Morgunblaðið - 06.02.2006, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 31
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Samfélag, fjölskylda og tækni, SAFT, ersamevrópskt vakningarátak um öruggaog jákvæða netnotkun barna og ung-linga. Heimili og skóli annast útfærslu og
framkvæmd verkefnisins fyrir hönd mennta-
málaráðuneytisins, og hefur staðið fyrir ýmsum
atburðum til að stuðla að betri netnotkun ung-
menna.
Á morgun er alþjóðlegi netöryggisdagurinn og
heldur SAFT af því tilefni ráðstefnu um siðferði á
netinu. Guðberg K. Jónsson er verkefnisstjóri hjá
SAFT: „Eitt af meginmarkmiðum ráðstefnunnar
er að vekja umræðu og umhugsun um netið sem
opinberan vettvang og gagnvirkan fjölmiðil. Við
ræðum um nauðsyn þess að almennt siðferði og
umgengnisreglur færist yfir á þennan miðil, og að
skólakerfið bregðist við gjörbreyttum aðstæðum í
upplýsingasamfélaginu og að foreldrar séu með-
vitaðir um þessa þróun, en oft reynast foreldrar
eftirbátar barna sinna hvað varðar þekkingu á
þessari tækni.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra setur ráðstefnuna og opnar um leið
sérstaka bloggsíðu um siðferði á netinu, og setur
einnig svokallað bloggaþon: „Með bloggaþoninu
setjum við af stað vettvang þar sem fara mun
fram opin umræða um siðferði á netinu. Þar verð-
ur skipulögð dagskrá til 14. febrúar og fjöldi þjóð-
þekktra einstaklinga mun taka þátt í bloggaþon-
inu. Ekki síður er lögð rík áhersla á að nemendur,
kennarar og foreldrar taki þátt,“ segir Guðberg.
Eftir setningu ráðstefnunnar fjallar Isabella
Santa frá ENISA, Evrópustofnun um net- og
upplýsingaöryggi, um vitundarvakningu í þessum
málaflokki.
Næst fjallar Ketill Magnússon siðfræðingur um
siðferðisvanda tengdum ófyrirséðum afleiðingum
nýrrar tækni og almenn siðfræðileg viðmið.
Þá flytur Þuríður Jóhannsdóttir, sérfræðingur
hjá Rannsóknarstofnun KHÍ, erindið „Hvaða
veislu er unga fólkið með í farangrinum?“, um
hvernig ungt fólk notar og nýtir sér nýja tækni, og
hlutverk skólanna í því samhengi.
Lára Stefánsdóttir, ráðgjafi um upplýs-
ingatækni og menntun, fjallar um hvernig eigi að
mennta börn fyrir nútímann og loks flytur Stefán
Hrafn Hagalín, markaðsstjóri Skýrr, erindi þar
sem hann reynir að draga upp mynd hinnar staf-
rænu framtíðar sem blasir við íslenskri æsku.
Fundarstjóri er Þorbjörn Broddason og mun
hann stýra pallborðsumræðum að erindum lokn-
um, þar sem taka mun þátt fulltrúar Heimilis og
skóla, fjölmiðla, póst- og fjarskiptastofnunar og
netþjónustuaðila.
Ráðstefnan er haldin í sal Íslenskrar erfða-
greiningar, að Sturlugötu 8 og hefst kl. 13. Að-
gangur er ókeypis en ágætt ef gestir skrá þáttöku
sína á heimasíðunni www.saft.is. Þar má einnig
nálgast beina útsendingu af ráðstefnunni.
Uppeldismál | SAFT heldur ráðstefnu um siðferði í netheimum og áhrif á börn og unglinga
Siðferði og netið
Guðberg K. Jónsson
er fæddur 1969. Hann
lauk BA-námi í sálfræði
frá HáskólaÍslands
1994. Þá stundaði hann
nám í hug- og sam-
skiptafræðum við Ecole
Doctorale Parísarhá-
skóla og síðar við Sál-
fræðideild háskólans í
Aberdeen. Við Rann-
sóknarstofu um mann-
legt atferli, og sem framkvæmdastjóri Atferl-
isgreiningar ehf. hefur hann tekið þátt í
alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi á ýmsum
sviðum sálar- og hátternisfræði.
Guðberg starfar sem verkefnisstjóri SAFT og
er aðili að Rannsóknarstofu um mannlegt at-
ferli við Háskóla Íslands. Hann hefur einnig
komið að mörgum verkefnum sem tengjast
heilsu og högum barna og unglinga.
