Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 41 UMRÆÐAN ÖLL viljum við upplifa öryggi, hvar sem við búum. Við viljum vera örugg þegar við förum ferða okkar og viljum að eignir okkar og samfélagsins séu öruggar. Við viljum líka að börnum okkar sé ekki hætta búin í umhverfi sínu. Öflugt samstarf hef- ur verið milli Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjal- arness, og lögregl- unnar í Reykjavík. Miðgarður og lög- reglan í Reykjavík gerðu samstarfssamn- ing í maí 2000. Hverf- islögregla Grafarvogs deilir húsnæði með Miðgarði sem hefur gefið aukna möguleika á skil- virku samstarfi. Við höfum getað nýtt krafta okkar til að vinna að ýmsum framfara- málum í hverfinu. Þekkingin á hverf- inu og því sem styrkja þarf verður mikil þegar við leggjum saman. Náin samvinna hefur einnig verið við aðr- ar stofnanir og félagasamtök í hverf- inu s.s. frístundamiðstöðina Gufu- nesbæ, skólana, kirkjuna, íbúa- samtök Grafarvogs, íþróttafélög og foreldrafélög. Saman og hvert á sinn hátt höfum við unnið að því að styrkja samfélagið í Grafarvogi. Umhverfi barna og unglinga þarf að vera bæði styðjandi og upp- byggilegt en jafnframt að veita gott aðhald. Að sjálfsögðu eru það for- eldrarnir sem gegna veigamesta hlutverkinu í því sambandi en í nú- tímasamfélagi eru fjölmargir aðrir aðilar sem eru miklir áhrifavaldar í lífi barna og unglinga. Börnum virð- ist hvað mest hætta bú- in þegar þau eru ekki í skipulögðu starfi undir einhvers konar hand- leiðslu fullorðinna ein- staklinga. Því er mjög mikilvægt að allir í þeirra ytra umhverfi séu vakandi fyrir því að vernda þau, styðja og leiðbeina. Samstarf lögreglunnar í Graf- arvogi, Miðgarðs og Gufunesbæjar hefur í mjög ríkum mæli mið- að að því að styðja börn og unglinga í hverfinu og bregðast við vísbendingum um aðsteðjandi hættu eða neikvæða þró- un. Við höfum í sameiningu, bæði vegna nálægðarinnar og þekkingar á hverfinu oft á tíðum getað brugðist við vanda á byrjunarstigi og þar með lágmarkað skaðann. Þegar börn og unglingar „mis- stíga sig“ og komast í kast við lögin getur skipt sköpum hvernig brugðist er við. Miðgarður og lögreglan í Reykjavík hafa síðustu 5 ár unnið saman að sáttaumleitunum í saka- málum ósakhæfra barna. Þetta verkefni kallast Hringurinn og mið- ar að því að brotamaður og brotaþoli ásamt foreldrum og/eða öðrum sem málinu tengjast vinna saman að því með aðstoð sáttamanns að ná sáttum og finna viðeigandi málalyktir. Í Hringnum gefst brotaþola tækifæri til þess að tjá upplifun sína af því að brotið var gegn honum og brota- manni að tjá sig um sína hlið máls- ins. Aðalmarkmiðið með Hringnum er alltaf að styrkja jákvæða hæfi- leika brotamannsins þannig að hann komi sterkari út úr vinnunni og verði þar með ólíklegri til að leiðast út í frekari afbrot. Það sem hefur helst gert það að verkum hvað þessi vinna með börnum hefur tekist vel er sú nánd sem er milli lögreglunnar í Grafarvogi og Miðgarðs og það góða samstarf sem er þar á milli. Hverfisráð Grafarvogs og Mið- garður hafa ásamt lögreglunni í Grafarvogi tekið höndum saman um að bæta umferðaröryggi í hverfinu. Grafarvogur er barnmargt hverfi og því var í þeirri vinnu ekki síst skoðað hvar umferðaröryggi barna væri helst ábótavant. Í þessari vinnu var sú mikla þekking sem lögreglan í