Morgunblaðið - 24.03.2006, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
NÝVERIÐ ákvað Schola cantorum,
sem hefur verið starfandi kamm-
erkór við Hallgrímskirkju frá árinu
1996, að stokka upp starfsemi sína
frá grunni. Efnt var til áheyrn-
arprófa fyrir allar stöður kórsins,
alls fjórtán og miðast sá fjöldi við
fyrsta verkefni hins breytta kórs
sem eru tónleikar í Hallgrímskirkju
hinn 26. mars næstkomandi.
Ástæðan fyrir breytingunni er
ákvörðun kórsins um að starfrækja
atvinnukór. Benedikt Ingólfsson,
verkefnastjóri kórsins, talar um að
hinn nýi Schola cantorum sé ákveð-
inn tilraunahópur í íslensku tónlist-
arlífi.
Stuðlað að stöðugleika
„Það var alltaf metnaður fyrir
því að hægt væri að borga söngv-
urum eitthvað fyrir vinnuna sína,
bæði fyrir æfingar og tónleika.
Þetta er tilraun til þess. Hópurinn
fékk óskabyrjun í kjölfar þess að
vera útnefndur tónlistarhópur
Reykjavíkur 2006 og fékk af því til-
efni myndarlegan styrk frá borg-
inni. Nú er að sjá hvernig til tekst
með frekari fjármögnun,“ segir
Benedikt. Áheyrnarprófin voru
rækilega auglýst og viðbrögðin
mikil. Eftir fjögurra daga fyrirsöng
var settur saman nýr hópur sem
kemur saman í fyrsta skipti undir
merkjum Schola cantorum. „Ann-
ars mun fyrirkomulagið vera þann-
ig að það verður ráðið fólk í hvert
verkefni fyrir sig. Það er samt
reiknað með því að það verði
ákveðinn kjarni í flestum verk-
efnum. Við verðum að hafa hóp
sem getur fengið að þroskast.“
Einnig sannur áhugakór
Benedikt segir það ekki vera al-
gert nýmæli hérlendis að meðlimir
sönghópa fái greitt fyrir söng sinn
við tónleikaverkefni og hefur sjálf-
ur tekið þátt í slíku en þá sé yf-
irleitt um sérhæfð og afmörkuð
verkefni að ræða, t.d. á sumrin.
„Auk þess eru hér vissulega starf-
andi frábærir kórar, stórir sem
smáir, sem margir myndu telja að
fullnægðu fyllilega skilyrðum at-
vinnumennskunnar, listrænt séð.
Sérstaða kammerkórsins Schola
cantorum í þessu tilliti felst í því að
sinna launuðum tónlistarverkefnum
allt starfsárið líkt og tíðkast hjá
kammersveitum hljóðfæraleik-
aranna, og er atvinnukór í þeim
skilningi og helst náttúrulega list-
rænt séð líka. Þetta gerir okkur
kleift að halda meiri stöðugleika í
mannskap – minni hætta er á að
fólk gangi úr skaftinu vegna laun-
aðra verkefna annars staðar. Meg-
inatriðið er þó vissulega að sinna
tónlistinni sjálfri af metnaði og
áhuga og er Schola cantorum að
því leyti sannur áhugakór!“
Margþættar ástæður
Hörður Áskelsson hefur stjórnað
Schola cantorum fyrir og eftir
breytinguna. Hann segir að ástæð-
ur breytingarinnar séu marg-
þættar. „Á bak við þetta er nátt-
úrulega löngun til að geta veitt
söngvurum, sem eru hér margir
með góða menntun, færi á að geta
lifað af söngnum. Það hefur skort
atvinnutækifæri fyrir vaxandi hóp
menntaðs söngfólks hér á landi,“
segir Hörður. „Það er auk þess
markmið að geta, með ennþá betri
hætti, sinnt nýsköpun í íslenskri
tónlist. Það á eftir að koma í ljós
hvort þetta gengur því að þetta er
náttúrulega spurning um það hvort
við getum aflað okkur fjármuna.
Það gerist með tvennum hætti,
annars vegar með því að við fáum
einhverja til að styrkja okkur eða
við fáum áhorfendur sem vilja
hlusta á okkur og kaupa miða.
