðurlanda“. Erindi um
norræna samvinnu, sem Erlendur flutti í útvarpið á
Ólafsvöku 1977 og birt er í „Rétti“ 1977, bls. 175-
184.
„Aldrig kan et folk forgá“ — som ikke vil det
selv. — Skiptist í 5 kafla, er 28 síður, útgefandi
Söguútgávan 1986.
Af eftirmælum, sem birtst hafa í íslenskum blöð-
um um Erlend, skal sérstaklega minnst þess, er
Guðmundur Arnlaugsson ritar um hann í Morgun-
blaðið 6. júlí og er að ýmsu stuðst við það hér
sökum þess hve gott og ýtarlegt það er. Einng var
góð grein í „Þjóðviljanum“ 22. júnt eftir Árna
Bergmann: „Erlendur, Færeyjar og við“.