Morgunblaðið - 06.02.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.02.2006, Qupperneq 18
NÚ LÍÐUR að kosningum til Stúdentaráðs og að venju bítast Vaka og Röskva um völdin. Undanfarin ár hafa þó aðrar raddir heyrst í Stúdentaráði. Þessar raddir vilja meina að kosn- ingakerfið og listar til vinstri og hægri séu tímaskekkja. Þær vilja bjóða fram sem einstaklingar á eigin forsendum. Þetta eru raddir fólksins í Há- skólalistanum. Tilgangslausir flokkadrættir Einu sinni voru flest dagblöð landsins bundin á klafa stjórn- málaflokka. Lista- menn voru skil- greindir eftir stjórnmálaskoðunum, raunverulegum eða meintum. Veröldin var í svart- hvítu, skipt á milli Moskvu og Washington. Síðan breyttist heim- urinn. Stjórnmálin eru enn hluti af lífi okkar en ekki lengur ráðandi afl á öllum sviðum þjóðfélagsins. Pólitísk list og pólitísk dag- blaðaskrif eru enn til þar sem þau eiga við en þau gegnsýra ekki allt, fólk fær leyfi til þess að vera manneskjur og fagfólk án þess að það sé stimplað til hægri eða vinstri. En af einhverjum ástæðum þá nær þessi þankagangur ekki alla leið inn í Háskóla Íslands, þá stofnun sem helst ætti að vera í fararbroddi í samfélaginu í end- urnýjun hugmynda. Að minnsta kosti ekki til Stúdentaráðs þar sem hægri og vinstri hreyfing skiptast á um að drottna í ein- hverri einkennilegri kalda- stríðsnostalgíu, þrátt fyrir að aug- ljóst sé að áherslur landsmálanna eiga ekkert erindi inn í stúdenta- pólitíkina. Búum til lifandi háskóla Það vita raunar forsvarsmenn Vöku og Röskvu, enda hafa hreyf- ingarnar oftar en einu sinni neitað því staðfastlega að þær hafi ein- hver tengsl við stjórnmálaflokka eða skilgreini sig á einhvern hátt til hægri eða vinstri. Ef við trúum því, hver í ósköpunum er þá munurinn á Vöku og Röskvu? Þeg- ar þessi spurning er borin upp þá fara að- standendur flokkanna venjulega í svo fimlegt stórsvig fram hjá spurningunni að sjálf- ur Alberto Tomba hefði orðið stoltur af, finna í besta falli eitt og eitt mál sem vel að merkja er ekki beint ágreiningur um heldur meira svona mismun- andi áherslur. Eina ástæðan fyrir áframhaldandi lista- kosningum í núverandi formi virðist því vera misskilin rómantík, rómantík frá tíma sem stúdentar eru fæstir nógu gamlir til að muna eftir. Aðeins gamall draugur veraldar sem var. Því vil ég hvetja nemendur Háskóla Íslands til þess að kveða drauga fortíðarinnar í kútinn í eitt skipti fyrir öll og hjálpa okkur til þess að búa til lif- andi Háskóla, Háskóla sem er bú- inn til af stúdentum sjálfum en ekki flokksskrifstofum úti í bæ. Boðberar nýrra tíma Undanfarið ár hefur Elías Jón Guðjónsson, fulltrúi Háskólalist- ans, verið formaður Stúdentaráðs og sannað að hægt er að virkja allt ráðið óháð stjórnmálaskoðunum. Undir hans stjórn hefur samband Vöku og Röskvu gengið framar vonum en enn betra væri ef hvorki Háskólalistaliðar, fulltrúar Vöku og Röskvu né aðrir hefðu neinna hagsmuna að gæta annarra en stúdenta Háskóla Íslands. Við er- um boðberar nýrra tíma, tíma frelsis, lýðræðis og einstaklings- kosninga. Kjósum framtíðina fram yfir drauga fortíðarinnar. Kjósum Háskólalistann. Draugar kalda stríðs- ins í Stúdentaráði Eftir Ásgeir H. Ingólfsson Ásgeir H. Ingólfsson ’Kjósum fram-tíðina fram yfir drauga fortíð- arinnar. Kjósum Háskólalistann.