Morgunblaðið - 16.01.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 15
ERLENT
GEIMRANNSÓKNASTOFNUN
Bandaríkjanna, NASA, býr sig nú
undir að skjóta á loft geimfarinu New
Horizons sem á að fara til Plútós, fjar-
lægustu reikistjörnu sólkerfisins, og
þaðan til Kuipersbeltisins. Ef allt fer
að óskum er gert ráð fyrir því að ferð-
in til Plútós taki tíu ár.
Plútó er nú eina ókannaða reiki-
stjarna sólkerfisins. Vegna firnamik-
illar fjarlægðar hefur verið mjög erf-
itt að rannsaka yfirborð stjörnunnar,
jafnvel með Hubble-sjónaukanum og
stærstu sjónaukum jarðar. Margt er
því enn á huldu um stjörnuna.
Hraðfleygasta geimfarið
NASA hyggst skjóta geimfarinu á
loft sem fyrst á 29 daga tímabili sem
hefst á morgun, þriðjudag. Geti ferðin
hafist fyrstu ellefu daga tímabilsins
kemst geimfarið að Plútó sumarið
2015, annars tefst ferðin verulega.
Hefjist hún 14. febrúar kemst geim-
farið ekki að Plútó fyrr en árið 2020.
Að sögn The Washington Post er
New Horizons hraðfleygasta geimfar
sem smíðað hefur verið. Gert er ráð
fyrir að það fari hjá tunglinu níu
klukkustundum eftir geimskotið.
Apollo-geimförin þurftu þrjá daga til
að fara þá vegalengd. Geimfarið á að
fljúga nálægt Plútó í fimm mánuði,
taka myndir og afla upplýsinga um yf-
irborðið og lofthjúpinn.
Þaðan er ferðinni heitið til Kuipers-
beltsins, smástirnasvæðis sem er
handan brautar Neptúnusar. Þetta
svæði er kennt við stjörnufræðinginn
Gerard Kuiper sem setti fram þá til-
gátu að handan Neptúnusar væru ís-
hnettir sem ekki hefðu náð að verða
að reikistjörnum við myndun sólkerf-
isins.
Tíu ára ferð til
Plútós að hefjast
!
"#$ "%
"
&
'(
%
)*
) &
*
%+
,
-
.+
# %
'"#
/ %
0
!
" !
#$%%
&
'
%
"(
)
#*
&
+,
%
- '
#
&
. / %0
1 /
# /
'
'2
%
3 4 -'
%
.
$
5 ' / %
. % /0
6
%
5
7
/
* /
'
/
'
44'8 %
$ - /
%
'# 24
'2!
$'% %'
5
%
#
3 4 -'
+99:;+9<=
&
+
(
%
"
%
+9<>;+9+9
.121+%"
" &
?2'
+9<=
,
'+
,
!!!
3 &4
===
%
5 2
"
1-0
+99:
6
%
+
' &
7
? 2
+99>
2%
+ 1
&
Meira á mbl.is/ítarefni
Longwood. AP. | Fimmtán ára gamall
drengur, sem dró upp leikfangabyssu
í skóla sínum á Flórída og beindi að
öðrum nemendum, var skotinn í höf-
uðið og skömmu síðar úrskurðaður
heiladauður. Faðir hans, sem kom
strax á vettvang, segist hafa sagt lög-
reglumönnunum, að um leikfanga-
byssu væri að ræða.
Atburðurinn átti sér stað á föstu-
dag í Millwee-unglingaskólanum í Or-
lando. Tveir bekkjarfélagar Christop-
hers Penleys tóku eftir því, að hann
var með byssu í bakpoka og létu
kennarann vita. Hafði hann strax
samband við yfirvöld en Penley fór þá
að ógna krökkunum með byssunni.
Þustu þá allir út nema ein stúlka og
drengur, Maurice Cotey, sem lenti í
átökum við Penley um byssuna. Í
þeim uppgötvaði Cotey, að byssan var
plastleikfang enda brotnaði hún að
nokkru í slagsmálunum.
Eftir þetta forðaði Penley sér á af-
vikinn stað, inn í herbergi þar sem
hann var einn, og segja lögreglu-
menn, að hann hafi neitað að koma út
óvopnaður. Skyndilega hafi hann þó
birst í dyrunum með byssuna á lofti,
beint henni að einum lögreglumann-
anna, sem þá hafi skotið hann.