90 ÁRA afmæli. Í dag, 6. febrúar,er níræð Guðrún Sigurð-
ardóttir frá Görðum. Guðrún er nú til
heimilis á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14. við-
talstími hjúkrunarfræðings kl. 9.30–
11. Leikfimi kl. 9. Boccia kl. 10. Vinnu-
stofur opnar frá kl. 9–16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Söngstund kl. 10.30. Fé-
lagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Skráning stendur
yfir á myndlistarnámskeið. Leiðbein-
andi Selma Jónsdóttir. Framsögn á
mánudögum, félagsvist á þriðjudög-
um, leikfimi á mánudögum og mið-
vikudögum, postulínsnámskeið á
föstudögum! Handverksstofa Dal-
brautar 21–27 opin frá 8–4 alla virka
daga. Sími 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, opið
hús kl. 13–16. Vilborgardagur, leið-
beint við handverk og föndur af öllu
tagi. Kaffiveitingar. Auður og Lindi
annast akstur, sími 565 0952.
Félag breiðfirskra kvenna | Aðal-
fundur Félags breiðfirskra kvenna 6.
feb. kl. 20 í Breiðfirðingabúð.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Félagsvist spiluð í Félagsheimilinu
Gullsmára kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Kaffi kl. 13.30. Línu-
danskennsla kl. 18. Samkvæmisdans
framh. kl. 19 og byrjendur kl. 20. Fé-
lag eldri borgara í Rvk hefur ákveðið
að fara á sæludag á Hótel Örk vikuna
26.–31. mars nk., skráning er hafin á
skrifstofu félagsins í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9–12
handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
gler- og postulínsmálun, kl. 13.15 lom-
ber, kl. 17 kór, kl. 20 skapandi skrif.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 9, handa-
vinnustofan opin kl. 13, brids kl. 13, fé-
lagsvist kl. 20.30. Rithöfundurinn
Sjón verður gestahöfundur leshóps
FEBK í Gullsmára þriðjudaginn 7.
febrúar milli kl. 20 og 21.30.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45,
bókband kl. 10 og glerskurður kl. 13 í
Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi auka kl.
9.45 í Mýri. Tölvur kl. 17 og 19 í Garða-
skóla. Hláturinn lengir lífið; grínmynd
sýnd í Garðabergi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10 postulíns-
námskeið. Kl. 10.30 sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug. Frá há-
degi spilasalur opinn, þorrahlaðborð í
hádeginu í Kaffi Berg. Kl. 14.30 kór-
æfing hjá Gerðubergskór. Allar uppl. í
síma 575 7720. www.gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
almenn handavinna, kaffi, spjall, dag-
blöðin. Kl. 10 bænastund. Kl. 12 há-
degismatur. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt kl. 10. Gaflarakórinn kl. 10.30.
Ganga kl. 9.30. Glerskurður kl. 13. Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaík, ull-
arþæfing og íkonagerð. Jóga kl. 9–11.
Frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið opið
öllum. Morgunsopi kl. 10 og síðdeg-
iskaffi kl. 15. Síminn 568 3132. asdis-
.skuladottir@reykjavik.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug kl. 9.30 á morgun.
Kvenfélag Garðabæjar | Aðalfundur
Kvenfélags Garðabæjar verður hald-
inn í Garðaholti 7. febrúar kl. 20.
Gestur fundarins verður Árelía Eydís
Guðmundsdóttir lektor.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi fyrir eldri borg-
ara í Laugardalshöll kl. 12.
Norðurbrún 1 | Þorrablót verður
haldið föstudaginn 10. feb. og hefst
kl. 18.30. Sigmundur og Gunnar
Jónssynir syngja dúett, minni karla
og kvenna. Þorvaldur Halldórsson
leikur fyrir dansi. Veislustjóri Gunnar
Þorláksson. Aðgöngumiði gildir sem
happdrættismiði. Allir velkomnir.
Skráning og uppl. í síma 568 6960.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, bókband og bútasaumur kl.
9–13, hárgreiðsla og fótaaðgerð-
arstofur kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10–11, handmennt almenn
kl. 13–16.30, glerbræðsla og frjáls
spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Vímulaus æska kl.
20. Stuðningshópur foreldra ung-
linga í vímuefnaneyslu.
Árbæjarkirkja | Bæna- og helgistund
kl. 10 í félagsmiðstöðinni Hraunbæ
105. Umsjón sr. Þór Hauksson og
Kristina Kalló Szklenár.
Kvenfélag Árbæjarkirkju | Aðal-
fundur Kvenfélags Árbæjarkirkju
verður haldinn 6. feb. kl. 20 í Safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju.
Áskirkja | Aðalfundur og þorrablót
Safnaðarfélags Ásprestakalls verður
haldinn 8. febrúar. Þátttaka tilkynnist
til kirkjuvarðar fyrir kl. 15 í dag.
