Réttur - 01.08.1987, Page 33
Eðvarð seni fomiaður með einni fyrstu stjórn sinni ■ Dagsbrún.
armenn áttu mikinn þátt í kjöri þeirra. Þá
má ekki gleyma því að formaður Dags-
brúnar, Héðinn Valdimarsson, fékk á fé-
lagsfundi í Dagsbrún samþykkta áskorun
á verkalýðsflokkana (Kommúnistaflokk-
inn og Aiþýðuflokkinn) að sameinast í
einn alþýðuflokk. Þessi samþykkt átti
sinn mikla þátt í þeim gleðilega atburði er
gerðist ári síðar, er vinstri menn Alþýðu-
flokksins og Kommúnistaflokksins gengu
til samstarfs um nýjan verkalýðsflokk,
Sameiningarflokk alþýðu, Sósíalistaf-
lokkinn.
Þessi þáttur í starfi Dagsbrúnar er í
fullu samræmi við lög félagsins, því að
síðan 1919 hefur það verið stefnuskrár-
atriði að „stuðla að því að verkalýðurinn
taki sjálfstæðan þátt í stjórnmálum lands
og bæjarfélags“, cins og segir í 2. grein
félagslaganna.
Það er rík ástæða til að minna á þennan
þátt baráttunnar einmitt núna. Þegar litið
er yfir kaupgjaldsbaráttu undanfarinna
ára, kernur í ljós að hún er nær eingöngu
háð til þess að rétta lilut verkamanna
vegna árása á lífskjörin, sem ríkisvaldið
hefur haft forgöngu um. Til þess að koma
í veg fyrir þetta verður verkalýðshreyf-
ingin aö margfalda áhrif sín á löggjafar-
valdið og ríkisstjórn. Hún þarl' að öðlast
sama styrkleika í stjórnmálabaráttunni og
hún hefur nú náð á faglega sviðinu. Þessi
mál hafa Dagsbrúnarmenn rætt mikið á
fundum sínum undanfarið og gert um þau
ítrekaðar ályktanir og þarf að fylgja fast
eftir.
Kaupgjaldsbaráttan og önnur dægur-
mál geta aldrei í eðli sínu orðið neitt tak-
145