Réttur - 01.08.1989, Side 16
FRIEDRICH ENGELS:
Páttur vinnunnar
í þróuninni
frá apa til manns
Formálsorð þýðanda
í frægu riti sem þeir félagar Marx og Engels skrifuðu árin 1845-46 og markaði
þáttaskil í þeirra hugsun, Þýsku hugmyndafræðinni, segir að það megi greina
mann frá dýri á marga vegu, t.d. með því að nefna vitundarlíf mannsins eða trú-
arbrögð. En þeir benda á að enda þótt sérkenni mannsins kunni að vera margvís-
leg þá sé kjarni málsins sá að sjálfir hófu mennirnir að greinast frá dýrum þegar
þeir tóku að framleiða það sem þeir þurftu til viðurværis. Menn urðu ekki menn
af því að þeir hugsuðu það upp einn daginn, eða af því að þeir trúðu á guð (en
vel á minnst, hver er nú það?). Mennskjunarferlið byrjaði með framleiðslunni,
með vinnunni. Marx og Engels bættu við að þetta skref hafi á hinn bóginn verið
háð lífeðlisgerð mannsins og að framleiðsla viðurværis sé um leið framleiðsla
efnislegs lífs.1
Efni þessarar greinar
Þessa hugmynd þróar svo Friedrich
Engels frekar í greininni sem hér fer á
eftir. Mikilvægi greinarinnar fyrir sögu-
lega efnishyggju, þjóðfélagsvísindi marx-
ismans, er verulegt. Margir nútíma vís-
indamenn hæla henni, t.d. sá kunni
steingervingafræöingur Stephen Jay
Gould.2
Efni greinarinnar er þríþætt:
í fyrsta lagi áréttar Engels á þessu méli
aö „vinnan skapi manninn,“ þ.e. að fram-
leiöslustörfin séu forsenda tiluröar
mannsins, en önnur tegundareinkenni
mannsins komi í kjölfar þessa fyrsta ein-
kennis. Þetta er kannski aöalatriöi grein-
arinnar því hvergi annars staðar er jafn ít-
arlega um það fjallaö í verkum Marx eða
Engels, en í þann tíð var sú kenning hvað
vinsælust sem sagði að forsenduna fyrir
tilurð mannsins væri að finna í stækkun
heilabúsins. Peirri kenningu hafnar Eng-
els enda byggir hún á þeirri hughyggju-
grillu að „það sem menn hugsi sé mikil-
vægara fyrir þróun þeirra en efnislegar v
þarfir þeirra og vinnan sem þeir inna af
hendi til að fullnægja þessum þörfum.“3
í öðru lagi fjallar Engels um „efna-
skipti“ manns og náttúru og sívaxandi
vald manna yfir lögmálum og duttlur.gum
náttúrunnar. Hann bendir á stöðugar
112