Réttur - 01.08.1986, Blaðsíða 38
Auðdrottnar
B andaríkj anna,
V2% íbúanna,
eiga allt frá þriðjungi
allra eigna
— og meira en helming atvinnutækja
utan hlutabréfamarkaðs
í júlí 1986 voru eftirfarandi fréttir sagð-
ar í Ríkisútvarpinu:
„Við sögðum frá því í fréttum fyrir
skömmu að Hagstofan í Bandaríkjunum
hefði komist að raun um það, að mikill
munur væri á eignum hvítra manna og
blökkumanna. Heimili hvítra manna eru
að meðaltali skráð fyrir tífalt meiri eign-
um en heimili blökkumanna. Nú hefur
verið gefin út skýrsla, sem sýnir að stór
hluti auðs er í höndum tiltölulega fárra
einstaklinga.“ Og nú tekur Stefán Jón
Hafstem fréttamaður úvarpsins í Banda-
ríkjunum við:
„Samkvæmt nýrri skýrslu nefndar sem
vinnur að endurskoðun skattalaga fyrir
þingmenn Demókrata, er nú stærri hluti
eigna í höndum færri manna en nokkru
sinni fyrr. Hálft prósent Bandaríkjamanna
á 35% allra eigna. Þetta hlutfall er nú
mun hærra en fyrir rúmlega tíu árum. Þá
var þetta hálfa prósent íbúa landsins
skráð fyrir fjórðungi, 25% eigna. Þetta
smábrot af mannfjöldanum hefur því
aukið eignahlutfall sitt um tíu prósent á
tiltölulega stuttum tíma og er nú skráð
fyrir 35% eigna sem fyrr segir.
Þetta segir þó ekki alla söguna. Sé aðeins
tekið eignahald í atvinnulífinu, fyrst al-
menn hlutabréf, þá á þetta hálfa prósent
manna 46% eigna. Séu teknar eignir í at-
vinnulífínu sem eru ekki á almennum
hlutabréfamarkaði, á hálft prósent
manna 56% eigna. Þetta eru þeir sem eru
kallaðir hér í Bandaríkjunum „the super
rich“ eða „hinir vellauðugu“. I þessari
flokkun er um að ræða 420.000 heimili
sem eru að meðaltali skráð fyrir tveimur
og hálfri milljón dollara hvert. Til saman-
burðar má geta þess að heimili hvítra
Bandaríkjamanna eru að jafnaði skráð
fyrir innan við fjörutíuþúsund dollurum
og meðaltal heimila blökkumanna er
rúmlega þrjúþúsund dollarar. Það er deg-
inum Ijósara að í þessum hópi hinna vell-
auðugu er meðaltal hins vegar villandi,
því efsta brotabrotið af heildaríbúafjöld-
anum á stóran hlut af því sem þetta hálfa
prósent íbúanna er skráð fyrir.
150