Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 65
MINNINGAR
✝ Júlíana Matt-hildur Isebarn
fæddist í Ósló 20.
janúar 1917. Hún
lést á Grund 31.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Sigurveig
Sveinsdóttir og
Hans Isebarn.
Systkini Júlíönu
eru Baldur John-
sen, Clara Isebarn,
Ingólfur Isebarn,
Sæmundur Björns-
son, Sveinn Björns-
son, Bryndís Björnsdóttir, Elín
Björnsdóttir og Knútur Björns-
son. Af þeim eru Baldur, Clara,
Ingólfur og Sveinn látin.
Júlíana giftist 17. júní 1947
Ágústi Guðlaugssyni, bæjarsíma-
stjóra í Reykjavík, f. 23. ágúst
1912, d. 27. nóvember 1991, syni
Guðlaugs Skúlasonar og Unu
Gísladóttur. Börn þeirra Júlíönu
og Ágústs eru: 1) Ágúst Ágústs-
son, f. 4. febrúar 1945. Hann var
í sambúð með Ruth Stefnisdóttur
og börn þeirra eru: Daníel Ise-
barn Ágústsson, f. 7. nóvember
1980, og Davíð Isebarn Ágústs-
son, f. 18. nóvember 1988. 2)
Sveinn Ágústsson, f. 17. apríl
1948, kvæntur Her-
dísi Baldvinsdóttur
og börn þeirra eru:
Ágúst Sveinsson, f.
15. desember 1973,
og Sigurður Sveins-
son, f. 15. mars
1981.
Júlíana ólst upp í
Reykjavík hjá afa
sínum Sveini í Völ-
undi. Júlíana gekk í
einkaskóla Ágústar
Bjarnasonar og
vann í Völundi eftir
hefðbundna skóla-
göngu. Júlíana var alla tíð mikil
íþróttamanneskja og var m.a. í
Skautafélagi Reykjavíkur og
Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur og vann oft til
æðstu verðlauna á þeim vett-
vangi. Hún var einnig einn af
hvatamönnum að stofnun Bridge-
félags kvenna.
Júlíana hóf búskap með Ágústi
manni sínum í Reykjavík árið
1947, fyrst á Hverfisgötu 106 en
svo á Hringbraut 43 frá 1967 og
þar bjó hún allt þar til hún flutt-
ist á Grund árið 2002.
Útför Júlíönu fór fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík 7. apr-
íl síðastliðinn.
Elskulega systir mín er látin 89
ára gömul.
Við vorum hálfsystur fæddar af
sömu móður, Sigurveigu Sveinsdótt-
ir, en faðir hennar var Hans Isebarn
og vorum við systkinin níu í allt.
Júlíana var alltaf kölluð Túlla af
ættingjum og vinum.
Túlla var mjög lífsglöð og góð, það
var yndislegt að koma til hennar og
Ágústar Guðlaugssonar eiginmanns
hennar, en þau giftu sig árið 1947,
og eignuðust tvo syni, Ágúst (Gústa)
og Svein. Þeir giftust báðir og stofn-
uðu heimili og eiga þeir tvo syni
hvor, þeir eru allir frábærir og eru
menntaðir á ýmsum sviðum.
Túlla var mikil fjölskyldumann-
eskja, hélt alltaf upp á afmælið sitt
20. janúar með því að ná í alla fjöl-
skylduna og spila félagsvist með
dásamlegum veitingum og verðlaun-
um fyrir þá sem unnu, og allir
mættu og skemmtu sér vel.
Ágúst eiginmaður Túllu var ynd-
isslegur maður í alla staði, hann
vann hjá símanum til dauðadags, en
Ágúst lést 27. nóvember 1991.
Túlla var mikið í íþróttum á sínum
yngri árum, spilaði mikið badmin-
ton, og einnig stundaði hún skíði og
skauta og var frábær í þessum
greinum, einnig spilaði hún alltaf
brids og var mjög góður bridsspilari.
Túlla fór að finna fyrir veikind-
unum um 85 ára að aldri og urðu þau
henni erfið til æviloka.
