Réttur


Réttur - 01.08.1986, Page 45

Réttur - 01.08.1986, Page 45
tvenns konar: Annars vegar lauslæti í peningastefnu ríkisstjórna Vesturlanda í byrjun áratugarins og skömmu fyrir hrun alþjóðagjaldeyriskerfisins sem ríkti á sjötta og sjöunda áratugnum (þ.e. svo- kallað Bretton-Woods-kerfi frá 1944 sem byggðist á því að gengi gjaldmiðla Vest- urlanda var bundið fast við gengi Banda- n'kjadals). Stóraukinn viðskiptahalli Bandaríkjanna í byrjun áttunda áratugar- ins leiddi, samkvæmt McCracken-skýrsl- unni, til stórkostlegrar aukningar pen- ingamagns á Vesturlöndum og skorts á aðhaldi í utanríkisviðskiptum. Aukið at- vinnuleysi á árunum 1970 og 1971 leiddi þar á ofan til þess að ríkisstjórnir Vestur- landa gripu til þensluaðgerða í peninga- málum og ríkisumsvifum, en þessar að- gerðir juku enn frekar verðbólguna á Vesturlöndum. Hins vegar er verðbólgan rakin til sam- félagslegra breytinga á Vesturlöndum á síðustu þremur áratugum. Hér er átt við auknar neyslukröfur launþega og vænt- 'ngar um að full atvinna yrði ávallt tryggð. Samkvæmt skýrslunni hefur stór hluti launþega í dag ekki upplifað tímabil heimskreppunnar á fjórða áratugnum, en miklar launakröfur þessara „ungu“ laun- þega leiða til stöðugt aukins framleiðslu- hostnaðar sem er velt út í verðlagið. Það stóð ekki á lausnum á verðbólgu- vandanum í 60 síðna McCracken-bækl- ’ngnum. Fyrsta skrefið sem stíga yrði var Sagt vera að auka atvinnuleysi til skamms tirna eða þar til verðbólga hefði minnkað. ^íöan skyldi atvinnuleysið minnkað smám saman að nýju þar til „jafnvægi“ hefði náðst á vinnumarkaðnum eða ni-ö.o. þar til laun hefðu lækkað nægilega ttt'kið. Hér er því krafist niðurskurðar á °pinberri þjónustu, velferðarstofnunum °g launum. Ríkisstjórn Verkamannaflokksins gerði þessa stefnu að sinni og hóf niðurskurð- inn. Sömu sögu er að segja af öðrum ríkisstjórnum sósíal-demokrata í Evrópu; þær lögðu einnig á flótta og vörpuðu frá sér bitlausu vopni keynesismans á undan- haldinu. Leiftursókn nýfrjálshyggjunnar og peningamagnskenninga var á næsta leyti og helsta vígi „hlutlægrar“ og „vís- indalegrar“ stefnumörkunar í efnahags- málum, stofnanir OECD voru fallnar í greipar hægrisinnaðra, nýklassískra hag- fræðikenninga. Niðurskurðarstefna Verka- mannaflokksins og launastefna hans á seinni hluta áttunda áratugarins leiddi til stóraukinna átaka milli forystusveitar flokksins og almennra flokksfélaga og sömu sögu er að segja af launþegahreyf- ingunni. Almenningur missti trúna á Verkamannaflokknum og tómarúm skap- aðist í breskum stjórnmálum. Þetta tóma- rúm nýttu öfgasinnaðir nýfrjálshyggju- menn sér í íhaldsflokknum og boðuðu einfaldar lausnir og trú á hinn sterka leið- toga: Járnfrúin, Thatcher, birtist sem hinn frelsandi leiðtogi, eins konar nútíma Joan D’Arc-hnignunar breska auðvalds- kerfisins. í ljósi reynslunnar er Thatcher þó aðeins skopmynd kynsystur sinnar. Grunnþættir tatcherisnians Thatcherisminn byggir á grunni McCracken stefnunnar, en þó einkum á kenningaklasa sem kallaður hefur verið peningamagnskenningar (,,monetarismi“). Megin tilgangur þessara kenninga eru: 1) Þegar til lengri tíma er litið eru að- gerðir stjórnvalda í peningamálum og umsvif hins opinbera áhrifslausar gagnvart hinum raunverulegu þáttum hagkerfisins; aukning peningamagns og umsvif hins opinbera leiða ekki til aukinna rauntekna efnahagskerfisins, 157

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.