‘ Höfundur er MA-nemi í blaða- og fréttamennsku og frambjóðandi Há- skólalistans til Stúdentaráðs. 18 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN UMRÆÐUNNI um stöðu ís- lenskunnar undanfarna daga má líkja við áhyggjur af því hvort börnin muni nýta ættarsilfrið að foreldrum sínum gengnum. Hver veit nema þau geri sér ál eða plast að góðu því fyrir þeim meikar ekk- ert af þessu diff. Grínlaust vekur um- ræðan margar spurn- ingar og ekki stendur á svörum um hvernig megi efla málvitund og málnotkun ungmenna. Flestar tillögurnar ganga út á að bæta kennslu sem er í sjálfu sér lofsvert. En hvern- ig ætlum við að kenna börnunum? Hvernig læra þau að tala? Börn læra að tala á ná- kvæmlega sama hátt og þau læra alla aðra hluti: með því að æfa sig. Hængurinn er sá að til þess að æfingin virki þarf einhver að hlusta. Ekki hver sem er, heldur fullorðin manneskja sem kann sjálf að tala, hlusta og svara barninu á þann hátt sem hæfir aldri þess og þroska. Þetta er tímafrek þolinmæðisvinna og þess vegna bregða kennarar, for- eldrar og aðrir forráðamenn barna sér svo oft í hitt hlut- verkið; að útskýra, kenna, leiðbeina og segja til. Þeim finnst sú leið fljótlegri og skil- virkari, en fyrir vikið verður barnið óvirkt og upplifir gjarnan að það sjálft sé óáhugavert. Fólk þarf æfingu í að orða hugsun sína og þjálfunin þarf helst að byrja á unga aldri. Þess vegna snýst þetta mál ekki eingöngu um verndun íslenskrar tungu heldur um færni íslenskra ungmenna í að koma hugsunum sín- um í orð. Hættan er ekki að þau tali frekar ensku eða spænsku, – hættan er að mínu mati sú að lítið sjálfstraust ásamt takmarkaðri þjálfun í tjáningu geri fólk ófært um að segja það sem því býr í brjósti þannig að aðrir skilji. Hvernig læra börn að nota tungumálið? Sæunn Kjartansdóttir fjallar um íslenskt mál Sæunn Kjartansdóttir ’Fólk þarf æf-ingu í að orða hugsun sína og þjálfunin þarf helst að byrja á unga aldri.‘ Höfundur er sálgreinir. Á SÍÐUSTU árum hafa stór skref verið stigin í dagvistarmálum og átak gert til að jafna stöðu kynjanna þótt þar sé fjölmargt ógert. Meðal brýnustu verkefn- anna í því efni er sá fortíðarvandi sem ójafnrétti ótalinna ára- tuga skyldi eftir sig í kjörum þeirra kvenna sem komnar eru yfir miðjan aldur. Konur í þessum hópi voru ým- ist á vinnumarkaði eða inni á heimilinu vegna barneigna og uppeldis. Leikskóla- og dagvist- unarúrræði fyrir börn voru ekki á nokkurn hátt talin eins sjálf- sögð og nú. Fyrir utan ójafna stöðu á vinnu- markaði leiddi þetta af sér að fjöl- margar konur borguðu ekki í neinn lífeyrissjóð þó það væri orð- in skylda allra launþega að gera það. Nú geta allir borgað í frjálsa lífeyrissjóði þó þeir vinni ekki utan heimilis en í þá daga voru slíkir sjóðir einfaldlega ekki til og sú vinna sem unnin var á heimilunum var ekki þá frekar en nú metin til launa. Tvöfalt ójafnrétti Konur sem nú eru að nálgast 67 ára aldurinn reka sig óþyrmilega á þessa staðreynd þegar þær fara að skoða stöðu sína á þessum tíma- mótum ævi sinnar. Við bætist að ef komið hefur til skilnaðar þeirra við menn sína, sem voru þeir sem allt- af störfuðu utan heimilis, eiga þær ekki rétt á lífeyrissjóðsgreiðslum úr þeim lífeyrissjóði sem maðurinn hefur greitt í, þó svo að þær hafi í raun verið að greitt líka í þá sjóði. Því þær greiðslur voru jú teknar af tekjum heimilisins. Þó er það