Sveinn sonur þeirra hefur búið
lengst af í Englandi, Gústi hefur
hugsað um móður sína og verið
henni stórkostleg hjálparhella.
Hún hefur dvalist á Grund síðast-
liðin fjögur ár, og hann komið til
hennar á hverjum degi eða oftar og
fylgst mjög náið með henni og gert
það sem hægt var að gera fyrir
hana.
Ég bið góðan Guð að varðveita
fjölskyldu hennar og þakka henni
fyrir samfylgdina góðu.
Þín systir
Elín T. Björnsdóttir.
JÚLÍANA MATT-
HILDUR ISEBARN
Það er naumast
hægt að segja að
Djúpið hafi sýnt sínar fegurstu og
björtustu hliðar, þegar ung stúlka
austan af fjörðum steig út úr rútunni
á Arngerðareyri um Jónsmessuleyt-
ið 1949. Það hafði gert hvell snemma
vors og fyllt upp í allar lautir og
lækjarfarvegi svo rækilega að snjó
tók ekki upp að fullu þetta sumar og
menn gengu yfir ár á snjóbrúm í
göngum um haustið. Hún mundaði
myndavél og tók mynd út yfir Djúp-
ið með Æðey í forgrunni og snjó-
lausa landræmu með ströndinni.
Miðhlíðis eftir Snæfjallaströndinni
endilangri teygði sig samfelldur
skafl svo langt sem augað eygði,
Mýrará undir snjófargi ofan frá
Kinn niður fyrir neðsta foss. Þótt
dagurinn væri sólbjartur og hlýr var
ekki laust við að setti að henni hroll.
Lítt mun henni hafa boðið í grun að
þarna ætti heimili hennar eftir að
standa næstu nærfellt hálfa öld.
Ferð ungu stúlkunnar var ekki
lokið. Enn voru fimmtán ár í það að
vegagerð lyki út Langadalsströnd
með brú yfir Mórillu í Kaldalóni og
áfram út Bæjahlíð að Bæjum. Síð-
asta spölinn varð því unga stúlkan
að fara með Djúpbátnum Fagranesi
að bryggju í Bæjum. Þaðan var svo
greiður vegur, um fjögurra kíló-
metra leið út að Unaðsdal, farin á
Villýs-jeppanum, sem komið hafði á
bæinn árið áður. Og þarna réðust ör-
lög Stefaníu Ingólfsdóttur, aust-
firskrar blómarósar frá Vopnafirði.
Þetta sumar, fermingarsumarið
mitt, var fimmta sumarið mitt hjá
Guðrúnu móðursystur minni í Un-
aðsdal. Hún hafði þá búið þar um
aldarfjórðungs skeið með bónda sín-
um, Helga Guðmundssyni og átt
með honum 16 börn. Sjálf kom Stefa
úr 10 barna hópi á Skjaldþingsstöð-
um í Vopnafirði, missti móður sína
ung og föður sinn ekki löngu síðar.
Svona var þetta líka á Snæfjalla-
ströndinni framan af öldinni sem
leið. Jafnvel á lítilfjörlegustu kotum
uxu stórir systkinahópar úr grasi,
svo stórir, að elstu börnin voru
gjarnan farin að heiman, þegar þau
yngstu fæddust. Flest var þetta
mannvænlegt fólk, sem auðgaði
mannlífið í landinu, þótt það lifði
sínu lífi fjarri heimahögum.
Fyrsta sumarið mitt í Unaðsdal
var Helgi bóndi enn á lífi en þegar
hér var komið sögu var Kjartan son-
ur þeirra í þann veginn að taka við
búi. Þarna var jafnan mannmargt á
sumrin, enda nokkuð í að heyskap-
artækni yrði vélvædd. Það var því líf
og fjör um hábjargræðistímann,
nótt stundum lögð við dag og veð-
urguðir látnir stjórna vinnutíma um
helgar.
