Morgunblaðið - 06.02.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 33
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup
Fös. 10. feb.kl. 20 Örfá sæti laus
Lau. 11. feb.kl. 19 Örfá sæti laus
Lau. 11. feb.kl. 22 AUKASÝNING
Fös. 17. feb kl. 19 AUKASÝNING
Lau. 17. feb kl. 22 AUKASÝNING
Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT
Lau. 18. feb kl. 22 UPPSELT
Miðasala opin
allan sólarhringinn
á netinu.
Síðustu
sýningar!
Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum.
Stóra svið
SALKA VALKA
Fi 16/2 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING!.
WOYZECK
AUKASÝNINGAR
Lau 11/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20
Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
SÝNINGAR UM HELGINA, UPPSELT.
SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA!
CARMEN
Fö 10/2 kl. 20S Su 19/2 kl. 20
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Fö 3/3 kl. 20
Lau 11/3 kl. 20 Su 12/3 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 11/2 kl. 14 FORSÝNING UPPSELT
Su 12/2 kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 18/2 kl. 14 Su 19/2 kl. 14
Su 26/2 kl. 14 Lau 4/3 kl. 14
Nýja svið / Litla svið
MANNTAFL
Mi 22/2 kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS.
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Fi 9/2 kl. 20 UPPS. Fö 10/2 kl. 20 UPPS.
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Lau 18/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 Fi 23/2 kl. 20
Fö 24/2 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Su 12/2 kl. 20 Mi 1/3 kl. 20
NAGLINN
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Su 12/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 UPPS. Lau 25/2 kl. 20
HUNGUR
FORSÝNINGAR, MIÐAV. 1.200- Kr.
Þr 14/2 kl. 20 Mi 15/2 kl. 20
Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20
Lau 18/2 FRUMSÝNING UPPSELT
Sýnt á NASA við Austurvöll
Laugardagur 4. febrúar - Örfá sæti
Sunnudagur 5. febrúar - Uppselt
Fimmtudagur 9. febrúar - Örfá sæti
Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og í síma: 575 1550
! "
# $ #
%
& # $ # ' $ #
( # $ # ( #) $ #
***
+
! "# $ %& '& ( )
* &)+,)+- & ! # #)
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3
O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 Bd7 13. Rf1 Hac8 14. Re3 cxd4
15. cxd4 Rc6 16. d5 Rb4 17. Bb1 a5 18.
a3 Ra6 19. b4 axb4 20. axb4 Db7 21.
Bd2 Bd8 22. Bd3 Bb6 23. Rc2 h6 24.
Rh4 Rh7 25. Df3 Rg5 26. Dg3 Rc7 27.
Re3 Ha8 28. Ref5 Hxa1 29. Re7+ Kh8
30. Hxa1 Rh7 31. Df3 Rf6 32. Bxh6
Ha8 33. Hf1 Rce8 34. Bc1 Ha1 35. Rhf5
Dc7 36. Bd2 Hxf1+ 37. Kxf1 g6 38. Re3
Kg7 39. g4 Rh7 40. Kg2 Db7
Staðan kom upp í A-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Ungverski stórmeistarinn Peter Leko
(2740) hafði hvítt gegn Gata Kamsky
(2686). 41. Rc4! g5 41. ... bxc4 hefði
verið svarað með annarri mannsfórn
42. Bh6+! og svartur yrði óverjandi
mát eftir 42…Kxh6 43. Dxf7. Eins og
skákin tefldist gat hvítur auðveldlega
brotist í gegnum varnarmúr svarts. 42.
Ra5 Da8 43. Rf5+ Kf8 44. h4 Bd8 45.
Rh6 f6 46. hxg5 f5 og svartur gafst
upp um leið.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
KRISTÍN Halldórsdóttir Eyfells
(1917–2002) bjó meginhluta ævi sinn-
ar í Bandaríkjunum þar sem hún nam
sálfræði og myndlist á sjöunda áratug
síðustu aldar. Kristín lét fyrst að sér
kveða í höggmyndum en síðustu 20 ár
ævi sinnar einblíndi hún á málverkið.
Þar bar hæst myndröðin „Fræg and-
lit“ sem nú er til sýnis í Hafnarhúsi
Listasafns Reykjavíkur auk mynd-
raðar sem nefnist „Óþekktar konur“.
Þetta eru þó engar venjulegar port-
rettmyndir heldur notar listakonan
andlitsdrætti fyrirmynda sinna,
hrukkur og skorur, til að skapa ríkt
samspil á milli lita og forma og draga
fram landslagið sem er markað í and-
litum fólks. Útkoman sýnist sem hið
furðulegasta húðflúr svo að ætla
mætti að maður stæði frammi fyrir
portrettmyndum af þjóðhöfðingjum
eða seiðmönnum frumstæðs ætt-
bálks.