Grafarvogi hefur á aðstæðum í hverfinu afar mikilvæg. Nú eru Miðgarður og lögreglan í Grafarvogi að fara af stað með til- raunarverkefnið „Nágrannavarsla“. Unnið verður að því með íbúum einnar götu hverfisins að styrkja tengsl þeirra. Íbúarnir fá fræðslu um hvað nauðsynlegt sé að hafa í huga og hvaða leiðir hafa reynst vel í því skyni að vernda heimili fyrir inn- brotum og skemmdarverkum. Í ljósi reynslunnar er lykillinn að árangursríku samstarfi lögregl- unnar og þjónustumiðstöðvarinnar nálægð þessara tveggja aðila hvor við annan og sjálft samfélagið. Það skiptir miklu máli að vera staðsett í miðri hringiðunni þ.e. vera hluti af umhverfinu og því sem þar fer fram. Árangursríkt samstarf Miðgarðs og lögreglunnar Ingibjörg Sigurþórsdóttir fjallar um samstarfsverkefni Miðgarðs og lögreglunnar í Grafarvogi ’… lykillinn að árang-ursríku samstarfi lög- reglunnar og þjónustu- miðstöðvarinnar er nálægð þessara tveggja aðila hvor við annan og sjálft samfélagið.‘ Ingibjörg Sigurþórsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness. UNDANFARIÐ hefur nokkur umræða verið á síðum Morg- unblaðsins um nauð- syn jarðganga á ýms- um stöðum á landinu. Ekkert hefur verið minnst á Vestfirði, en þeim mun meira á Austurland, Norður- land og jafnvel Suð- urland. Allt eru þetta góðar og nauðsyn- legar hugmyndir. Við lesum t.d. um ein gömul jarðgöng á Austurlandi sem eru einbreið og með blindhæð á miðri leið! Ekki er nokkur vafi á að brýnt er að gera endurbætur á slíkum mannvirkjum. En mér finnst þögnin um hagsmuni okkar Vestfirðinga undarleg og kannski engum að kenna nema okkur sjálfum. Á Vest- fjörðum snúast hlutirnir nefnilega ekki um að gera ný göng í staðinn fyrir gömul eða bæta frekar lé- legar samgöngur með jarð- gangagerð. Á Vestfjörðum er staðan einfaldlega sú, að sam- göngur eru ekki fyrir hendi stór- an hluta ársins. Þar er ég að tala um tengingu norðurhluta og suð- urhluta Vestfjarða. Það vill svo til að ég er með al- veg nýtt dæmi um erfiðleikana sem við er að fást hér. Hinn 9. mars sl. var ákveðið að halda op- inn íbúafund á Reykhólum (sem eru á suðausturhluta Vest- fjarðakjálkans) og þangað ætluðu að mæta menn m.a. frá Ísafirði (sem er á norðvesturhluta Vest- fjarðakjálkans). Um var að ræða framkvæmdastjóra Atvinnuþróun- arfélags Vestfjarða annars vegar og nýráðinn verkefnisstjóra Markaðsstofu Vestfjarða hins vegar. Hvernig skyldi þetta nú hafa gengið? Ekki mjög vel. Nokkrum klukkutímum fyrir fundinn fékk ég símhringingu frá Ísfirðing- unum sem sögðust hafa þurft að snúa við á Dynjandisheiði vegna ófærðar og að fundinum yrði að fresta. Ákveðið var að halda fundinn nokkrum dögum síðar, eða 15.mars. Og nú bar svo við að ferð Ísfirðinganna gekk ágætlega og það tókst að halda fundinn. En hvernig skyldi þeim hafa gengið heim? Um nóttina óku þeir fram á snjóflóð á Hrafnseyrarheiði. Urðu að skilja bíla sína eftir, ganga yfir flóðið og fá far með björgunarsveit heim. Nú gæti einhver haldið að þessi ferða- lög hafi átt sér stað í vondu veðri en það er öðru nær. Veðrið var ágætt, a.m.k. á lág- lendi. Það eru hins vegar vegirnir sem liggja á frumstæðan hátt yfir fjöll í staðinn fyrir að liggja í gegn- um þau sem valda því að þetta er nokkuð al- gengt hér á Vestfjörðum. Skyldu margir ferðamenn á