Réttur - 01.08.1987, Síða 26
Vegatálmar við Hólmsá í stóra vcrklállinu 1955. Ljósm.: Jón Bjarnason.
lauk í raun með handtöku Eðvarðs og fé-
laga hans og hafði þann enda að Dags-
brúnarstjórnin, sem þá var í höndum
afturhaldsins með Sjálfstæðismenn í for-
ustu, kallaði saman fund í Dagsbrún þeg-
ar búið var að fangelsa Eðvarð og þá fé-
laga. Á þeim fundi fengu þeir sömu til-
lögu sem áður var felld, um óbreytt kaup,
samþykkta með 879 atkv. gegn 808.
Samningur þessi, sem fjöldi verkamanna
leit á sem hreina nauðungarsamninga,
átti að gilda til ársloka, en þáverandi
stjórn sagði þeim ekki upp, þrátt fyrir
vaxandi óánægju verkamanna með þá.
Varö allt þetta til þess að stöðugt fleiri
verkamcnn snerust gegn þessari stefnu í
félagsmálum.
Eins og fram er komið þá voru þeir Eð-
varð og Eggert Þorbjarnarson handteknir
og fangelsaðir af Bretum þann 6. janúar
1941, á þeim dögum sem Dagsbrún var í
verkfalli sem valdhöfunum stóð stuggur
af. Strax á næsta degi, 7. jan., játaði einn
úr stjórn Dagsbrúnar að þeir Eðvarð og
Eggert hefðu verið fangelsaðir samkvæmt
ábendingu Dagsbrúnarstjórnarinnar.
Við þessi tíðindi hraus mörgurn verka-
mönnum hugur. Stríðsgróðamönnum óx
ásmegin og því var handtökum verka-
manna framhaldið. Alls voru sjö Dags-
brúnarmcnn teknir fastir. Auk Eðvarðs
og Eggerts voru þaö: Hallgrímur Hall-
grímsson, Ásgeir Pétursson, Haraldur
Bjarnason, Guðbrandur Guðmundsson
138