svo, allavega hjá Lífeyrissjóði op- inberra starfsmanna, að konan sem maðurinn var kvæntur á með- an hann greiddi í sjóðinn fær greiðslur eftir hann ef hann deyr en ekki sú kona sem hann er kvæntur eða í sambúð með þegar þar að kemur. Sem betur fer, eða allavega vonandi, eru engin dæmi þess að kona bíði með óþreyju eft- ir því að hagur hennar vænkist þegar og ef fyrrver- andi eiginmaður hennar fer yfir móð- una miklu á undan henni. Fortíðarvandi láglaunahópa Allt er þetta sem betur fer að breytast til hins betra og ungt fólk í dag er hvatt til að borga í séreigna- lífeyrissjóði, um leið og það fer að hafa einhverjar tekjur, sem er að sjálfsögðu hið besta mál. Þeir sem eru eldri en samt innan við 67 ára keppast líka við að safna í frjálsa séreign- arlífeyrissjóði. Atvinnurekendur eru skyldaðir til að greiða á móti launþegum í slíka sjóði, sem er vissulega gott og hvetjandi fyrir launþegann. Samfélag fyrir alla – á öllum aldri En eftir stendur hópur láglauna- fólks sem ekki var úti í atvinnulíf- inu á réttum tíma. Nú er það svo að allar tekjur sem ellilífeyrisþegi hefur og fara yfir kr. 50.000, svo sem greiðslur úr lífeyrissjóðum og séreignarsjóðum ásamt fjármagns- tekjum koma til frádráttar við út- reikning tekjutryggingar, tekju- tryggingarauka og heimilisuppbótar. Óskertur ellilíf- eyrir frá Tryggingastofnun ríkisins er samtals, til þeirra sem engar tekjur aðrar hafa, kr. 108.623, á mánuði, af þessari upphæð er tek- inn tekjuskattur og eftir standa kr. 97.776. Grunnlífeyririnn kr. 22.873, skerðist hins vegar ekki fyrr en tekjur fara fram úr kr. 234.098 pr. mán. Hrædd er ég um að það séu ansi margir 67 ára og eldri sem ekki ná þeim mánaðarlaunum, það er nú ekki beinlínis slegist um þennan aldurshóp á vinnumark- aðinum. Ef viðkomandi vill og get- ur aflað sér launatekna koma þær til frádráttar greiðslum frá Trygg- ingastofnun, eins og áður segir. Úrræðið sem fullfrísk venjuleg manneskja í aldurshópi eldri borg- ara hefur, er annað hvort að ríg- halda sínu hálaunastarfi, ef svo ólíklega vill til að hún hafi það, eða að brjóta lög og leita eftir ,,svartri vinnu, að öðrum kosti er hún skikkuð til að taka ekki fullan þátt í þjóðlífinu, lifa undir fátækt- armörkum og setjast í ,,helgan stein sem er í raun afar umhugs- unarvert orðatiltæki og rétt er að velta fyrir sér hvað felst í. Það gleymist því miður oftast að eldra fólk hefur aðra lífsreynslu, annan þroska og aðra þekkingu en ungt fólk hefur, þann sjóð á að nýta til heilla fyrir alla, á hvaða aldri sem er. Samfélagið samanstendur af fólki á öllum aldri og á að vera fyr- ir fólk á öllum aldri, það getur aldrei orðið svo ef allir fá ekki að vera með. Að endingu vil ég minna þá á sem ekki hafa náð þessum aldri að ef fólk fær að lifa þá nær það honum. Fortíðarvandi í jafnréttismálum Eftir Ragnhildi Sigríði Eggertsdóttur ’Samfélagið saman-stendur af fólki á öllum aldri og á að vera fyrir fólk á öllum aldri, það getur aldrei orðið svo ef allir fá ekki að vera með.‘ Ragnhildur Sigríður Eggertsdóttir Höfundur er stuðningsfulltrúi hjá LHS ásamt því að stunda nám í heim- speki við Háskóla Íslands Hún gefur kost á sér í 6.–8. