Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 4

Réttur - 01.08.1987, Page 4
um til að safna saman fylgi Alþýðuflokks- ins og Bandalags jafnaðarmanna frá síð- ustu kosningum. Alþýðuflokkurinn mun — fara í ríkisstjórn með íhaldinu ef hann vinnur sigur (þetta hefur gerst — inn- skot nú, sg.) — leggja á virðisaukaskatt sem hækkar matvörur um 20% (hann hefur þegar lagt á 10% matarskatt og um næstu áramót verður skrefið tekið til fulls — innskot nú, sg.) — hafna aðild íslands að kjarnorku- vopnalausum Norðurlöndum. (Þegar liggur fyrir að ríkisstjórnin hefur ná- kvæmlega sömu stefnuna í utanríkis- málum og gamla stjórnin — innskot nú, sg.) — taka þátt í aðförinni að íslenskum námsmönnum. (Þetta hefur einnig gerst samkvæmt fréttum af undirbún- ingi fjárlaga nú í haust, — innskot nú, sg-) í þessum kosningum bjóða fram margir smáflokkar: Á þessu kjörtímabili voru stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir. Þess vegna tókst ekki að stöðva framsókn afturhaldsins. Sama sagan má ekki endur- taka sig. Við höfum ekki efni á því að dreifa kröftunum. Kosningarnar fara fram þriðja sumar- daginn. Okkur gefst þá kostur á því að kveðja hinn pólitíska vetur með því að efla Alþýðubandalagið til sigurs.“ Framlengd fyrri stjórn Svo mörg voru þau orð og því miður var það hin dökka mynd sem kjósendur kusu í kosningunum sl. vor. Alþýðu- flokknum tókst ekki einu sinni að tína saman fylgi Alþýðuflokksins og Banda- lags jafnaöarmanna. En hann fór samt í ríkisstjórn með íhaldinu, ríkisstjórn sem framkvæmir þá hluti sem hér á undan var bent á — og raunar margt fleira og verra. Ríkisstjórninni tókst í raun að halda velli þó að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði mestu fylgi allra flokka í kosningunum. Alþýðu- bandalagið tapaði verulegu fylgi. Ástæð- urnar eru innanflokksátök sem verður að leysa nú á landsfundi flokksins sem fer fram í nóvembermánuði næstkomandi. Pá skiptir öllu að Alþýöubandalagiö birt- ist sem endurnýjunarafl íslenskra stjórn- mála. Vonandi ber flokkurinn gæfu til þess að sameina þá í forystusveit flokksins sem taka málstaðinn fram yfir persónu- legt streð. Vegna taps Alþýðubandalagsins er líf fráfarandi ríkisstjórnar framlengt, þrátt fyrir hrikalegan viðskilnað og stöðugar árásir á velferðarkerfi þjóðfélagsins. Nokkrar staðreyndir um viðskilnaðinn í kosningabaráttunni tókst stjórnar- flokkunum að láta glansmyndina halda. Stjórnarflokkarnir sögðu: Efnahagsþró- unin er á réttri leið með vísan til minni verðbólgu, nýs húsnæöiskerfis og batn- andi kaupmáttar launa og aukins hag- vaxtar. Ekki hafði fyrr verið talið upp úr kjörkössunum en blaðinu var snúið við og fráfarandi forsætisráöherra viöurkenndi að efnahagsmálin væru í megnasta ólestri. Einkum vísaði hann til halla ríkissjóðs — upp á 3000-5000 miljónir króna — sem stjórnarflokkarnir vildu ckki viðurkenna í kosningabaráttunni. Ríkissjóður Hallinn á ríkissjóði þessa árs ncmur um 3500 miljónum króna. Hallinn á ríkis- sjóði undanfarin ár hefur veriö sem hér segir á verðlagi ársins 1986: 116

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.