Réttur - 01.08.1987, Side 38
En Sovétríkin eru nú það vald, sem
hindrar bandaríska auðvaldið í að hefja
stríð. Það auðvald óttast að slíkt myndi
leiða til tortímingar mannkyns.
Og nú býður stjóm Sovétríkjanna upp á
samninga um eyðileggingu allra kjarnorku-
vopna á landi. — Og bandaríska auðvald-
ið er í klípu, það vill ekki missa gróðann,
en óttast fordæmingu mannkyns, ef það
neitar.
Það er stórvirki Sovétríkjanna að geta
nú, þrátt fyrir að hafa orðið að þola tvær
árásarstyrjaldir, haldið aftur að banda-
ríska auðvaldinu, en það óttast að hefja
þá þriðju.
Það er vissulega kraftaverk aldarinnar
að sovésk alþýða skuli megna þetta, eftir
allt sem hún hefur orðið að þola í 70 ár.
Allt hugsandi mannkyn bíður milli von-
ar og ótta um hvort Bandaríkin þora að
neita tillögu Gorbachevs, Ieiðtoga Sovét-
ríkjanna um útrýmingu allra kjarnorku-
vopna á fastri grund í heiminum. —
Menn hugsa nú til aðvarana Eisenhowers
Bandaríkjaforseta, er hann í kveðjuræðu
sinni 1961 varaði þjóð sína við þeirri
„hemaðar- og stóriðjusamsteypu“ (MIC),
er upp væri komin í Bandaríkjunum og
ógnaði bæði lýðræði Bandaríkjanna og
friði heimsins.
IY.
Hvað tekur við?
En vér Islendingar verðum að muna að
jafnvel þótt Sovétstjórninni tækist að
vinna það kraftaverk að knýja Bandarík-
in til að eyöileggja öll kjarnorkuvopn á
jörðu niðri, þá eru enn eftir hin gríðar-
lega hættulegu kjarnorkuvopn í sjó og í
lofti, þ.e.a.s. í kafbátum og flugvélum,
svo ekki sé talað um þá hættu, er stafa
myndi af þeirri geimáætlun, sem Banda-
150
ríkin alltaf eru að þrefa um og óhugsandi
er auðvitað að gengið verði að.
Fyrir okkur íslendinga er það spursmál
um líf eða dauða þjóðarinnar að bönnuð
verði öll atómvopn í kafbátum og öðrum
skipum svo og í flugvélum.
Nato hefur staðsett hér (og í Tyrk-
landi) flugvélar af Awacs-gerð, er stjórn-
að geta skotum atómvopna úr kafbátum í
sjó og miðað þannig t.d. á stórborgir
Sovétríkjanna. Þetta jafngildir því að
Bandaríkin gætu hafið heimsstríðið frá
Keflavíkurflugvelli.
Og þegar Ijóst er hvílíkum fjárfúlgum
er af auðvaldi U.S.A. fleygt í „Aðalverk-
taka“ h.f., þá er ljóst hvað hervaldið í
Bandaríkjunum ætlar sér. ísland á að
vera íkveikjuvaldurinn, — ef hervaldið
ameríska þorir í stríð. — Ætla íslendingar
að láta fórna þjóð vorri fyrir kolbrjálaða
stríðsæsingamenn Bandaríkjanna?
Auðvald Bandaríkjanna ætlar sér að
gera íslenska þjóð að viljalausu verkfæri
sínu. Eigum við að láta þessu versta valdi
heims takast að hefja þann hildarleik,
sem líklega myndi þurrka mannkynið út
af jörðinni?
Það er nú svo komið að Sovétþjóðirnar
undir forustu Gorbachevs, hins nýja leið-
toga síns, eru líklega eina valdið, sem
knúið gæti Bandaríkin til að láta af öllum
stríðsfyrirætlunum sínum. Það væri stór-
fenglegasta kraftaverkið, sem þau gætu
unnið, eftir allt, sem þau hafa mátt þola
og staðist. Við skulum vona að það kraft-
averk gerist.
E.O.
J