Réttur - 01.08.1986, Síða 33
Skúli Guðjónsson
frá Ljótunnarstöðum
Æviminning og kveðja
Með Skúla Guðjónssyni er fallinn í valinn einn besti fulltrúinn, sem sósíalism-
inn hefur átt í íslenskri bændastétt, og rithöfundur af sérstakri gerð, sem stund-
um nær í einstökum greinum sínum hátindi þess, sem ritað hefur verið á íslenskri
tungu á þessu sviði, svo sem í greininni „Tveir á báti“, einstakri í sinni röð vegna
hvortveggja í senn „humors“ þess sem yfir greininni hvílir og hins djúpa skilnings
á mannlífinu, er bak við býr.
Skúli var fæddur 30. janúar 1903 að Ljótunnarstöðum í Hrútafirði. Hann
kvæntist 1936 Þuríði Guðjónsdóttur frá Heylæk. Hófu þau búskap á Ljótunnar-
stöðum, en Þuríður andaðist 1963. Skúli varð fyrir þeirri ógæfu að missa sjónina
1946, en við þeim mikla missi brást hann með einstæðum hetjuskap. Reit hann
síðan á blindraritvél allt til dauðadags, 21. júní 1986.
Skúli hóf snemma afskipti sín af þjóð-
félagsmálum, bæði að rita og reyna að
skipuleggja menn til baráttu fyrir sósíal-
isma.
Einhver fyrsta grein, sem ég þekki eftir
hann er „Jósafat og Jukki“ í 2. hefti Rétt-
ar 1934, þessi vægðarlausa, en leiftrandi
snjalla skilgreining á stéttaskiptingunni á
Islandi. Og síðan rekur hver greinin aðra,
— og seinna hver bókin aðra.
Hitt er almenningi minna kunnugt hver
skipulagsstörf hann vann í þjónustu hins
góða málstaðar, sósíalismans, og skal hér
nokkuð frá því starfi greint.
Arið 1933, þann 22. júlí stofnar hann
„Félag róttækra alþýðumanna“ að Borð-
eyri. Er í lögum þess ákveðið að „tilgang-
ur félagsins sé að glæða stéttarvitund al-
þýðu og kynna sósíalismann.“ Ennfremur
segir að breyta megi félaginu í deild úr
Kommúnistaflokki íslands, ef samþykkt
sé á tveimur félagsfundum í röð.
Félagssvæðið er Bæjarhreppur. Skúli
setti fundinn og tilnefndi Guðmund Ben-
onýsson Laxárdal sem fundarstjóra, en
ritari var Friðbjörn Benonýsson, Laxár-
dal. Auk þessara voru stofnendur: Guð-
mundur Sigfússon, Stóru Hvalsá, Hjörtur
Guðjónsson, Ljótunnarstöðum, Ólafur
Pórðarson, Hrafnadal, Guðmundur
Þórðarson, Bæ, Steingrímur Sigfússon,
Bæ, Jón Kristjánsson, Hjörseyri, Jónatan
Einarsson, Borðeyri, og Jónas Benonýs-
son, Borðeyri. Og á næsta fundi bættust 3
félagar við: Björn Kristmundsson, Borð-
eyri, Ólafur Stefánsson, Kolbeinsá og
Lárus Sigfússon, Stóru Hvolsá. — Björn
varð formaður Verkalýðsfélagsins á
Borðeyri, er átti í hinni sögulegu og
hörðu deilu 1934.
145