Réttur


Réttur - 01.08.1986, Síða 35

Réttur - 01.08.1986, Síða 35
Skúli ásamt vini sínumm, Pétri Sumarliðasyni, kennara. megin að muna líka eftir Edgeworth-segla- tóbakinu í pípuna, — slík hefur velþókn- un hans verið á öllu þínu starfi og striti. — En ekki efast ég um að þið verðið ekki búnir að sitja lengi að sumblinu, þegar hann Pórbergur kemur, til að fá fréttir af Elskunni sinni, hún var jú kennari þinn og þú manst eftir heimsókninni hans forðum á Ljótunnarstöðum. — En þegar hann bórbergur kemur, þá bregður hryggðar- svip á andlit þíns góða ferðafélaga, hans guðs þíns, og hann segir sorgmæddur við ykkur báða, fyrst til Þórbergs:2 „Ekki hef ég enn efnt loforðið, er ég gaf þér forðum, Þórbergur minn, um „að breyta skipulaginu“ og þú varðst svo hrif- inn af að nú yrði „bylting í ríki útvaldra“. „Þetta er ekki eins auðvelt og þið hald- ið félagar góðir. Ég er ekki almáttugur og get ekki gert slíkt nema með góðra manna hjálp — og þeim verð ég að smygla inn í himnaríki, eins og þegar ég kom nú bakdyramegin með hann Skúla minn, því ekki dugar að fara gegnum gullna hliðið hans Péturs. Þar vaða þeir inn þúsundum saman prestar og prelátar, framagosar og farisear, hrópa bara „Já, já, herra minn“ við öllu, sem Pétur spyr um — og þegar allur þessi lýður er kom- inn hingað inn er hann engu betri en hann var á jörðinni niðri. — En þetta fer nú að batna þegar ég fæ menn eins og ykkur hingað. Við skulum nú taka til óspilltra málanna, því bráðum koma fleiri, — ég reyni að gæta þess að missa þá ekki í hinn staðinn, svo þeir verði ekki á undan að 147

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.