Réttur - 01.08.1987, Blaðsíða 47
Illi.fi þáttlakcnda í hópl'crd IMÍR til Suvctríkjanna viA opnun sýniiif’ar frá íslandi í Húsi sambands úkrainskra
myndlistarinanna í Kícv 3. ágúst sl.
þjóösöngvarnir þrír voru aftur leiknir af
lúðrasveitinni.
Eftir stutt hlé hófust íslenskir tónleik-
ar, þar sem söngfólkið og tónlistar-
mennirnir af íslandi komu fram og fluttu
rúmlega klukkustundar langa og fjöl-
breytta dagskrá. Áheyrendur sem nær
fylltu hátíðarsalinn, um 500 manns,
klöppuðu listafólkinu lof í lófa og voru
aukalög flutt. Sergei Halipov, háskóla-
kennari í Leningrad sem vel er mæltur á
íslenska tungu, túlkaði ræður og kynning-
ar listafólksins á tónverkunum. Sjónvarp-
ið í Kíev tók upp svipmyndir frá setning-
arfundinum og tónleikunum, en hljóð-
varpið tók upp tónleikana í heild sinni.
I veislu og vináttufagnaði, sem úkra-
inska vináttufélagið bauð íslenska ferða-
hópnum og fjölmörgum heimamönnum
til síðar um kvöldið skiptust á íslensk og
úkrainsk skemmtiatriði. Var þá m.a. efnt
til kynningar og sýningar á ullarfatnaði
frá Álafossi og vakti þessi óvænta uppá-
koma mikla athygli.
íslenska tónlistarfólkið kom á næstu
ágústdögum fram á nokkrum tónleikum í
Ukraínu og flutti efnisskrá sína í heild
sinni eða að hluta til, allt eftir aðstæðum
á hverjum stað. Þannig voru óstyttir tón-
leikar haldnir í virðulegum samkomusal
Húss kennara í Kíev miðvikudaginn 5.
ágúst. Voru tónleikarnir vel sóttir, um
400 manns í salnum. og viðtökur ágætar.
Næstu tónleikar voru í Odessa, hinni
159