KFUM og KFUK | Hátíðarfundur í AD
KFUM Holtavegi 28 fimmtudag 9.
feb. kl. 19 í umsjá stjórnar KFUM og
KFUK. Nýir félagar boðnir velkomnir.
Fundurinn hefst með kvöldverði, verð
kr. 2.900. Skráning á skrifstofu
KFUM og KFUK til 8. feb. sími
588 8899. Karlmenn eru velkomnir.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Aðal-
fundur Kvenfélags Bústaðasóknar 13.
febrúar kl. 20 í Bústaðakirkju.
Laugarneskirkja | Kl. 20 Kvenfélag
Laugarneskirkju í safnaðarheimilinu.
Enga uppgjöf.
Norður
♠76
♥865 A/NS
♦Á87432
♣52
Suður
♠ÁKD5
♥ÁG
♦K9
♣KG743
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 grand * Dobl
2 hjörtu 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Austur vekur á veiku grandi (12-
14), sem suður doblar fyrst með öll
spilin og freistar svo gæfunnar í
þremur gröndum þegar norður leyfir
sér að melda. En ekki er samning-
urinn glæsilegur.
Út kemur hjartafjarki upp á kóng
austurs. Er einhver von?
Það þarf góðan arkítekt til að
teikna upp vinningslegu. Hjartað
verður að vera 6-2, og svo þarf aust-
ur að eiga ÁDx í laufi. Til að byrja
með er hjartakóngur dúkkaður. Suð-
ur fær næsta slag á ásinn og spilar
svo hálaufi að heiman – kóng eða
gosa.
Norður
♠76
♥865
♦Á87432
♣52
Vestur Austur
♠1043 ♠G982
♥D107432 ♥K9
♦G ♦D1065
♣1086 ♣ÁD9
Suður
♠ÁKD5
♥ÁG
♦K9
♣KG743
Austur fær slaginn og spilar vænt-
anlega spaða. Suður tekur, fer inn í
borð á tígulás og spilar laufi. Hvort
sem austur dúkkar eða drepur, tekst
með þessu móti að fríspila laufið upp
á þrjá slagi án þess að vestur komist
inn til að taka hjartaslagina.
Lærdómurinn er augljós: Aldrei að
gefast upp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.isStaðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Spaugstofuraunir
RÉTT Í þessu berst Mogginn inn
úr dyrunum með spaugstofuraun-
um Halldórs Þorsteinssonar skóla-
stjóra og fyrrverandi leikdómara.
Telur Halldór í skemmtilegum
pistli að Spaugstofan megi svo
sannarlega muna sinn fífil fegri, nú
sé Snorrabúð stekkur, rónarnir
svipur hjá sjón, eftirstöðvarnar
ekkert nema aulafyndni sem engan
gleðji, að minnsta kosti ekki hugs-
andi mann.
Ja, hérna. Ekki er það gott. En
undirritaður leyfir sér nú samt fyrir
hönd fjölmargra lítt hugsandi
manna hér vestra og reyndar
margra gáfnaljósa líka, að mótmæla
harðlega þessum ályktunum dóm-
arans. Sannleikurinn er nefnilega
sá, að oft er Spaugstofan það eina
sem maður bíður eftir og hlakkar til
að sjá í vikulokin í Myndvarpinu,
eins og séra Baldur kallar Sjón-
varpið. Um daginn fóru drengirnir
á slíkum kostum, svo dæmi sé
nefnt, að unun var að. Margir vit-
grannir menn um allt land hlógu sig
máttlausa þegar Pétur Blöndal var
tekinn til kostanna. Og Björgólfur!
Óborganlegt. Þannig mætti enda-
laust telja. En meðal annarra orða.
Hvað um gömlu alvöru Spaug-
stofuþættina sem skólastjórinn
nefnir. Mætti ekki endursýna þá?
Það mundi gleðja mann og annan.
Hins er skylt að geta að það er
rétt hjá leikdómaranum að það eru
ekki alltaf jólin. Það á jafnt við um
Spaugstofuna sem aðrar stofur. En
það má aldrei verða að dregið sé
niður í spaugurunum okkar. Síst í
skammdeginu. Og þeir eru vel
komnir að launum sínum. Verður er
verkamaðurinn launanna!
Hallgrímur Sveinsson,
Brekku, Dýrafirði.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
LISTAKONAN Sigríður
Ólafsdóttir opnaði á laug-
ardag í Suðsuðvestri. Sýn-
inguna kallar hún „Myndir af
fólki“. Sýning Sigríðar stend-
ur til 26. febrúar en Suðs-
uðvestur er til húsa að Hafn-
argötu 22 í Reykjanesbæ.
Myndir af fólki
í Suðsuðvestri
Fréttasíminn
904 1100