Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 45

Réttur - 01.08.1987, Page 45
frumkvæöi sem sovétstjórnin undir for- ystu Mikhaíls Gorbatsjovs hefur tekiö í friðar- og afvopnunarmálum og væntum þess að árangur megi nást í friðarviðræð- um stórveldanna. Ekkert mál er nú mikil- vægara en það sem snýr að varðveislu friðar í heimsbyggðinni. Við íslendingar erum líka komnir hing- að til Úkraínu vegna íslandsdaganna svonefndu, kynningar í myndum, máli og tónum á Islandi, íslensku þjóðlífi og þjóðmenningu. Til þessarar kynningar er stofnað með góðri samvinnu og fyrir- greiðslu sovéskra samstarfsaðila MÍR og þó fyrst og fremst Úkrainska vináttufé- lagsins. Án þeirrar aðstoðar hefði ekkert oröið úr þessum kynningardögum. Flyt ég okkar ágætu gestgjöfum hér í Kíev hugheilar þakkir fyrir. Félagið MÍR hefur enn ekki öðlast mikla reynslu í skipulagningu alhliða kynningar í Sovétríkjunum á íslenskri þjóðmenningu — líkt og gerist árlega á lslandi, þegar efnt cr til Sovéskra daga og þeir þá helgaðir hverju sinni einu hinna 15 lýðvelda Sovétríkjanna. Þegar slíkir sovéskir kynningardagar voru haldnir á Islandi í þriðja sinn, haustið 1978, voru þcir sérstaklega helgaðir Sovét-Úkraínu og þá fengum við íslendingar nokkra nasasjón af þjóðlífinu hér í lýðveldinu, fornri og nýrri menningu og blómlegu listalífi. Viö munum enn eftir sýningu sem sett af upp í Reykjavík á úkrainskri nytjalist og listmunum og ekki síður lista- fólkinu sem sótti okkur heim, söngvaran- um Anatolí Mokrenko, bandúratríóinu fræga og þjóðdarisaflokknum Rapsódíu lrá Vorosjilovgrad. Þar voru á ferð verð- ugir fulltrúar úkrainskrar menningar og lista, sovétlýðveldinu til mikils sóma og íslcnskum áheyrendum ogáhorfendum til ánægju og fagnaðar. Sú íslandskynning, sem félag okkar, MÍR, hefur undirbúið hér er vissulega af nokkrum vanefnum gerð — og við biðj- um ágæta samstarfsaðila okkar hér í Kíev, forystumenn og starfsmenn vin- áttufélagsins, velvirðingar á því sem úr- skeiðis hefur farið í undirbúningsstarfi okkar. En við vonum að þessi íslands- kynning okkar veki athygli ykkar og áhuga. Hópur góðra manna hefur lagt hönd á plóginn við undirbúningsstarfið heima á íslandi, m.a. tónlistarfólkið sem hefur æft af kappi undanfarnar vikur í frístundum sínum frá öðrum daglegum störfum. Á verkefnaskrá tónlistarfólksins eru sönglög og tónverk eftir eldri og yngri tónskáld íslensk, þjóðlög og alþýðulög og erlend lög, m.a. fáein ættuð héðan aö austan. Myndefnið sem til sýnis er á einnig að gefa svolitla mynd af íslandi og ís- lensku þjóðlífi og myndlist. Annað sýn- ingarefni er svo tengt starfsemi og fram- leiðslu nokkurra fyrirtækja í Reykjavík, sem eiga viðskipti við Sovétríkin á sviði útflutnings og innflutnings og veitt hafa félaginu MÍR nokkurn fjárstuðning til að standa straum af kostnaði við sýningar- efnið. Einnig eru hér fáeinar bækur, eink- um mynda- og listaverkabækur, en líka bæklingar sem félag okkar, MÍR, hefur gefið út á liðnum árum og þýddar bækur. Því miður er ekki um auðugan garð að gresja hvað snertir íslenskar þýðingar á verkum skálda og rithöfunda í Úkraínu. Þó höfum við hér sýnishorn þýðinga sem einn af kunnustu samtímahöfundum á ís- landi hefur unnið, m.a. á frægu kvæði Iv- ans Franko „Brautryðjendum", Karnenj- an'. Virðulega samkoma. Það er mér í senn ánægja og heiður að flytja hér, við opnun íslandsdaganna i Úkraínu, ávarp sem nýskipaður mennta- 157

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.