Norðurlandi, Austurlandi eða Suð- urlandi hafa lent í hliðstæðum hremmingum nú í mars 2006? Ég leyfi mér að efast um það og bendi á að vegakerfið á Vest- fjörðum líður fyrir margt; m.a. skort á jarðgöngum. Að loknum Héðinsfjarðar- göngum þarf strax að gera göng á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og önnur göng í framhaldi af þeim undir Dynjandisheiði alveg yfir í Vatnsfjörð. Þangað til eru samgöngur á milli byggðarlaga á Vestfjörðum óviðunandi. Vegir yfir fjöll eiga að heyra sögunni til. Á Vestfjarðavegi nr. 60 gefst nú einstakt tækifæri til þess að fækka fjallvegum um tvo á norðurströnd Breiðafjarðar. Því miður hefur Skipulagsstofnun af skammsýni lagst gegn láglend- isleiðinni sem þar er í boði, þ.e. svokallaðri leið B. Vonandi tekst að hnekkja þeim úrskurði. Burt með fjallvegi! Vestfirðir mega ekki gleymast Einar Örn Thorlacius skrifar um samgöngubætur á Vestfjörðum Einar Örn Thorlacius ’… mér finnstþögnin um hags- muni okkar Vestfirðinga undarleg …‘ Höfundur er sveitarstjóri Reykhólahrepps. ARI TRAUSTI Guðmundsson skrifar í sunnudagsblað Morg- unblaðsins um málefni Óperunnar og vill fullvissa okkur „Kópavogsbúa sem og aðra um að Óperan er alveg á vetur setjandi, hún er engin venjuleg Öskubuska.“ Þar sem mér finnst að hann vitni svona í óbeint í grein sem birtist eftir mig 7. mars í Morg- unblaðinu vil ég aðeins víkja að nokkrum atriðum enn varðandi óperuhúsið og tengja það aðeins aftur við vangaveltur mínar í fyrri grein. Það er fyrst til að taka að það má alls ekki túlka fyrri skrif mín sem svo að ég sé á móti því að Óperan öðlist varanlegan stað í húsi sem þeir óska sér. Ég get alveg séð fyrir mér að komið verði upp þjóðaróperu eins og við eigum Þjóðleikhús. Ég hins vegar verð að benda á þá staðreynd að það er ansi stór hluti miðaldra fólks og yngra sem ekki hlustar á óperutónlist nema kannski eitt og eitt lag. Þannig að ég leyfi mér að efast um svona stórt hús geti nokkurn tíma staðið undir sér á heilsárs grundvelli þótt einstaka sýn- ingar á óperuperlum gætu hugs- anlega gert það. En það var einmitt það sem átti að vera inntakið í minni grein. Það að bæjarstóri Kópavogs rjúki í fjölmiðla og tilkynni að hann sé bara ákveðinn í að reisa óperuhús í Kópa- vogi fyrir Íslensku óperuna og sé byrjaður að safna peningum fyrir henni. Þetta er gert án þess að ræða þetta í bæjarstjórn eða kynna þessa hugmynd fyrir okkur bæjarbúum. Hann lætur teikna hana á ömurlegan stað miðað við hagsmuni okkar Kópa- vogsbúa. Og gerir þetta án þess að nokkuð hafi verið kann- að hver ætli að borga brúsann af rekstrinum. Því að ekki stendur Þjóðleikhúsið undir sér, ekki Sinfóníuhljómsveit Íslands og ekki Borg- arleikhúsið. Þetta eru allt stofnanir sem þurfa mikinn fjárstuðning til að geta rekið sig. Því hefði ég talið nauðsynlegt að fyrst væri ákveðið hverjir það væru sem ætluðu að reka slíkt hús. Er það Íslenska óperan, er það ríkið eða er það Kópavogsbær? Ég sem Kópa- vogsbúi sem borga rúmlega 15 þús- und á mánuði fyrir að hafa barnið mitt í grunnskóla í Kópavogi tel að við höfum ekki ráð á að standa að slíkum rekstri. Við gætum hugs- anlega skaffað lóð undir húsið og sting ég þar upp á stórskipahöfninni í Kópavogi sem er nú ónotuð en búið að eyða í hana hundruðum milljóna. Það mætti t.d. vera eftirlíking af