Réttur - 01.08.1987, Page 27
og Helgi Guðmundsson.
Eggert og Hallgrímur voru dæmdir í 15
mánaða fangelsi og sviftir mannréttindum
fyrir að semja flugmiða á ensku þar sem
tilgangur verkfalls Dagsbrúnarmanna var
skýrður og bresku hermönnunum tjáð að
íslenskir verkamann væntu þess að þeir
gerðust ekki verkfallsbrjótar. Eðvarð og
Ásgeir voru dæmdir í fjögurra mánaða
fangelsi. Hinir voru sýknaðir.
Allt þetta gerðist á árinu 1941 og enn
sátu íhaldsmenn og hægri kratar með
stuðningi Framsóknarmanna í stjórn
Dagsbrúnar undir verndarhendi ríkis-
stjórnarinnar sem lýsti velþóknun sinni á
framferði afturhaldsmanna í Dagsbrún og
stóðu að handtökunum, og hugðust enn
þjarma að verkamönnum eins og fram
kom strax eftir áramótin.
í ársbyrjun 1942 gaf ríkisstjórnin út
bráðabirgðalög, gerðardómslögin eða
þrælalögin eins og þau almennt voru
kölluð, með þeim voru kauphækkanir
bannaðar og sömuleiðis öll verkföll. Af-
lýst var þá nokkrum verkföllum, sem haf-
in voru.
Róttæku öflin vinna sigur
í stjórnarkosningunum unnu róttæku
öflin í Dagsbrún glæsilegan sigur, ný
stjórn var mynduð undir forustu Sigurðar
Guðnasonar og tók völdin í félaginu, þá
var ekki hægt að segja upp samningum og
félagið gat ekki háð löglegt verkfall. Allar
I)aj>sbrúnarmenn koraa til fundar. Ekki er vitað hvaða ár þessi mynd var tekin.
139