Í minningunni er létt yfir þessu
sumri. Unga kaupakonan reyndist
rösk til allra verka og það var mikið
um sólskin og dillandi hlátra, eins og
gerist hjá ungu fólki sem gengur
samhent til vinnu sinnar og bregður
starfinu upp í leik þegar svo ber
undir. Það er til þessa sumars sem
ég hef oft vitnað þegar ég er að segja
börnunum mínum frá þeim hlýind-
um sem lágu í lofti þegar ég var að
alast upp, áður en nokkur hafði
heyrt minnst á gróðurhúsaáhrif, og
voru með þeim eindæmum, að flesta
daga gengum við á sundskýlunni
einni fata og iðulega þoldum við
samt ekki við í sólbirtunni sem end-
urkastaðist frá sköflunum í hlíðinni,
og stungum okkur í sjóinn fram af
klöppunum á Mýri til að kæla okkur,
en ekki tók betra við í hlýjum sjón-
um og við skutumst úr kafinu upp á
SALVÖR STEFANÍA
INGÓLFSDÓTTIR
✝ Salvör StefaníaIngólfsdóttir
fæddist á Skjald-
þingsstöðum í
Vopnafirði 17. sept-
ember 1927. Hún
lést á heimili sínu,
Klapparhlíð 30 í
Mosfellsbæ, 17.
mars síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Bústaðakirkju 23.
mars.
klappirnar, þar sem
við þornuðum á auga-
bragði eins og segir í
brag þeim sem Hugi
sonur minn flutti mér
sjötugum:
Eins og næstelstu menn
hafa munað
og meira en hina hefur
grunað,
voru sumrin sjóðheit
þar sem pa var í sveit,
enda dalurinn kenndur
við unað.
Er skemmst frá því
að segja að þetta sumar tókust ástir
með þeim Kjartani frænda mínum
og austfirsku blómarósinni og næsta
vor kom hún alkomin í Unaðsdal og
tók þar fljótlega við búsforráðum.
Það gustaði af Stefu hvað sem hún
tók sér fyrir hendur og hún var bæði
skjótvirk og velvirk, blátt áfram og
hress í tali, skóf ekki utan af því
hvað henni fyndist. Fyrir kom að
hún lét okkur frændur heyra það, að
það væri með ólíkindum hvílíkt dám
við gætum dregið af sauðkindinni
með að þráast og þybbast við og fara
svo okkar fram án orðaskaks, stund-
um þvert gegn hennar vilja. Hitt er
mér þó ofar í huga, þegar skondin og
skrítin atvik bar í tal og hláturinn
glumdi um bæinn. Hún var skarp-
greind og gat verið tunguhvöss,
fyndin og hæðin eftir því sem við
átti.
Þau Kjartan komu upp fjórum
börnum: Elínu, Helga, Ingibjörgu
og Ingólfi. Unaðsdalur hafði áður
verið í miðri sveit, en byggð var að
leggjast af um þessar mundir á ystu
bæjunum Sandeyri, Snæfjöllum og
Gullhúsám. Norðan heiðar var enn
búið, en innan skamms fóru Grunna-
víkur- og Sléttuhreppur líka í eyði
og Unaðsdalur þar með á ysta jaðri
hins byggilega Íslands. En það voru
ung og bjartsýn hjón, sem nú voru
að hefja búskap á Snæfjallaströnd-
inni, og bændurnir fullir hugsjóna-
glóðar um að breyta blásnum melum
og blautum mýrum í fögur og sam-
felld tún – sem og tókst. Þeir virkj-
uðu Mýrarána í samvinnu og leiddu
rafmagn heim á hvern bæ. Það
skiptust á blíðviðrissumur og kalár,
hafísvetur og snjóþyngslavetur og
svo í bland mildari vetur með hlýjum
vorum. En þessi ungu hjón sátu
ótrauð við sinn keip meðan heilsan
entist. Ungarnir flugu úr hreiðri,
sumir til annarra landa en aðrir leit-
uðu í aðrar sóknir hér innanlands,
en þó fjarri heimaslóð Að lokum
varð ekki lengur unað við fámenni
og einangrun langra vetra og þau
Stefa og Kjartan tóku sig upp og
fluttu í Mosfellsbæinn. Því miður
fékk Kjartan aðeins notið fáeinna
ára, frjáls frá búskaparstritinu.