Það að mála portrett af frægu fólki
er auðvelt að tengja við verk Andy
Warhols. En það liggur augljóslega
annað að baki málverka Kristínar en
að upphefja dægurmenningu eins og
Warhol gerði. Þvert á móti þá hjálpar
flúrið til við að leiða mann gegn um
yfirborðið eða ímyndina. Gott er að
hafa í huga þegar maður horfir á
þessar myndir að merking orðsins
„andlit“ er „ásýnd andans“. Þannig
tekur þetta íslenska orð undir með
Fyrstu bók Móse að guð hafi skapað
manninn í sinni mynd. Það er hins
vegar algengur misskilningur og van-
hugsað viðhorf að mynd guðs hafi þá
eitthvað með form mannsins að gera
eða efnið sem gefur okkur ímynd. Að
guð hafi þá hendur, fætur og haus.
Hin sanna mynd er sú sem við sjáum
handan ímyndar og efnis. Sú mynd
sem við mætum þar sem „ekkert“ er
(í efnislegum skilningi). Efnið er, eins
og menn hafa vitað öldum fyrir Krist,
bara blekking. Það er því ekki að
ástæðulausu að margir frumstæðir
höfðingjar og andans leiðtogar
(shaman) hafi flúrað andlit sín fyrir
tilkomumikla ritúala þar sem flúrið
leysir upp efnislega ímynd mann-
eskju eða persónu. Því get ég vel tek-
ið undir heilræði Hannesar Lár-
ussonar sýningarstjóra, „að gefa sér
tíma til að horfast í augu við málverk
Kristínar og „súmma“ svo inn“. Þá
skiptir ekki máli hvort fyrirmyndin er
af frægu andliti eða óþekktri konu.
Efnið og yfirborðið leysist hvort sem
er upp.
Alberto Giacometti flúraður í fram-
an að hætti Kristínar Eyfells.
Hin sanna mynd
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur – Hafn-
arhús
Opið alla daga frá 10–17. Sýningu lýkur
26. febrúar.
Kristín Halldórsdóttir Eyfells
Alberto Giacometti flúraður í framan að hætti Kristúnar Eyfells.
Jón B.K. Ransu
Á CAFÉ Karólínu
á Akureyri opnaði
Ósk Vilhjálms-
dóttir á laug-
ardag sýningu
sína Scheißland.
Sýningin var upp-
haflega unnin fyr-
ir Íslandskynn-
ingu í Köln í Þýskalandi í nóv-
ember.
Ósk stundaði nám í Reykjavík og
Berlín en hún á að baki fjölda sam-
sýninga og einkasýninga hérlendis
og erlendis. Nánar má lesa um lista-
manninn á slóðinni http://this.is/
osk/.
Sýningin í Café Karólínu stendur
til 3. mars, en kaffihúsið er til húsa í
Kaupvangsstræti 23.
Scheißland
á Karólínu
Í GALLERÍI Sæv-
ars Karls var
opnuð á laug-
ardag sýning á
verkum Jónasar
Viðars myndlist-
armanns.
Jónas útskrif-
aðist frá Mynd-
listarskólanum á Akureyri 1987 og
stundaði framhaldsnám á Ítalíu
1990 til 1994.
Hann á að baki einka- og sam-
sýningar bæði hérlendis og er-
lendis.
Sýning Jónasar stendur til 23.
febrúar.
Jónas Viðar
hjá Sævari
ÓVENJU mikil aðsókn hefur verið í
Borgarleikhúsið að undanförnu og
það er greinilegt að gjafakortin í
Borgarleikhúsið voru vinsæl jóla-
gjöf þar sem gríðarleg aukning var
á sölu þeirra fyrir jól. Undanfarin
ár hefur janúar ekki þótt góður
leikhúsmánuður en eitthvað virðast
leikhúsvenjurnar vera að breytast
hjá landanum. Leikhúsið hefur orð-
ið að bregðast við aðsókninni með
aukasýningum á sex af þeim sýn-
ingum sem sýndar eru í húsinu.
Þær sýningar sem um ræðir eru
Woyzeck, Salka Valka, Manntafl,
Brilljant skilnaður, Kalli á þakinu
og Belgíska Kongó sem nú gengur
fyrir fullu húsi þriðja leikárið í röð.
Og þrátt fyrir misjafna dóma hefur
aðsókn á Carmen verið með ein-
dæmum góð og eftirspurn eftir sæt-
um á Ronju ræningjadóttur, sem
frumsýnd verður um miðjan febr-
úar, er komin á fljúgandi ferð.
Landinn er leikhúsþyrstur og Borg-
arleikhúsið brynnir sem aldrei fyrr.
Mikil aðsókn í Borgarleikhúsið