Réttur - 01.08.1987, Side 42
í þessu sambandi má nefna að á síðustu
árum hefur MÍR m.a. haft forgöngu um
uppsetningu þriggja sýninga frá íslandi í
Moskvu og víðar: 1) sýningar á verkum
Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara og
stofnanda MÍR, 2) Ijósmyndasýningar-
innar „Verk rússneskra og sovéskra höf-
unda á íslensku leiksviði“ og 3) sýningar á
Ijósmyndum, svartlistarmyndum og bók-
um í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur í
fyrra. Ýmislegt annað íslenskt kynningar-
efni hefur MÍR sent samstarfsaðilum sín-
um í Sovétríkjunum eftir því sem efni og
ástæður hafa leyft hverju sinni, fyrirlesar-
ar hafa farið austur á vegum félagsins
o.s.frv. Síðast en ekki síst er að geta ís-
landsdaganna í Sovétríkjunum sem MÍR
hefur haft forgöngu um: í eistneska sovét-
lýðveldinu fyrir fáum árum og í sovétlýð-
veldinu Ukraínu í ágústmánuði á þessu
ári.
Þó að fjölmiðlar hér á landi hafi þegar
sagt nokkuö frá þessari íslandskynningu,
þykir mér rétt að nota ágætt boð ritstjóra
RÉTTAR um birtingu frásagnar af hóp-
ferð MÍR til Sovétríkjanna sl. sumar til
þess að fjalla sérstaklega um þann hluta
ferðarinnar sem tengdist beinlínis ís-
landsdögunum í Úkraínu. íslensku lista-
mennirnir sem komu fram á kynningar-
dögunum í Kíev, Odessa og á Krímskaga
í ágústmánuði voru landi og þjóð til sóma
og þeir eiga það skilið aö frá tónleikum
og sýningum þeirra sé sagt á prenti. En
stiklað verður á stóru, því að af miklu
efni er að taka.
íslandsdagarnir voru haldnir dagana 3.
- 13. ágúst sl. að frumkvæði MÍR en í
náinni samvinnu viö úkrainska vináttufé-
lagið og Samband sovéskra vináttufélaga,
og með fjárstuðningi nokkurra íslenskra
iönaöar- og verslunarfyrirtækja: Alafoss,
Bifreiða- og landbúnaðarvéla, Feröa-
skrifstofu Kjartans Helgasonar, Hamp-
iðjunnar, Lakk- og málningarverksmiðj-
unnar Hörpu, Olíufélagsins hl'., Olíu-
verslunarinnar Skeljungs, Sjávarafurða-
deildar SÍS og Stálsmiðjunnar. Leitað var
til fleiri íslenskra inn- og útflutningsfyrir-
tækja, sem eiga viðskipti við Sovétríkin,
en ekki treystu forsvarsmenn þeirra sér til
þess að styrkja þessa íslandskynningu.
Um styrk af almannafé var heldur ekki að
ræða, enda ekki um hann beðið sérstak-
lega. Félagsstjórn MÍR varð því að gæta
ráðdeildar hvað útgjöld varðar og sú
ákvörðun var tekin snemma á undirbún-
ingstímanum að tengja íslandsdagana í
Úkraínu hópferð félagsins til Sovétríkj-
anna 1987 af hagkvæmnisástæðum. Þetta
var þriggja vikna ferð til nokkurra borga
í Rússlandi, Eystrasaltslöndum og Úkra-
ínu. Þátttakendur í ferðinni voru 100
talsins, eða fleiri en í nokkurri af fyrri
ferðum félagsins, og í þcirra hópi voru 13
tónlistarmenn, söngvarar og hljóðfæra-
leikarar, sem komu fram á tónleikum
meðan á íslandsdögunum stóð — og
reyndar oftar
Meðal tónlistarfólksins var 10 manna
sönghópur karla undir stjórn Helga R.
Einarssonar, Elín Sigurvinsdóttir óperu-
söngkona, Guðni Franzson klarninettu-
leikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari. Undirleikari með kór og
einsöngvara var Guðni Þ. Guömundsson
organisti. Kórmenn voru, auk Helga og
Guðna Þ. Guðmundssonar, þeir Björn
Ó. Björgvinsson, Böðvar Guðmundsson,
Guðmundur Ómar Óskarsson, Hans G.
Magnússon, Hreinn Úlfarsson, Óskar
Ármann Sigurðsson, Viktor A. Guð-
laugsson og Tómas Lárusson.
Á efnisskrá tónleikanna voru fyrst og
fremst íslensk sönglög og tónverk, bæði
þjóðlög og verk eftir eldri og yngri
154