Réttur - 01.08.1987, Page 64
Joe Hill
Höfundar: Alfred Hayes og
Einar Bragi
Lag: Earl Robinson
Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill,
hinn sanna verkamann.
„En þú ert löngu látinn, Joe?“
„Ég /ifi, “ sagði hann.
„Ég lifi, “ sagði hann.
„í Salt Lake City, “ sagði ég,
„þar sátu auðsins menn
og dœmdu þig að sínum sið. “
„Þú sérð ég lifi enn.
Þú sérð ég lifi enn!“
„En Joe, þeir myrtu, “ mælti ég,
„þeir myrtu — skutu þig. “
„Þeim dugar ekki drápsvél nein.
Þeir drepa aldrei mig.
Þeir drepa aldrei mig. “
Sem lífsins björk svo beinn hann stóð,
Og bliki úr augum sló.
„Þeir skutu, “ sagð’ann, „skutu mig.
En skot er ekki nóg.
En skot er ekki nóg!“
Mfk.
W
NEISTAR
„Joe Hill deyr aldrei!" sagði hann.
„ísál hvers verkamanns
hann kveikti Ijós, sem logar skært.
Þar lifir arfur hans.
Þar lifir arfur hans!
Frá íslandi til Asíu,
frá afdal út á svið
fjeir berjast fyrir betri tíð.
Ég berst við /reirra hlið.
Ég berst við þeirra hlið!“
Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill,
hinn sanna verkamann.
„En þú ert löngu látinn, Joe?“
„Ég lifi, “ sagði hann.
„Ég lifi, “ sagði hann.
176