Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 12

Réttur - 01.08.1987, Page 12
þingsætum Berlínar, „skarað fram úr öll- um höfuöborgum Evrópu, jafnvel sjálfri París“, sagði Engels þá. Og sama árið reit Engels bæklinginn „Getur Evrópa afnumið vígbúnaðinn?“ Þeir voru framsýnir foringjarnir sósíal- ísku þá. Og undir forustu Bebels ákveður II. Internationale að svara nýju stríöi, er auðvald Evrópu þá var að undirbúa, með allsherjar verkfalli verkalýðsins. II. Auðvaldsstríðið 1914-18 og W eimarlýðveldið En 1913 missir þýski flokkurinn sinn ágæta foringja, er August Bebel deyr.* Og þegar auðmannastéttir Erópu hefja heimsstríðið fyrsta 1914, bregst forustan í flestum sósíaldemokrataflokkum Evr- ópu, nema sú rússneska og serbneska, hátíðlega heitinu frá 1912: að forða verkalýð Evrópu frá því að verða blóð- hundum og stríðsgróðalýð auðvaldsins að bráð. Hin sögulega klofning í röðum sós- íalista hófst þá, er sósíaldemokratisku foringjarnir sviku, en þeir sem standa vildu við heitið og foröa verkalýðnum frá blóðbaðinu, börðust gegn stríðinu og tóku sér srðan forna heitið frá 1848 (,,Kommúnistaávarpið“) — kommúnist- ar. í Þýskalandi voru það þau Rósa Lux- emburg og Karl Liebknecht er forustuna höfðu, en Lenin og hans félagar í Rúss- landi keisarans. Keisararíkin þrjú, Rússland, Þýska- land og Austurríki hrundu, er alþýðan reis upp 1917-18, þreytt á fjögurra ára blóðfórnum. En er sigurvegararnir frönsku og aðrir sáu hættuna á byltingu * Þorsteinn Erlingsson ritar minningargrcin um hann í „Verkamannablaðið". Marx bjó hér 1838-39. Engels bjó liér 1841 Cíetur Evrópa afvopnast? Það birtist í Berlín 1893 124

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.