Fékk ekki að
tala við son sinn
Ralph Penley, faðir drengsins, kom
strax í skólann er hann frétti af at-
burðinum og segist hann þá hafa ver-
ið búinn að segja lögreglunni, að um
leikfangabyssu væri að ræða. Það hafi
yngri bróðir Christophers líka verið
búinn að segja yfirmönnum skólans.
Segist Ralph hafa beðið um að fá að fá
að tala við son sinn og fá hann ofan af
vitleysunni en verið neitað um það.
Penley var úrskurðaður heiladauð-
ur er komið var með hann á sjúkrahús
en var haldið á lífi í því skyni, að unnt
væri nýta líffæri úr honum. Búist var
við, að hann kveddi endanlega um
helgina.
Ógnaði með byssu
og var skotinn
AP
Byssan, sem Penley var með. Úr henni má skjóta plastkúlum eða litakúlum
og er hún vinsæl hjá strákum. Hún virðist hins vegar mjög raunveruleg.
Faðir drengsins seg-
ist hafa verið búinn
að segja lögreglunni
frá því að um leikfang
væri að ræða
HYLKI með geimryki frá banda-
ríska könnunarfarinu „Stardust“
lenti heilu og höldnu á saltslétt-
unum í Utah í fyrrinótt. Braust út
mikill fögnuður meðal bandarísku
vísindamannanna þegar það lenti
og hér er það komið í hús og ver-
ið að taka það í sundur. Þar með
er lokið sjö ára langri könnun
geimfarsins „Stardust“ en það
lagði upp 1999 til að safna ryki
frá halastjörnunni „Wild 2“ sem
og líka tókst á árinu 2004. Talið
er, að halastjörnur séu leifar frá
myndun sólkerfisins fyrir um 4,5
milljörðum ára og því geti efni úr
þeim gefið miklar upplýsingar um
tilurð þess.
AP
Hylki með geimryki komið til jarðarKúveitborg. AP. | Emírinn í Kúveit,Sheikh Janer al-Ahmad al-Sabah,
lést í gær 79 ára að aldri. Var hann
jarðsettur samdægurs að viðstöddu
miklu fjölmenni. Hafði hann verið
við bága heilsu síðan hann fékk
heilablóðfall fyrir fimm árum.
Ríkisstjórnin í Kúveit, einu mik-
ilvægasta bandalagsríki Bandaríkj-
anna í Mið-Austurlöndum, skipaði
strax krónprinsinn, Sheikh Saad al-
Abdullah al-Sabah, sem nýjan emír
og þjóðhöfðingja í landinu en hann er
hálfsjötugur og ekki við góða heilsu.
Sheikh Jaber var mikill stuðnings-
maður Bandaríkjanna og ekki er bú-
ist við breytingu á náinni samvinnu
ríkjanna í valdatíð al-Sabah.
Emírinn í Kúveit látinn
Bagdad. AP, AFP. | Dómarinn í rétt-
arhöldunum yfir Saddam Huss-
ein, fyrrverandi Íraksforseta, og
nokkrum samstarfsmönnum hans
hefur lagt fram afsagnarbeiðni.
Stjórnvöld hafa hins vegar ekki
enn ákveðið hvort þau verði við
henni.
Í yfirlýsingu frá réttinum sagði,
að hugsanleg afsögn Rizkar Mo-
hammed Amins, forseta hans,
myndi ekki hafa áhrif á réttar-
höldin, sem eiga að hefjast aftur
24. þessa mánaðar. Sagði í yfirlýs-
ingunni, að Amin hefði sagt af sér
af persónulegum ástæðum en
ekki vegna þrýstings frá stjórn-
völdum.
Stjórnmálamenn
sagðir óánægðir
Annað var þó haft eftir ónefnd-
um embættismanni en hann
sagði, að Amin hefði lagt fram
lausnarbeiðnina fyrir nokkrum
dögum vegna harðrar gagnrýni
ýmissa stjórnmálamanna. Hefðu
þeir ekki verið ánægðir með, að
Amin skyldi hafa leyft Saddam og
öðrum sakborningum að tjá sig,
oft með óhefðbundnum hætti, og
trufla þannig réttarhaldið.
Sagt er, að meðdómendur Am-
ins, sem er Kúrdi, leggi hart að
honum að falla frá afsögninni en
verjendur Saddams segja það
engu skipta hver dómarinn sé þar
sem þeir vefengi lögmæti réttar-
haldanna.
Dómari í máli Saddams segir af sér