Réttur - 01.08.1989, Side 44
til við það pólitíska verkefni að virkja
Namibíumenn til að berjast fyrir því að
hinn kúgaði meirihluti landsins fái ráðið
ráðum sínum sjálfur.
Viðfangsefni SWAPO
Fyrsta skrefið á leið Namibíu til sjálf-
stæðis var að halda kosningar til stjórn-
lagaþings. Þar verða lögð drög að nýrri
stjórnarskrá.
Samkvæmt ályktun 435 áttu eftirlits-
sveitir Sþ að fylgjast nákvæmlega með
framvindu kosninganna. í janúar rak
Bandaríkjastjórn áróður innan Öryggis-
ráðs Sþ fyrir því að fækkað yrði í eftirlits-
sveitunum. Hinir fastafulltrúarnir fjórir í
Öryggisráðinu Bretar, Kínverjar, Sovét-
menn og Frakkar samþykktu fækkun úr
7.500 í 3.000 þrátt fyrir andstöðu grann-
ríkja Suður-Afríku, Samtaka óháðra
ríkja og ríkisstjórnar Kúbu.
Suður-Afríkustjórn hefur æ ofaní æ
brotið ákvæði samkomulags Sþ frá því í
desember 1988. Með gríðarlegri hernað-
aruppbyggingu í landinu samfara dyggri
aðstoð Louis Pienaar, nýskipaðs nýlendu-
landstjóra og leppa sinna í Turnhalle
lýðræðisbandalaginu (Democratic Turn-
halle Alliance, DTA) hafa kynþáttahatar-
arnir staðið fyrir skemmdarverkum og of-
beldi gagnvart liðsmönnum jafnt sem
hugsanlegum fylgismönnum SWAPO.
Svo einarðlega hafa SWAPO og stuðn-
ingsmenn hennar barist fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti Namibíu og flett ofan af
sóðalegum aðferðum Suður-Afríku-
stjórnar, aö hún hefur orðið að draga úr
þeim.
í kosningunum, 7. - 11. nóvember,
tóku 10 flokkar þátt og fengu 7 þeirra
nægjanlegt atkvæöamagn til setu á stjórn-
lagaþinginu. SWAPO hlaut 57% atkvæða
og 41 sæti á þinginu. DTA tekk 21 sæti,
Flestir sjúkdómanna stafa af hreinni
fátækt og lélegri eða lítilli fæðu. Árið
1986 var gerð rannsókn á heilbrigðis-
ástandi svartra barna á forskólaaldri í
Namibíu. Hún sýndi að einn fjórði
barnanna var vannærður og 11% þjáð-
ust af bráðri vannæringu. Rannsóknin
náði ekki til átakasvæðanna, en þar er
ástandið enn verra. Hvítum börnum
stafar engin hætta lengur af berklum,
mislingum eða meltingarsjúkdómum.
Þessir sjúkdómar eru hins vegar megin-
ástæður ungbarnadauða meðal barna
blökkumanna.
Sameinaða lýðræðisfylkingin í Namibíu
(United Democratic Front of Namibia)
fékk 4 sæti, Kristilegi þjóðarflokkurinn
(Action Christian National Party) fékk 3
sæti og þrír smáflokkar hlutu 1 sæti hver.
Alls greiddu 670.830 atkvæði. SWAPO
hlaut rúmlega 90% atkvæða í Ovambo-
heimalandinu í norðri, en þar höfðu
248.000 kosningarétt. Taliö er að 50.000
hvítra hafi kosið, meirihlutinn DTA.
Samkvæmt ályktun 435 þarf tvo þriðju
hluta atkvæða í stjórnlagaþinginu til að
samþykkja stjórnarskrá.
Koevoet bófaflokkurinn
Yfirlýsingar voru gefnar úr 30. sept-
ember síðastliðinn þess efnis að lcysa
bæri upp hinar hötuöu suður-afrísku Ko-
evoet hersveitir og senda þær aftur til
heimkynna sinna. I ályktun 435 er kveðiö
á um að sveitirnar verði leystar upp og
stjórnskipulag þeirra lagt niður. Fram í
ágústmánuð var þctta hunsað. Síðan hef-
ur Pienaar, hershöfðingi og bráðabirgða-
landstjóri, neyðst til að fullyrða að marg-
ar Koevoet hersveitanna liafi verið leyst-
ar upp og „felldar inn í“ lögreglusveitirn-
140