Réttur - 01.08.1987, Blaðsíða 41
ívar H. Jónsson, forinaAur MÍR, Mennin}>ariengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna, flytur ávarp á setningar-
fundi íslandsdaganna í hátíóarsal Húss úkrainska niyndlistarsanihandsins í Kíev 3. ágúst.
Félagsstarfið var mjög öflugt fyrstu
árin, enda má segja að MÍR hafi þá í
reynd verið eini aðilinn hér á landi sem
vann að gagnkvæmum samskiptum á sviði
menningar og lista milii þjóða Islands og
Sovétríkjanna. En þegar fram liðu stund-
ir og einkum eftir að samskipti hófust á
ýmsum sviðurn milli opinberra aðila hér á
landi og í Sovétríkjunum, jafnframt því
sem íslcnsk félagasamtök önnur en MÍR
gengu til beinnar samvinnu við hliðstæðar
sovéskar félagsheildir, urðu óhjákvæmi-
lega nokkrar breytingar á starfi MÍR og
starfsháttum. Kynningar- og fræðslustarf-
ið hefur þó alltaf sctið í fyrirrúmi frá
stofnun félagsins til þessa dags, misjafn-
lega öflugt frá einu ári tii annars að sjálf-
sögöu, en jafnan í svipuðum farvegi og
markaður var í upphafi, með þeim breyt-
ingum og nýjungum sem síðar hafa kom-
ið til.
Sá þáttur í starfi MÍR sem snýr að
kynningu og fræðslu um Sovétríkin,
menningu þar, þjóðfélagshætti, vísindi og
listir, hefur löngum verið meira áberandi
en það sem félagið hefur gert til kynning-
ar ytra á íslensku þjóðlífi og menningu.
Þó hefur Islandskynning félagsins vissu-
lega verið umtalsverð í áranna rás, enda
hcfur MÍR notið í því kynningarstarfi
ómetanlegrar aðstoðar og fyrirgreiðslu
samstarfsaðila sinna í Sovéti íkjunum:
Sambands sovéskra félaga vináttu og
menningartengsla við útlönd, SSOD
^áður VOKS) og Félagsins Sovétríkin-
Island, sem stofnað var 1959.