Réttur - 01.08.1987, Page 6
er hins vegar 70,4 stig. Með öðrum
orðum:
Kaupiö í tíð ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar heföi þurft aö hækka um
34,7% til þess að ná sama kaupmætti
kauptaxta og var að jafnaði í tíð þeirra
ríkisstjórna sem Alþýöubandalagið átti
aðild að.
Þetta má líka orða öðru vísi:
Kaupránið var ríflega fjórða hver
króna sem launafólk á kauptöxtum missti
úr launaumslögunum sínum. Þetta má
Iíka orða enn á annan hátt: Hjón sem
höfðu 60.000 kr. í taxtakaup samtals 1986
töpuðu 15.000 kr. á mánuði hverjum all-
an stjórnartíma Steingríms Hermanns-
sonar eða 180 þúsund krónum á ári eða
um 700 þúsund krónum á stjórnartíman-
um. Það er eins og þessi hjón hafi unnið
ókeypis fyrir ríkisstjórnina í heilt ár ævi
sinnar.
Frá ársbyrjun 1986 tókst að auka nokk-
uð kaupmátt kauptaxta og áfram á árinu
1987 vegna samninga verkalýðshreyfing-
arinnar og oft á tíðum harðrar baráttu
einstakra hópa og vegna góðærisins.
Það var ekki verk ríkisstjórnarinnar,
heldur þrátt fyrir hana. Þá verður að taka
með í reikninginn aö í árslok 1985 gaf
ríkisstjórnin út þjóðhagsáætlun fyrir
næstu þrjú ár sem gerði ráö fyrir því að
kaupmáttur ætti að vera óbreyttur næstu
fjögur árin, út áriö 1988. Þarna birtist því
raunveruleg stefna ríkisstjórnarinnar á
þeim forsendum sem hún byggöi sína
stefnu á 1983-1985.
Stóri lottóvinningurinn!
Á hverju laugardagskvöldi situr helm-
ingur þjóöarinnar fyrir framan sjónvarp
og bíður eftir stóra lottóvinningnum.
Þennan stóra vinning fékk þjóðarbúið í
ársbyrjun 1986, sem nú skal nokkuö
rakið:
— Fiskafli landsmanna var 785 þúsund
tonn 1982, síðasta heila ár Alþýðubanda-
lagsins í ríkisstjórn en heildaraflinn var
meira en tvisvar sinnum meiri öll síðustu
ár þe. 1984, 1985 og 1986.
Þess vegna voru þjóðartekjur á mann
miklu hærri á sl. ári en áður og sem dæmi
má nefna þessar tölur:
Viðmiðunar-
ár
1978
1986
Kaupmáttur
kauptaxta
100
72
Þjóðartckjur
á mann
100
116
Samsagt: Þrátt fyrir margföld met
vegna hagstæðra ytri kringumstæðna og
aukins sjávarafla var staða ríkissjóðs
verri en áður þegar stjórnin fór frá sl. vor
og kaupmáttur kauptaxta miklu lægri en
áður.
En verðmætin komu inn í þjóðfélagið.
Dekurdýr stjórnarflokkanna rökuðu sam-
an peningunum sem aldrei hefur sést bet-
ur en við söluna á Útvegsbankanum. Þá
koma berstrípaðir útgerðarmenn hlaup-
andi fram í dagsljósið með miljónatugi
tilbúnir að borga fyrir bankann og Sain-
bandið skellir fram hundruðum miljóna
króna. í kosningabaráttunni sl. vor lagði
Alþýöubandalagið einmitt áherslu á þetta
atriði eins og fram kemur í forystugrein
Réttar sem birt var hér fremst í greininni:
Að það yrði að sækja peningana til þeirra
sem hafa hirt bróðurpartinn af góðærinu
til þess
a) aö bæta lífskjör
b) að treysta atvinnuvegina til fram-
búðar meðal annars til þess að auka fram-
leiöni og skapa forsendur til að stytta
vinnutímann í raun og
c) að treysta stöðu ríkissjóðs.
118