Óperuhúsinu í Sydney. En að öðru leyti geri ég ekki at- hugasemdir við það sem Ari Trausti skrifar, enda er hann einn af uppá- halds fræðimönnum mínum og hans vegna er ég mörgu nær um Ísland og náttúruna hér. Óperuhúsið aftur og nýbúinn Magnús Helgi Björgvinsson fjallar um óperuna í Kópavogi Magnús Helgi Björgvinsson ’En að öðru leyti geri égekki athugasemdir við það sem Ari Trausti skrifar enda er hann einn af uppáhalds fræðimönn- um mínum og hans vegna er ég mörgu nær um Ís- land og náttúruna hér.‘ Höfundur er áhugamaður um betri Kópavog. ÁRIÐ 1984 stóðu Eyfirðingar frammi fyrir því að fá álver í fjörðinn. Ekkert varð úr þeim framkvæmdum þrátt fyrir einhug bæj- arráðsmanna í að fá hingað öflugan iðnað. Fljótlega eftir að ál- vershugmyndir runnu út í sandinn var farin önnur leið til að byggja upp sam- félagið við Eyjafjörð. Stofnaður var háskóli á Akureyri og fyrsta starfsár hans var skólaárið 1987–1988. Síðan hefur hann vax- ið og dafnað og er hann orðinn einn af mátt- arstólpum bæjarlífsins. Hann þjónar í raun fleirum en bæj- arbúum, því fjarnám er hér í boði fyrir fólk frá öllum heimsálfum. Skólinn hefur margfaldast að stærð, bæði að húsakosti og nem- endafjölda og námsframboð hefur aldrei verið meira en um þessar mundir. Umsóknir um skólavist hafa einnig margfaldast á síðustu árum og hefur skólinn þurft að vísa tilvonandi nemendum frá síð- ustu tvö ár. Rekstur skólans hefur alltaf verið erfiður því boginn er spenntur hátt og skólinn ávallt stækkaður til hins ýtrasta. Nú stendur skólinn hinsvegar frammi fyrir því að hann þurfi að taka heldur betur til í fjár- málum sínum vegna enn frekari fjárskorts. Nú reynist ekki unnt að stækka og bæta skólann heldur þarf að fækka deildum og segja upp starfsfólki. Hinn sístækkandi há- skóli þarf nú að minnka til að fara ekki á hausinn. Eru þessar að- stæður líðandi í hinu mjög svo efnaða vel- ferðarríki sem við bú- um í? Meðan er verið að dæla fjármunum í stóriðju og álvers- drauma er einn máttarstólpi norð- lensks samfélags keyrður í svaðið. Er framtíðarsýn okkar svo tak- mörkuð að við sjáum ekki að miklu hagkvæmara er að mennta fólk til framfara og hagsældar en að kaupa einhverja álkónga frá Ameríku til að bjarga efnahag framtíðarinnar. Hvað er eiginlega í gangi hérna. Það mætti halda að ráðamenn í landinu væru búnir að missa vitið. Því reynist ráðamönn- um svona erfitt að auka fjárveit- ingu í sístækkandi háskóla á Norðurlandi þegar þeir eru til- búnir til að eyða miklu meira í ál- ævintýri? Og það er ekki aðeins verið að eyða fjármunum þjóð- arinnar í þá vitleysu, heldur einn- ig náttúru okkar og framtíð- armöguleikum okkar á að nýta þá orku sem til er í þarfari hluti. Ég vona að Norðlendingar og þjóðin öll sýni ráðamönnum í kom- andi kosningum að ekki er hægt að vaða endalaust yfir þjóðina fyr- ir hagsmuni hinna fáu. Því ekki eru það hagsmunir menntaðrar þjóðar að háskólar séu fjársveltir og smækkaðir milli ára. Háskóli á heljarþröm Baldvin Esra Einarsson fjallar um stöðu háskóla á Íslandi ’Ég vona að Norðlend-ingar og þjóðin öll sýni ráðamönnum í komandi kosningum að ekki er hægt að vaða endalaust yfir þjóðina fyrir hags- muni hinna fáu.‘ Baldvin Esra Einarsson Höfundur er nemi við Háskólann á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.