Stefa flutti í nábýli við Ingibjörgu
dóttur sína, sá um sig sjálf til síðustu
stundar og fékk hægt andlát á heim-
ili sínu.
Þau urðu alls fimm sumrin sem
við vorum samvistum í Unaðsdal.
Ég er þakklátur fyrir þær stundir,
sem eru svo góðar í minningunni.
Enn er það svo að þegar ég fæ
heimþrá stefnir hugurinn fyrst og
fremst heim í Unaðsdal. Ekki ein-
ungis vegna þess að þaðan finnst
mér útsýni fegurst í heimi á sól-
björtum sumardegi, þegar fjöllin
standa á höfði í spegilsléttum sjón-
um, hvort sem augum er beint yfir
Æðey út á Deild og Stigahlíð eða inn
Djúpið allt að Ísafirði, ellegar þá lit-
ið fram í dalinn, þar sem grasbreiður
og lyng og birkikjarr skiptast á og
Gunnarsfoss og Rjúkandi kveða
dimmum tóni á síðkvöldum. Heldur
ekki síður vegna þess að þarna var
notalegt að finna sig eflast að lík-
amskröftum og þroskast í hlýrri
nærveru frændfólks og vina, og að
síðar á lífsleiðinni var mér og mínum
alltaf tekið þar eins og maður væri
að koma heim.
Ýmsum sem ganga um garða eyði-
býlanna á Snæfjallaströnd mun
finnast sem þar hafi ævistarf verið
unnið fyrir gýg. En fæst getum við
gengið að því sem gefnu að niðjar
okkar byggi sína tilveru ofan á okk-
ar ævistarf. Það sem mestu skiptir
er áreiðanlega að unnið sé af alhug
meðan verið er að og gleði og nautn
höfð af verkinu. Og það höfðu þau
Stefa og Kjartan vissulega af sínu
verki.
Ég og fjölskylda mín færum niðj-
um Stefu og Kjartans og öllum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðju og þakkir fyrir liðnar
stundir.
Ólafur Hannibalsson.
Við Stefa hlógum að því að með
okkur hafi tekist ást við fyrstu sýn.
Ég er stolt af því, því ég fann að
Stefa er ekki allra – en það var eitt-
hvað sem small á milli okkar þegar
við hittumst fyrst og breyttist ekki
eftir það.
Ég hitti hana seint – ekki fyrr en
1990, þegar við Ólafur vorum á sum-
arferð fyrir vestan með Ásdísi á
öðru árinu. Þungamiðja þeirrar ynd-
islegu ferðar var auðvitað að fara í
Unaðsdal. Getur nokkurt fegurra
bæjarheiti en Unaðsdalur á Snæ-
fjallaströnd? Þvílíkt nafn – þvílíkt
bæjarstæði – og þvílíkt fólk! Okkur
var tekið opnum örmum. Eftir allar
sumardvalirnar hjá móðursystur
sinni í Unaðsdal er Ólafur eins og
einn af bræðrunum í sextán systkina
hópnum. Og við mæðgurnar fylgd-
um hiklaust með inn að hjartans
hlýju rótum hjá þeim Stefu og
Kjartani. Kjartan var einhver fal-
legasti maður sem ég hef séð,
greindur, fríður, stillilegur og hlát-
urmildur og stafaði þvílíkri góð-
mennsku frá honum að það var erfitt
að hafa af honum augun. Stefa kom
mér fyrir sjónir sem miklu beittari,
skörp, beinaber, meinhæðin með sitt
skelmislega bros út í annað og ófor-
betranlega stríðni í augnaráði og til-
svörum. Hún var ekki að skafa utan
af því og þurfti ekki um að binda,
þegar hún hafði látið sitt álit í ljós.
En allt með ómótstæðilegum húmor.
Hún bar þess merki að hún hafði
ekki sparað sig við vinnu, hlífði sér
ekki og féll aldrei verk úr hendi.
Forkur og engin orð um það. En á
bak við allan þennan dugnað skein
djúpstæð hlýja, væntumþykja og
umhyggja, sem gerði að verkum að
Ásdís skreið uppí fangið á Stefu og
vildi sofna þar. Og ég fann, að hjá
þessum hershöfðingja er öllum
borgið.