Við erum vongóð um að með
góðu starfi getum við sannað til-
verurétt þessa hóps. Það er því
mikið í húfi að við stöndum okkur,“
segir Hörður. Nú þegar liggur fyr-
ir þétt dagskrá hjá kórnum sem
nær fram á næsta ár. „Þar kemur
inn mjög áhugavert samstarf við
Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem
við verðum meðal annars með
frumflutning á kór- og sinfón-
íuverki Jóns Leifs í október. Það er
Eddu-óratoría, gríðalega umfangs-
mikið verk sem Jón Leifs samdi
seint á sínum ferli. Það verða stór-
tíðindi í íslenskri tónlistarsögu þeg-
ar þetta verk heyrist í heild sinni.“
Orð máluð með tónum
„Það er bara Schütz og ekkert
annað,“ segir Hörður um fyrstu
tónleika hins nýja kórs í Hallgríms-
kirkju á sunnudaginn 26. mars en
þá verða eingöngu flutt verk eftir
Heinrich Schütz, eins merkasta
tónskálds Þýsklands á tímum
snemmbarokksins. „Það er búið að
vera langþráður draumur hjá mér
að flytja meira af Schütz en ég hef
gert hingað til. Þetta er tónskáld
sem ég kynntist á námsárum mín-
um þegar ég var að læra kórstjórn
út í Þýskalandi og hreifst þá þegar
mjög af þessari kórtónlist sem er
algjör snilld. Þetta er í fyrsta skipti
sem flutt er efnisskrá sem er sam-
sett úr þessum glæsilegu mótettum
sem eru fyrir sex radda kór. Allir
fjórtán söngvarar kórsins koma
fram sem einsöngvarar.“
Verkin á þessum tónleikum eru
öll mjög trúarleg, öll úr bibl-
íutextum, og vill Hörður meina að
um sé að ræða mjög svo leikræna
útfærslu á þessum textum. „Út-
færslan er litskrúðug. Schütz var
meistari í að mála orð með tónum.
Þetta er eins og myndir hjá hon-
um, þegar einhver talar um him-
ininn þá fara raddirnar upp og þeg-
ar talað er um jörðina fara
raddirnar niður. Þetta er mjög
myndræn og leikræn tjáning þó að
við séum ekki að gera neitt nema
að syngja.“ Áhrif Schütz í þýska
tónlistarheiminum eru mikil. Mörg
seinni tíma tónskáld byggðu á
stílnum sem Schütz bjó til og þró-
aði og ber þar helst að nefna Jo-
hann Sebastian Bach. Tónleikarnir
verða sem fyrr segir á sunnudag-
inn í Hallgrímskirkju og hefjast
klukkan 16.00.
Tónlist | Schola cantorum heldur tónleika í Hallgrímskirkju á laugardaginn
Atvinnukórinn Schola cantorum
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Schola cantorum, einnig sannur áhugakór.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Í DAG verður opnaður fyrsti hluti
hins víðtæka sýningarverkefnis Ret-
hinking Nordic Colonialism í
Reykjavík. Fyrir þessari sýningu
stendur Norræn miðstöð nútíma-
listar (NIFCA) og taka tíu listamenn,
fræðimenn og aðgerðasinnar frá Ís-
landi, Grænlandi, Svíþjóð, Trínidad,
Tansaníu, Indlandi og Bandaríkj-
unum þátt í þriggja vikna sýningu og
fjögurra daga smiðju. Í sameiningu
munu þau skyggnast inn í gleymda
sögu norrænnar nýlendusögu og
ræða um hvernig þessi saga heldur
áfram að hafa áhrif á innviði nor-
rænna samfélaga í dag. Þessi fyrsti
hluti fer fram í Nýlistasafninu og
ReykjavíkurAkademíunni og markar
upphafið á þessu verkefni sem er í
fimm hlutum. Síðari hlutar verkefn-
isins fara fram á Grænlandi, í Fær-
eyjum og í Samahéruðum Finnlands
á tímabilinu apríl til júlí í ár.
Sýningin hér á landi ber yf-
irskriftina Fyrrverandi nýlendur –
núverandi heimsveldi: hversu „síð“
er síðnýlenduhyggja? Listamenn-
irnir, sem hafa allir unnið með
spurningar nýlenduhyggju og síðný-
lenduhyggju, sýna ljósmyndir, inn-
setningar, pappírsverk, myndbönd
og kvikmyndir.
