Morgunblaðið - 24.03.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 11
FRÉTTIR
fimmtudag,
föstudag
og laugardag
Opið til kl. 16 laugardag
FERÐATÖSKUDAGAR
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814
Góðar fermingargjafir
20%afsláttur afferðatöskum
�
��
�
��
�
��
��
�
��
�
�
� ��
�
�
�
�
�
HELGARTILBOÐ
FRÁBÆR
ÖLL PALAZZO RÚM MEÐ 25% AFSLÆTTI
Sími: 534 5200
Bæjarlind 4, Kópavogi
www.draumarum.is
Verðdæmi:
140x200 verð áður kr. 74.700 verð nú kr. 56.025
Eða kr. 4948 á mánuði í 12 mánuði
EF VERSLAÐ ER FYRIR MEIRA EN 50 ÞÚSUND
FYLGIR HEILSUKODDI MEÐ Í KAUPBÆTI!
PÁSKAEGG FYLGIR ÖLLUM SELDUM RÚMUM
ÖLL öryggistæki, lendingarbúnaður
og samskipti á Keflavíkurflugvelli er
tengt í gegnum rafkerfi varnarliðs-
ins og hafa trúnaðarmenn Rafiðnað-
arsambandsins á Suðurnesjum var-
að við því völlurinn gæti orðið
óstarfhæfur ef varnarliðið tekur
búnað sinn með sér. Nauðsynlegt er
fyrir íslensk stjórnvöld að gera sér
grein fyrir þessu að mati Guðmund-
ar Gunnarssonar formanns Rafiðn-
aðarsambandsins en miðstjórn þess
hefur ályktað um málið. Guðmundur
segir Keflavíkurstöð varnarliðsins
ólíka öðrum erlendum herstöðvum
Bandaríkjanna í Evrópu að því leyt-
inu að þar er Bandaríkjaher ekki
með alþjóðlegan flugvöll eins og hér.
„Og sums staðar erlendis hafa þeir
við brotthvarf sitt af herstöðum skil-
ið eftir óvirka draugabæi sem gera
svo sem engan óskunda,“ segir hann.
„En á Keflavíkurflugvelli yrði staðan
þannig að flugturninn, brautarlýs-
ing, lendingarbúnaður og slíkt færi
úr sambandi um leið og herinn fjar-
lægði sinn búnað.
Allt í 110 volta kerfi
Ef íslenskir ráðamenn hefja ekki
undirbúning að því að bregðast við
þessu, gætum við lent í algerri hönk,
því það gæti tekið sinn tíma að koma
þessu í gang aftur.“
Guðmundur bendir líka á að allt
rafkerfi á Keflavíkurvelli er banda-
rískt þ.e. 110 volta kerfi í stað 220
volta kerfis sem tíðkast á Íslandi.
„Ef Íslendingar ætla að nota þennan
búnað eins og talað hefur verið um
hvort heldur er um að ræða kvik-
myndaver, öryggisfangelsi eða ann-
að, þá þarf að endurnýja rafkerfið á
vellinum eins og það leggur sig.“
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands-
ins segir í ályktun sinni frá í gær að
stjórnvöld eigi einnig að sjá til þess
að Bandaríkjamenn ljúki sem fyrst
við að þrífa upp eftir sig það sem þeir
hafa skilið eftir í íslenskri náttúru
víðsvegar um landið. Guðmundur
hefur í þessu sambandi áhyggjur af
flugvallarsvæðinu auk fleiri svæða á
landinu. „Miðað við það sem við höf-
um séð hér og heyrt erlendis frá
höldum við að það verði gífurleg
vinna við að hreinsa upp flugvallar-
svæðið og koma því í viðundandi horf
ef herinn fer með sama hætti og
hann er þekktur fyrir annars stað-
ar.“
Flugturninn og brautar-
lýsing færi úr sambandi
Morgunblaðið/RAX
Rafiðnaðarsambandið segir að öll öryggistæki, lendingarbúnaður og sam-
skipti á Keflavíkurflugvelli séu tengd í gegnum rafkerfi varnarliðsins og
völlurinn gæti orðið óstarfhæfur ef varnarliðið taki búnað sinn með sér.
Rafiðnaðarsambandið varar við rafmagnsleysi á vellinum
HÆSTIRÉTTUR sneri í gær dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur og sýkn-
aði mann sem ákærður var fyrir að
hafa í ágúst 2002 notað sér skerta
andlega færni 82 ára gamals manns
með því að fá hann til að taka lán til
að greiða skuldir sínar og leggja fé í
fyrirtæki kunningja ákærða.
Héraðsdómur hafði dæmt mann-
inn í fjögurra mánaða fangelsi, og
til að greiða samtals rúmlega 821
þúsund krónur í málskostnað og
málsvarnarlaun. Hæstarétti þótti
ekki sannað, gegn neitun ákærða
sem hafði þekkt manninn í skamm-
an tíma, að ákærði hafi átt að gera
sér grein fyrir því að hagir aldraða
mannsins væru með þeim hætti að
hann væri ófær um að gera sér
grein fyrir skuldbindingu sinni þeg-
ar hann skrifaði undir skuldabréfið,
og sýknaði því manninn af því broti
sem hann var ákærður fyrir.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að ekki hafi notið við samtímagagna
um andlega færni mannsins um það
leyti sem hann gekkst undir fjár-
hagslegar skuldbindingar í ágúst
2002. Við mat á andlegri færni hans
í janúar 2003 hafi þó komið í ljós
töluverð andleg skerðing.
