Réttur - 01.08.1987, Page 59
IV.
Hann var besti vinur þinn,
litli bólivíski dáti;
hann var vinur þinn í fátœkt
frá Oriente til Andesfjalla,
frá Oriente til Andesfjalla,
litli dáti í Bólivíu,
frá Oriente til Andesfjalla.
V.
Gítarinn minn er hjúpaður
litli bólivíski dáti
sorgarklœðum, en grœtur ekki,
þótt það sé mannlegt að gráta,
þótt það sé mannlegt að gráta,
litli dáti í Bólivíu,
þótt það sé mannlegt að gráta,
VI.
Hann grœtur ekki því nú
litli bólivíski dáti
er ekki tími til að gráta,
nú er tími sveðjunnar
nú er tími sveðjunnar,
litli dáti í Bólivíu,
nú er tími sveðjunnar.
VII.
Að þú sért falur fyrir kopar
litli bólivíski dáti
að þú sért falur fyrir kopar
þannig hugsar harðstjórinn,
þannig hugsar harðstjórinn
litli dáti í Bólivíu,
þannig hugsar harðstjórinn.
VIII.
Vaknaðu því nú er dagur
litli bólivíski dáti,
öll veröldin er komin á ról
því sólin kom snemma upp,
því sólin kom snemma upp
litli dáti í Bólivíu
því sólin kom snemma upp.
IX.
Gakktu beint af augum,
litli bólivíski dáti;
sú leið er ekki alltaf greið,
ekki alltaf greið og slétt,
ekki alltaf greið og slétt,
litli dáti í Bólivíu,
ekki alltaf greið og slétt.
X.
En víst mun þér þá lœrast,
litli bólivíski dáti,
að bróður sinn drepa menn ekki,
að menn drepa ekki bróður sinn,
að menn drepa ekki bróður sinn,
litli dáti í Bólivíu,.
menn drepa ekki bróður sinn.
Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi.
René Barrientos (1919-1969) var bólivískur
hershöföingi og komst í forsetastól með valda-
ráni 1964. Hann fó'rst í flugslvsi tveimur árum
eftir að hann lét rnyrða Che Guevara.
171