Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 51

Réttur - 01.08.1987, Page 51
— í hreinskilni sagt er ég hrædd, segir hún. Maður veit sko aldrei upp á hverju þeir geta tekið. Maður heyrir jú svo margt. Sé hann þarna aftur, segi ég Kai trúlega frá því. Já, það geri ég bara. Og hún fer upp til þess að búa til mat. Næsta morgun er allt grátt og hún gengur gegnum úðann með Katrínu sér við hönd. Á dagheimilinu taka stúlkurnar á móti þeim klæddar hlýjum treyjum. Þær brosa ekki og í því er fólgin þögul ásök- un. Portið við kjörbúðina er autt. Döpur beygir hún af leið og fer til bakarans. Peg- ar luin tekur við pokanum með skonsum og kanelsnúðum, minnir hún sjálfa sig á að hún sé hamingjusöm og brosir fjörlega til konu bakarans. Hún tyggur sig angurvær í gegnum síð- búinn morgunmatinn og flettir blaðinu á meðan hún gefur portinu auga, — port- inu í blokkinni á móti en það er allt í einu orðið svo mikilvægt í stað þess að vera einskis virði. Og skyndilega stendur hann þarna með fráhneppta skyrtuna og hún finnur hitabylgju fara um líkamann. Sólin hefur brotist fram úr skýjunum og geisl- arnir falla skáhallt yfir buxurnar hans en andlitið sér hún ekki. Höfuð hennar er fullt af gömlum draumum meðan hún sal'nar saman blöð- um liðinnar viku og gengst upp í að gera herbergin þrjú í íbúðinni vandlega hrein. Hreinlæti er nauðsyn finnst henni. Ver- öldin er gljáandi hrein, og þetta er heimili hcnnar. Eldhúsið með möttu flísunum fær einnig sinn skerl' af ilmandi þrifnaði og hún fyllist vellíðan. Á leið niður hring- ir hún hjá Liz en man þá að hún er í vinn- unni. I lún gengur virðulega þvert yfir götuna og sér hann færa sig framar í portið. 1 lún tekur eftir því að hann er ekki einu sinni með ölflösku í hendinni. Þessi frjálslega óskammfeilni að hann bara stendur þarna, fyllir hana undrun og hann flyst yfir í annan heirn þar sem undarlegir hlut- ir geta gerst. Hún gengur eftir göngugötunni með töskuna sem sveiflast við mjöðmina, meðan hún raular með sjálfri sér. Öðru hverju nemur hún staðar til þess að líta á blússu eða kjól. En hún kaupir ekkert, það ætlar hún ekki að gera í dag, bara ganga og skynja sólina. Þegar hún er búin að fá nægju sína, man hún eftir móður sinni. Hún yfirgefur búðirnar og gengur um þröngar göturnar sem hún gjörþekkir. Auðvitað verður hún að segja móður sinni þetta, það er hið eðlilegasta. Hún lætur útidyrnar skellast á eftir sér og gengur upp stigana þar sem hvert þrep minnir hana á eitthvað. Á fjórðu hæð stansar hún og setur fingurinn á bjölluna á meðan hún kyrrir andlitsdrættina. Hún bíður, það gerist ekkert og hún hringir aftur. Hún tekur upp lykilinn og opnar eins og hún gerði forðum. I stofunni sér lnin andlit móður sinnar og skilur allt. — Þetta er skelfilegt, segir móðirin. Hún rær fram í gráðið með andlitið í höndum sér. — Þetta er skelfilegt, Vita. — Mamma, segir Vita í huggunarróm og tekur um axlir hennar. Hún situr á hækjum sér við stólinn og er enn í káp- unni. — 1 þrjátíu ár. í þrjátíu ár, kveinar móðirin hjálparvana. Vita finnur róandi töflu og vasaklút í tösku sinni og sækir vatn fram í eldhús. Móðirin þrýstir vasaklútnum að augun- um, luin ræður ekki við grátinn — Lemur hann þig ennþá? Leggðu þig um stund, segir Vita og hjálpar móður- 163

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.