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík ÞEGAR kosningar nálgast fara áhugasamir kjósendur að velta fyrir sér þeim valmöguleikum sem fyrir þá eru lagðir. Í kosningum til Stúd- entaráðs er það gjarnan viðkvæðið að kostirnir þykja oft keimlíkir og það sem skilji á milli er sagt vera að- ferðir, árangur og fólk. Í ár má þó segja að munurinn á fylkingunum sé meiri en oftast áður, þar sem nú er kosið um gjörólíka sýn þeirra á hlut- verk Stúdentaráðs og hvernig það getur beitt sér sem áhrifaríkast í þágu stúdenta. Hver sem hagsmunabaráttan er, hlýtur sá árangur sem næst að vera mælikvarðinn á frammistöðu þeirra sem berjast. Vaka hefur lengi státað af því að vera jákvætt fram- kvæmdaafl sem skilar miklum ár- angri í hagsmunabaráttu stúdenta. Aðferðirnar sem félagið hefur beitt í þeirri baráttu hafa einkennst af frumkvæði, ósérhlífni og óbilandi trú á málstaðinn; að bæta hag stúdenta. Þessir eiginleikar teljum við að verði einnig að einkenna Stúdentaráð til að það verði sem öflugast. Ráðið á að snúast um stúdenta og þeirra hagsmunamál. Það sem allir stúdentar við HÍ eiga sameiginlegt er ekki skoðun þeirra á reykinga- banni á skemmtistöðum eða viðhorf til Kárahnjúkavirkjunar; það eina sem sameinar þá sem hóp er að þeir eru nemendur í sama skólanum, og baráttan fyrir hagsmunum þeirra þarf að taka mið af þessu grundvall- aratriði. Ekki er þar með sagt að ráðið geti eingöngu beitt sér í málum þar sem heildarhagsmunir allra stúdenta eru í húfi. Það er hægt að leggja krafta í sérhagsmuni ákveð- inna deilda eða þverfaglegra hópa, svo fremi sem þörfin sé aðkallandi. Baráttan fyrir bættum hag stúd- enta skiptist aðallega í tvo flokka; mál innan skólans annars vegar og hins vegar þjóðfélagsmál sem snerta stúdenta sem hóp. Auðvitað er nauð- synlegt að SHÍ, sem starfar í um- boði stúdenta, beiti þeim slagkrafti sem það býr yfir til að sjónarmið nemendanna fái að heyrast í þjóð- félagsumræðunni þegar brotið er á rétti þeirra á einhvern hátt, eða þegar um málefni ræðir sem snerta stúdenta beint. Engu að síður er það óeðlilegt að ráðið taki stöðugt afstöðu í póli- tískum hitamálum fyr- ir hönd stúdenta í heild sinni, sem marg- ir hafa ólíkar skoðanir í slíkum málum. Þá er ráðið að taka sér vald sem kosningarnar veita því ekki, og um leið að gjaldfella að einhverju leyti þann áhrifamátt sem Stúdentaráð getur haft í málum sem koma því við. Hlutverk SHÍ er að starfa sem réttindaskrifstofa stúdenta og tími ráðsins er best nýttur í að leita lausna við vandamálum sem steðja að innan skólans, því af nógu er að taka. Þá skiptir engu hvort um er að ræða hin opinberu mál, þar sem and- stöðu gegn skólagjöldum eða skert- um opnunartíma Þjóðarbókhlöð- unnar er beint að stjórnvöldum, eða unnið sé innan skólans að gerð stúd- entakorta eða að fundnar séu leiðir að bættri kennslu. Það gagnast stúd- entum afar lítið að það sé tekið mark á skoðunum stúdentaráðsliða í há- pólitískum deilumálum. Leitum ekki langt yfir skammt. Beitum kröftum Stúdentaráðs Háskóla Íslands svo það skili mestum árangri fyrir okkur stúdentana sjálfa. Veljum Vöku. Eftir Sunnu Kristínu Hilm- arsdóttur og Þórð Gunnarsson ’Beitum kröftum Stúdentaráðs Háskóla Íslands svo það skili mestum árangri fyrir okkur stúdentana sjálfa. Veljum Vöku.‘ Sunna Kristín Hilmarsdóttir Sunna Kristín er í 2. sæti á framboðs- lista Vöku til Stúdentaráðs og Þórður í því sjötta. Þórður Gunnarsson Skýr valkostur, gjörið svo vel

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.