Blessuð sé minning þessarar
dásamlegu konu – og þeirra beggja:
Kjartans og Stefu í Unaðsdal á Snæ-
fjallaströnd.
Guðrún Pétursdóttir.
Sigurbjörn eða Diddi
eins og við kölluðum
hann alltaf stóð mér og
okkur barnabörnum
afa Guðjóns mjög nærri. Væri jafnvel
hægt að segja að hann hafi verið okkur
annar afi líkt og var með Magnús,
Gagga heitinn, bróður Didda og afa
Guðjóns. Þær eru margar góðar minn-
ingarnar af samskiptum mínum og
tímum með Didda. Það að hafa átt
heimagengt á bóndabæ svo nálægt
Keflavík hefur reynst mér ómetanlegt
þegar tíminn líður. Diddi kenndi mér
að vinna og það að keppast við að
henda heyböggum á traktorinn eða
flokka kartöflurnar á meðan allt var
gefið í botn svo ungur að aldri hefur án
efa mótað mig. Diddi var hraustasti og
atorkusamasti maður sem ég hef
nokkurn tímann kynnst. Hann kunni
að skilja aðalatriðin frá aukatriðunum.
Þessum hæfileika vil ég meina að hon-
um hafi tekist að miðla áfram til mín og
SIGURBJÖRN
STEFÁNSSON
✝ SigurbjörnStefánsson
fæddist í Landakoti
í Sandgerði 12.
mars 1932. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
19. mars síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hvalsnes-
kirkju 29. mars.
fleiri. Ef ekki væri fyrir
þá hugsun hefði Didda
eflaust ekki tekist að
reka búið sitt svo vel
ásamt því að hafa alltaf
tíma til að sinna vinum
og fjölskyldu en þetta
tvennt var í algjörum
forgangi hjá Didda.
Stór hluti af minn-
ingum mínum um
Didda voru skafmiðarn-
ir sem hann færði okk-
ur systkinunum ósjald-
an við mikil fagn-
aðarlæti. Oft var
,,gróðinn mikill“ af happaþrennunum
en minn stærsti vinningur hefur ef-
laust verið þegar Diddi sjálfur vann
forlátan bíl í einni slíkri þegar ég var
aðeins nokkura ára gamall. Þá var
gerð ferð í höfuðborgina og bílinn
fenginn afhentur. Sú athöfn var í sjálfu
sér ágæt en stopp okkar á Aski við
Suðurlandsbraut situr enn sterk í
minnum. Veislan sem þar var borin
fram flokkaðist í mínum huga á þeim
tíma sem einn besti dagur lífs míns og
finnst mér eins og sá dagur hafi verið í
gær. Erfitt verður að toppa þann dag í
minningunni.
Nú á seinni árum hafa samræður
mínar við Didda verið mér mjög verð-
mætar, sögur frá árum áður og sýn
hans á pólitík og mannlíf hafa verið
mér mikill lærdómur. Það sem situr
eftir þó fyrst og fremst og mesti sökn-
uður er yfir er nærvera Didda. Alltaf
var hann áhugasamur um það sem við
systkinin tókum okkur fyrir hendur
sem og var hann alltaf boðinn og búinn
til að aðstoða okkur, sama hver beiðnin
var. Á seinni árum höfðu bræðurnir
Diddi og Gaggi haft nóg að gera, hafa
þeir fundið sér ýmis verkefni tengd
Nesjum eða öðrum verkefnum sem
upp hafa komið hjá fjölskyldunni. Nú
veit ég að þeirra bíða verkefni ann-
arstaðar og hefur Gaggi án efa und-
irbúið komu hans og lagt drög að
fyrstu verkefnum. Það voru forréttindi
að hafa kynnst Didda svo vel og er ég
fullviss um að allir þeir sem á vegi hans
hafa orðið til lengri tíma eða skemmri
eru ríkari en ella, svo er það sannar-
lega frá mínum bæjardyrum séð.
Diddi, takk fyrir mig.
Guðjón Kjartansson.
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Minningargreinar