Morgunblaðið - 24.03.2006, Page 62
62 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Epískt meistarverk frá Ang Lee
eeeee
L.I.B. - Topp5.is
V.J.V Topp5.is
S.V. Mbl.
M.M.J Kvikmyndir.com
walk the line
The Producers kl. 5.20, 8 og 10.45
Sýnd í Lúxus kl. 5.20, 8 og 10.45
Big Momma´s House 2 kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Pink Panther kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Yours mine and ours kl. 4 og 6
Rent kl. 8 og 10.45
MARTIN
LAWRENCE
200 kr. afsláttur
fyrir XY félaga
www.xy.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó
BEYONCÉ KNOWLES
STEVE
MARTIN
KEVIN
KLINE
JEAN
RENO
Bleiki demanturinn er horfinn
og heimsins frægastarannsóknarlögregla
gerir allt til þess að klúðra málinu…
VINSÆLASTA
MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
Mamma allra grínmynda
er mætt aftur í bíó!
Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!!
Tristan & Isolde kl. 5.45, 8 og 10.20
Big Momma´s House 2 kl. 6 og 8
The New World kl. 10
FÉLAGARNIR í Imagination voru
fyrstir á svið þetta tilraunakvöld og
áttu býsna flotta innkomu; fyrst birtist
píanóleikari og spilaði þessa líka fínu
laglínur og svo tíndust félagar hans inn
á sviðið einn af öðrum. Heldur hallaði
þó undan fæti þegar allt var komið á
fullt, því lagið bar varla útsetninguna.
Seinna lag þeirra félaga var betra og
einkar vel flutt. Full mærðarlegt þó.
Concrete lét einnig til sín taka á síð-
ustu Músíktilraunum og liðsmenn
höfðu undirbúið sig vel fyrir þessar.
Músíkin var fínn metall, en hefði
kannski mátt vera aðeins þyngri –
vinna betur í gítarsándinu strákar.
Annað lag þeirra félaga var frábært,
beinskeytt og kraftmikið.
Mute bauð upp á fínar pósur og til-
heyrandi, en aðeins meiri rækt hefði
mátt leggja við æfingarnar, því þeir
voru fráleitt nógu þéttir í fyrsta laginu.
Kannski var þó sviðsskrekk um að
kenna því seinna lag þeirra var miklu
betra með fínni keyrslu.
Ekki er gott að átta sig á hvað vakti
fyrir DiptheriA-mönnum því þeir voru
ekki tilbúnir fyrir Músíktilraunir
fannst mér. Lögin voru hálfköruð og
þunglamaleg og þó þeir ættu sína
spretti verða þeir félagar að gera mun
betur ætli þeir sér að ná einhverjum
árangri.
Hugsanlega má þakka Hjálmum
reggílag þeirra Black Sheep-félaga,
eða réttara sagt uppkast þeirra að
reggílagi því takturinn var allt of þétt-
ur, vantaði allan léttleika og sól í lagið.
Flutningur á síðara lagi þeirra félaga
tókst mun betur, rokkað með til-
þrifum.
Þegar hér var komið sögu á þessu
músíktilraunakvöldi hófust undrin því
næstu þrjár hljómsveitir báru svo af
öðru því sem í boði var þetta kvöld að
það hálfa var nóg. Fyrst kom þar rokk-
sveit almögnuð sem kallar sig We
Made God, geysilega þétt og kraft-
mikil sveit sem spilaði og söng eins og
hún ætti lífið að leysa.
Þá kom Sweet Sins sem fór á kost-
um í indískotnu poppi með einn besta
söngvara / söngkonu tilraunanna í
framlínunni. Einkar skemmtilegt.
Fjörkálfarnir í Who Knew komu þar
næstir og lögðu salinn að fótum sér
með fölskvalausri skemmtan og óbeisl-
aðri spilagleði – ekki frumlegt en mikið
stuð.
Gefur augaleið að erfitt var fyrir
nokkra hljómsveit að fylgja í fótspor
þessara þriggja sem hér er getið og
Hljóðmengun var ekki í formi til þess.
Sveitin var alls ekki nógu vel samæfð
og fyrsta lagið hálfgerður bútasaumur,
ekki síst þegar söngvarinn varð
skyndilega andsetinn. Seinna lag
þeirra félaga var betra, en þó ekki
nógu gott.
Memphis var betur undir tilraun-
irnar búin, gríðarlega þétt sveit. Sviðs-
framkoman var til fyrirmyndar, lögin
vel samin og söngurinn afbragð, en það
vantaði eitthvað í blönduna, vantaði
lífsháskann sem We Made God nærð-
ist á til að mynda.
Lokaorð þessa tilraunakvölds áttu
Skagamennirnir í Ferlegheitum. Þeir
voru ekki að fela áhrifavalda sína, Dav-
id Gilmour / Pink Floyd í fyrsta lagi og
Eric Clapton í því síðara, ekki leiðum
að líkjast. Gítarspil sveitarmanna var
og til fyrirmyndar, sérstaklega
skemmtilegur samleikskafli þeirra gít-
arfélaga undir lok seinna lags sveit-
arinnar.
Who Knew rúlluðu salnum upp, en
dómnefnd kaus We Made God og
Sweet Sins áfram.
Kvöld mikilla undra
TÓNLIST
Loftkastalinn
Þriðja tilraunakvöld Músíktilrauna
2006. Þátt tóku Imagination, Concrete,
Mute, Diptheria, Black Sheep, We Made
God, Sweet Sins, Who Knew, Hljóð-
mengun, Memphis og Ferlegheit. Haldið
í Loftkastalanum 22. mars.
Músíktilraunir
Árni Matthíasson
MUTE
DIPTHERIA
Ljósmyndir/Björg Sveinsdóttir
CONCRETE
MEMPHIS IMAGINATION