Á morgun hefst svo fjögurra daga
smiðja í ReykjavíkurAkademíunni
sem ber yfirskriftina Endurlit til
norrænnar nýlenduhyggju: Stað-
bundið minnisleysi – hnattræn áhrif.
Þar koma fram fimm fyrirlesarar
sem spyrja hvers vegna nýlendu-
fortíð Norðurlanda hefur verið bæld
niður og unnið verður að því að leita
nauðsynlegra spurninga sem stuðlað
geta að framsækinni umræðu í þess-
um heimshluta.
Saga í afneitun
„Við erum mjög áhugasöm um ný-
lendusöguna því þetta er saga sem
fólk er ekki meðvitað um á stærstu
Norðurlöndunum en þetta er samt
mjög nálægt okkur, við erum með
fyrrum nýlendur eins og Ísland og
núverandi eins og Færeyjar og
Grænland,“ segir Tone Olaf Nielsen
sem er sýningarstjóri ásamt Frede-
rikke Hansen. „Við köllum sýn-
inguna Rethinking Nordic Colonial-
ism vegna þess að við viljum með
henni rannsaka hvers vegna fólk
hefur ekki vitneskju um þessa fortíð
okkar. Hún er annaðhvort ekki
nægilega kynnt eða fólk er í afneit-
un á þeirri staðreynd að Danmörk
og Svíþjóð voru viðloðandi viðskipti
með þræla og plantekrur.
Við erum að reyna að vekja fólk
upp með þessari sýningu. Við höfum
ennþá nýlendur hér, við erum ekki
öll sátt við innflytjendur og eigum í
stórum vanda með að eiga við fólk
sem er öðruvísi, þannig að það mætti
segja að það séu margir ólíkir ný-
lenduþættir ennþá í gangi.
Við erum líka að segja fólki að til
þess að skilja okkur í dag þurfum við
að fara til baka og skoða þessa sögu
því þar byrjaði t.d hugsunin um að
sumt fólk sé betra en annað.“
56 listamenn taka þátt
Sýningin verður í fimm þáttum og
er byrjað hér á Íslandi.
„Hér setjum við fram spurn-
inguna um hvað nýlendustefna sé.
Síðan förum við til Grænlands í
næsta mánuði þar sem við tökum á
raunveruleika nýlenduhyggju og í
Færeyjum fjöllum við mikið um per-
sónulega mótstöðu við hana.“
Í heildina taka 56 listamenn þátt í
þessu sýningarverkefni en á hverj-
um stað sýna nýir listamenn ólík
verk. „Síðasta sýningin verður í
Rovaniemi í Finnlandi en síðasti
þáttur þessa verkefnis verður DVD-
mynd sem kemur út í nóvember og
sýnir það besta frá hverjum stað.
Myndin kemur út í löndunum sem
voru og eru nýlenduherrarnir.“
Tone segir margt ólíkt vera í boði
og það séu ekki eingöngu listamenn
frá Skandinavíu sem sýni. „ Hérna
sýnir m.a. bandaríski listamaðurinn
Kara Walker vatnslitamyndir sem
virðast nokkuð saklausar og sætar
við fyrstu sýn en við nánari skoðun
kemur í ljós að þær segja frá mis-
notkun plantekrueigenda á þrælum
sínum.“
Tone segir þetta vera mjög póli-
tíska sýningu. „Það hafa ekki verið
gerðar miklar rannsóknir á ný-
lendusögu Norðurlandanna og þetta
er tilraun til að hefja endurhugsun á
henni,“ segi Tone að lokum og bætir
við að í lok þessa árs verði NIFCA-
miðstöðin lögð niður og þetta sé því
síðasta verkefni hennar.
Sýningin er á 3. hæð Nýlistasafns-
ins og stendur frá 24. mars til 16.
apríl. Smiðjan fer fram í Reykjavík-
urAkademíunni, sem er staðsett á 4.
hæð í JL-húsinu, Hringbraut 121,
dagana 25. til 28. mars frá kl. 12.00
til 17.00 alla dagana.
Myndlist | Fyrsti hlutinn af fimm í
sýningaröð um norræna nýlendusögu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tone Olaf Nielsen sýningarstjóri segir listamennina sýna ólík verk um nýlendusögu Norðurlandanna.
Norræn nýlendu-
hyggja hugsuð
upp á nýtt
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Upplýsingar um dagskrá sýningar
og smiðju má finna á : www.re-
thinking-nordic-colonialism.org.