Ákærði hélt því fram að fjármál
mannsins hafi verið komin í ólestur,
og hann hafi beðið ákærða að sjá
um fjármál sín. Þar sem maðurinn
átti ekki fé til að greiða skuldir hafi
hann samþykkt að taka lán til að
greiða þær upp, auk þess að leggja
fé til að stofna fyrirtæki félaga
ákærða.
Hæstaréttardómararnir Ingi-
björg Benediktsdóttir, Jón Steinar
Gunnlaugsson og Ólafur Börkur
Þorvaldsson dæmdu málið, en Helgi
Magnús Gunnarsson saksóknari
flutti málið fyrir hönd ákæruvalds-
ins. Verjandi ákærða var Róbert
Árni Hreiðarsson hdl.
Sýknaður af því að nota sér
skerta andlega færni
LÁNASÝSLA ríkisins sendi í gær
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Lánasýsla ríkisins vill koma á
framfæri athugasemdum um ný-
legan fréttaflutning þess efnis að
lánstraust íslenska ríkisins sé
slæmt. Það er gert í því skyni að
leiðrétta þann misskilning sem
sprottið hefur af þeirri ákvörðun
Lánasýslunnar að taka engum til-
boðum í útboði 22. mars sl.
Lánasýslan valdi að taka engum
tilboðum að þessu sinni þrátt fyrir
að hafa móttekið tilboð að fjárhæð
3.700 m.kr. Ástæðurnar eru eft-
irfarandi: Tilboð frá aðalmiðlurum
voru lítið eitt hærri en búist var
við og hærri en tilboð á eftirmark-
aði þegar útboð fór fram. Þetta
stafar líklega af óvissu á markaði
vegna nýbirtra og að sumu leyti
villandi skýrslna um íslenskt efna-
hagslíf.
Lánasýslan telur að skýrslur
þessar hafi valdið fjárfestum erf-
iðleikum við að mynda skoðun á
efnahagslífinu og að viðbrögð fjár-
festa við umræddum skýrslum séu
tímabundin. Lánasýslan telur því
að tilboð í framtíðinni muni end-
urspegla betur ástand efnahags-
lífsins.
Afgangur ríkisfjármála á síðasta
ári sem var 3,8% af vergri lands-
framleiðslu hefur leitt til góðrar
stöðu ríkissjóðs. Af þeim sökum er
ekki þörf á útgáfu ríkisbréfa til að
fjármagna ríkissjóð.
Eins og kemur fram í ársáætlun
Lánasýslu ríkisins fyrir árið 2006
þá er innlend lánsfjárþörf engin og
er stefnt að því að ekkert álag
verði á innlendan lánamarkað.
Þetta verður gert með því að gefa
út ríkisbréf fyrir 20 ma.kr. og
verður söluandvirðinu ráðstafað til
að forinnleysa ríkisbréf í flokki
RIKB 07 0209 fyrir 10 ma.kr. og
til að lækka stöðu ríkisvíxla um 10
ma.kr. Útboðin eru því fyrst og
fremst haldin til að byggja upp
markflokk ríkisbréfaflokksins
RIKB 10 0317 á eftirmarkaði en
ekki til að fjármagna ríkissjóð.
Lánasýslan harmar neikvæðan
fréttaflutning um útboðin og hafn-
ar öllum fullyrðingum um að útboð
hafi mistekist. Staðreyndin er að
íslenska ríkið fær mjög góðar ein-
kunnir hjá lánshæfismatsfyrir-
tækjunum Moody’s, Standard and
Poor’s og Fitch, sem eru á bilinu
AA+ til AAA fyrir innlendar lang-
tímaskuldbindingar.“
Yfirlýsing frá
Lánasýslu ríkisins
FRAMKVÆMDIR við undirbúning
lóðar fyrir fyrirhugaða byggingu nýs
tónlistar- og ráðstefnuhúss, hótels,
skrifstofubyggingar og íbúðarbygg-
ingar við Austurhöfn fara senn að
hefjast með tilheyrandi óþægindum
fyrir þá er um svæðið fara en götum
mun verða lokað tímabundið og bíla-
stæðum mun fækka um 150 stæði.
Að sögn Jóns Halldórs Jónassonar,
upplýsingastjóra framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar, munu flutninga-
bílar vera nokkuð á ferðinni þar á
næstunni vegna framkvæmdanna og
verða ökumenn því að sýna biðlund.
Einhverjar truflanir geta orðið á um-
ferð, líklega um miðjan maí, þegar
gert er ráð fyrir flutningi á Geirsgötu
til bráðabirgða. Geirsgata verður svo
aftur flutt til í öðrum hluta fram-
kvæmdanna en það kemur líklega
ekki til fyrr en snemma á árinu 2007.
Bílastæðin á svæðinu munu snar-
minnka við framkvæmdirnar en lokað
verður fyrir stæðin við höfnina og
einnig gegnt Bæjarins bestu við Póst-
hússtræti. Eru það um 150 bílastæði
en Jón Halldór segir starfshóp vinna í
að finna lausnir á vandanum. Ekki
liggur fyrir hvenær stæðunum verður
lokað en líklegt er að það verði í vor.
Óþægindi
vegna fram-
kvæmda