Réttur - 01.08.1986, Síða 39
Fatækrahverfi í Baltimore. Ljósm. Jacob Holdt.
Það er auðvitað ekki tilviljun að þessi
könnun var gerð nú, þar sem fyrir stendur
hreyting á skattalögunum. Skattastefnan
undanfarin ár er einmitt talin ástæðan fyr-
>r því að hinir ríku hafa orðið ríkari eins
og oft er sagt. Á meðan laun lækkuðu hjá
lægst launaða fólkinu, hækkuðu skattar í
raun. Á sama tíma gerðist það hjá milli-
stéttinni að verðbólgan ýtti henni sífellt
ofar í skattstiganum. Hins vegar lækkuðu
skattar hjá hinum auðugustu, ef þeir
borguðu yfirleitt nokkra skatta. Það á
jafnt við um einstaklinga og fyrirtæki, til
dæmis var skýrt frá því í sjónvarpsfréttum
1 gær, að helstu fyrirtæki hergagnafram-
leiðenda hefðu hagnast um tugi milljarða
dullara undanfarin ár, en einungis borgað
smábrot í skatta, eða enga. Viðbrögð við
svona tölum eru misjöfn. Sumir telja að
þetta sanni að hækka verði skatta á hina
ríku, eða ríkir eigi að taka að sér dreif-
ingu hluta þessa auðs. Aðrir telja þvert á
móti, þetta sé einmitt æskilegasta niður-
staða hagkerfisins, ætlunin sé alls ekki að
skipta auðnum jafnt. Það sé samkeppnin
sem um hann gildi. Þá benda enn aðrir á,
að þó hinir ríku hafi orðið ríkari, þá hafi
allir aðrir einnig orðið ríkari. Það er að
vísu umdeilt en breytir ekki því, að hinir
fáu sem eru vellauðugir, hafa orðið enn
auðugri, hraðar og meir en allir hinir.“
„Þetta er Stefán Jón Hafstein sem talar
frá Bandaríkjunum.“
151