Réttur - 01.08.1986, Qupperneq 60
íslensku ríkisstjórninni eru settir úr-
slitakostir 25. júní 1941 að biðja um
bandaríska hervernd, ella verði allir
flutningar til og frá landinu stöðvaðir.3 7.
júlí tekur svo bandarískur floti ísland
herskildi — og landið er nú hersetið bæði
af breskum og bandarískum her. (Sá
breski réðst á ísland og hertók það 10.
maí 1940.) Ólöglegt Alþingi var svo látið
samþykkja hernámið 9. júlí.
1941 - 44
Bandarískt auðvald aflar sér erindreka
á íslandi, er undirbúa það að koma land-
inu undir bandaríska yfirstjórn eftir stríð
í formi „verndar“ eða einhverskonar
samnings.4
1945 - 46
Bandaríska herstjórnin, sem sam-
kvæmt samningnum 1941 „átti að fara
burt með allt sitt“ hafurtask að stríðslok-
um, situr kyrr með her sinn og heimtar 1.
okt. 1945 að fá aðstöðu til voldugra her-
stöðva á íslandi til 99 ára — þrjá lands-
hluta af íslandi undir alger bandarísk
yfirráð.
Þeir íslendingar, sem hafa opin augu
sjá að engum samningum við Bandaríkin
er treystandi. t>au beita vægðarlaust of-
beldi til að ná sínu fram, en reyna þó að
halda grímu út á við sem „lýðræðisríki“.
Er Islendingar neita, tryggir Banda-
ríkjastjórn sér 5 ára frest til að beygja ís-
lendinga.
1947 - 51
Bandaríska auðvaldið áttar sig á því að
það verður að gera íslendinga sér andlega
og efnahagslega undirgefna, til þess að
ná því fram sem það ætlar sér.
„Marshall-aðstoðin" er sett í gang til að
ná yfirdrottnun efnahagslífsins á íslandi í
hendur „íslenskra" erindreka Bandaríkj-
anna, en tekst ekki nema að nokkru leyti:
Aburðar- og sementsverksmiðjan verða
ríkiseign gegn vilja bandarísku drottnar-
anna, en gengisskráninguna sölsa þeir
undir sig og fulltrúa sína.6
En áróðursvél Kanans og kappa hans
er rekin af fullum krafti. Og 1949 tekst að
svíkja ísland inn í Atlantshafsbandalagið
gegn því loforði Bandaríkjastjórnar að
hér skuli aldrei vera her á friðartímum.
Þorri þingmanna lætur blekkjast af þessu
loforði, sem hervald Bandaríkjanna síð-
an brýtur 2 árum síðar, — hertekur ís-
land 7. maí 1951 og hefur setið hér síðan
í krafti ofbeldis síns, dulið með ólög-
legum „samningi" sem fyrrum. Og sá her
situr hér enn.
1951 - 86
Ameríska auðvaldið stefnir að því að
gera íslendinga að sér undirgefinni, þý-
lyndri og þægri þjóð, þrælum sem smá-
saman uppfylla óskir þess og jafnvel fórni
lífi sínu fyrir það, ef til kemur.
Bandaríska sendiráðið kemur sér smám-
saman upp fjölda erindreka í stjórnar-
stofnunum, fjölmiðlum o.s.frv. Pað hefur
mikinn njósnaher, enda aðgang að öllu
landinu til ljósmyndunar og flestir íslend-
ingar eru komnir á spjaldskrá þess með
upplýsingum um skoðanir, fjölskyldu-
bönd o.s.frv.
Markvisst er unnið af erindrekum Kan-
ans að skemmdum á tungu vorri, uppræt-
ingu ástar á sjálfstæði þjóðarinnar, lítils-
virðingu á sögu og arfleifð íslendinga.
Reynt hefur verið að tefja þessa hættu-
legu þróun, m.a. með þátttöku sósíalista
í ríkisstjórn, er tafið hefur fyrir fram-
kvæmd hættulegustu fyrirætlana herveld-
isins.
172